Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hús við hafið

Innlit í fal­legt rað­hús með dásam­legu sjáv­ar­út­sýni á Sel­tjarn­ar­nes­inu. Inn­an­húss­hönn­uð­ur­inn Sæbjörg Guð­jóns­dóttir valdi inn hús­gögn á heim­ilið.

Hús við hafið

Blaða­maður og ljós­mynd­ari heim­sóttu fal­legt rað­hús með dásam­legu sjáv­ar­út­sýni á Sel­tjarn­ar­nes­inu, en inn­an­húss­hönn­uð­ur­inn Sæbjörg Guð­jóns­dóttir eða Sæja eins og hún er alltaf kölluð tók að sér að velja inn hús­gögn á heim­ilið fyrir eig­endur sem búa meiri­hluta árs­ins utan Reykja­víkur og er húsið hugsað sem afdrep þeirra í borg­inni.

Sæja rekur hönn­un­ar­stofu undir eigin nafni, en hún útskrif­að­ist frá KLC School of Design / Uni­versity of Brighton í London árið 2011 og hlaut John Cullen Lighting Design verð­launin það árið. Frá útskrift hefur Sæja unnið sjálf­stætt fyrir bæði heim­ili og fyr­ir­tæki en einnig starf­aði hún á arki­tekta­stof­unni the Manser Practice í London og hefur komið að hönnun versl­ana, veit­inga­staða, hót­ela ásamt því að hafa tekið þátt í sam­keppnum í sam­starfi við hönn­uði og arki­tekta bæði hér heima og erlendis.

Þegar Sæja byrj­aði verk­efnið voru eig­end­urnir búnir að mála og kaupa Eggið og Sjöurnar eftir Arne Jacobsen. Mynd /Heiða Helga­dóttir

Við byrj­uðum að spyrja Sæju hvernig þetta verk­efni kom til? „Eig­end­urnir höfðu sam­band við mig eftir að hafa séð annað verk­efni eftir mig hjá kunn­ingja­fólki sínu. Þau höfðu nýverið fest kaup á hús­inu en það var tekið í gegn af fyrri eig­endum, þegar ég hófst handa voru þau hins­vegar búin að mála og kaupa Eggið og Sjöurnar eftir Arne Jacobsen – húsið var því nán­ast tómt fyrir utan vegg­festu Montana-skápana sem fylgdu því. Eigendur eiga stórt og mikið mál­verk eftir lista­mann­inn Silvíu Lovetank og voru lit­irnir í því verki svo­lít­ill útgangs­punktur fyrir lita­vali mínu á hús­munum.“

„Þau höfðu nýverið fest kaup á hús­inu en það var tekið í gegn af fyrri eig­endum, þegar ég hófst handa voru þau hins­vegar búin að mála og kaupa Eggið og Sjöurnar eftir Arne Jacobsen.“

Hvernig er ferlið þegar þú tekur að þér inn­an­húss verk­efni? „Það fer tölu­vert eftir stærð verk­efn­is­ins og hvort um er að ræða fyr­ir­tæki eða heim­ili. Ég byrja alltaf á því að skoða aðstæður, kynn­ast kúnn­anum örlítið og fara yfir þeirra sýn og hug­myndir um fram­haldið. Mér finnst líka nauð­syn­legt að skoða heim­ili kúnn­ans og athuga hvað hann á fyrir eins og lista­vek eða aðra per­sónu­lega muni. Næst fer ég í teikn­inga eða skissu­vinnu og legg til fyrstu drög, þegar það er komið á hreint fer ég í val á efni og inn­an­stokks­munum. Í fram­haldi þess leita ég til­boða hjá þeim fyr­ir­tækjum og fram­leið­endum sem ég kem til með að nota í verk­efn­inu og að lokum er loka­upp­still­ing þegar allt er komið í hús svo hægt er að setja punkt­inn yfir i-ið.“

Mynd / Heiða Helga­dóttir

Hvernig verk­efni tek­urðu helst að þér? „Verk­efnin sem ég tek að mér eru mjög fjöl­breytt og mis­um­fangs­mikil, það er tölu­vert um heim­ili og sum­ar­hús sem koma upp á borð til mín og þar fæ ég að velja allt frá litum og efnum yfir í heild­ar­hönnun á inn­rétt­ingum og hús­gögnum. Einnig er alltaf eitt­hvað um að fyr­ir­tæki, veit­inga­hús og hótel leiti til mín.“

Mynd / Heiða Helga­dóttir

Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl? „Stíllinn minn er frekar „elegant“ en á sama tíma má sjá vott af karl­mennsku. Ég er fyrir frekar hreinar línur og vil að hver hlutur fái að njóta sín í stað þess að ofhlaða, einnig finnst mér skemmti­legt að leika mér með form og and­stæður í efn­isvali.“

„Þegar heim­ili er inn­réttað skiptir mestu máli að gera það per­sónu­legt“

Notarðu mikið sömu lita­tóna og efni í þinni hönnun? „Ég styð oft við ákveðna grunn­tóna eins og lit­ina mína í Slipp­fé­lag­inu, en brýt þá upp með notkun áferða og ein­hvers meira áber­andi litar – eins og í þessu verk­efni not­aði ég vín­rauðan velúr.“

Mynd / Heiða Helga­dóttir

Hvað er áber­andi í inn­an­húss­hönnun um þessar mundir og skiptir mestu máli þegar kemur að því að inn­rétta heim­ilið? „Það er meiri lita­gleði en hefur verið oft áður, þyngri efni og óhefð­bundin form. Svo hafa „statem­ent“ ljós líkt og Vertigo ljósið sem ég not­aði yfir borð­stofu­borðið í þessu verk­efni einnig verið áber­andi. Varðandi það að inn­rétta heim­ilið skiptir mestu máli að gera heim­ilið per­sónu­legt.“

Við kveðjum inn­an­húss­hönn­uð­inn Sæju og glæsi­lega húsið við hafið og endum á því að spyrja hana hvernig verk­efni henni þyki nú skemmti­leg­ust? „Það er auð­vitað lang­skemmti­leg­ast þegar ég fæ svo­lítið frjálsar hendur og kúnn­inn þorir með mér á ótroðnar slóðir.“

Mynd / Heiða Helga­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni