Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Svolítið eins og Uber fyrir dagsverkin“

For­rit­ar­inn Steinar Bragi Sig­urð­ar­son er með­stofn­andi apps sem nú er í vinnslu og heitir NearOnes og er snjall­símafor­rit fyrir fólk sem vantar aðstoð við dag­leg verk eins og til dæmis elda­mennsku, barnapössun, þrif og garð­yrkju. Steinar býr og starfar í Hollandi og við slógum á þráð­inn til hans.

„Svolítið eins og Uber fyrir dagsverkin“
|adsf|
Steinar Bragi Sig­urð­ar­son hefur að und­an­förnu meðal ann­ars verið að rann­saka gervi­tauga­net (e. Neural Networks) og tölvu­sýn (e. Computer Vision).

„Hug­myndin að NearOnes kvikn­aði hjá með­stofn­endum mínum Yvonne Greeuw og Toni Lufi fyrir nokkrum mán­uðum síðan,“ segir Steinar sem síð­ast­liðin tvö ár hefur stundað meist­ara­nám í tölv­un­ar­fræði við háskól­ann í Leiden með áherslu á gagna­vís­indi og gervi­greind. „Þau vildu mynda sterk­ari sam­fé­lags­tengsl í nærum­hverfi fólks og hug­myndin er að þróa snjall­símafor­rit fyrir fólk sem vantar aðstoð við dag­leg verk, til dæmis elda­mennsku, barnapössun, þrif og garð­yrkju. Það eru til ýmis kerfi sem tengja fólk saman í ákveðnum til­gangi, til dæmis LinkedIn fyrir atvinnu, AirBnb fyrir gist­ingar, Uber fyrir skutl og Deliveroo fyrir heim­send­ingar á mat. Það vantar eitt­hvað fyrir þessi dag­legu smá­verk. Við sjáum til dæmis fyrir okkur að eldri borg­arar gætu viljað aðstoð við mat­ar­inn­kaup og elda­mennsku ein­hverja daga í viku. Við sjáum einnig fyrir okkur að mennta- og háskóla­nemar væru til í að bjóða fram aðstoð sína við þessi verk gegn smá­vægi­legri greiðslu. Mennta­skóla­nemar vinna gjarnan afgreiðslu- og þjón­ustu­störf á lágum launum með fram námi en við höldum að þetta gæti verið líf­legur og skemmti­legur val­kostur til að afla sér smá­vegis auka­tekna. Svolítið eins og Uber fyrir dags­verkin. Ég er rétt að byrja að for­rita en Toni og Yvonne hafa und­an­farna mán­uði verið í ítar­legum mark­aðs­rann­sóknum og prufum með ýmsum hópum víðs­vegar um Amster­dam. Það virð­ist vera sterkur grund­völlur fyrir þessu og ég hef mikla trú á hug­mynd­inni. Það sem heillar mig mest er að þetta tengir fólk saman á svo mann­legan og skemmti­legan hátt og getur skapað ný, sterk og raun­veru­leg vina­bönd. Við viljum virkja nágrenni fólks og skapa sterk­ari teng­ingar.“

„Hug­myndin er að þróa snjall­símafor­rit fyrir fólk sem vantar aðstoð við dag­leg verk, til dæmis elda­mennsku, barnapössun, þrif og garð­yrkju.“

Fundu hann á LinkedIn
Steinar Bragi hefur unnið við vef­for­ritun frá því hann hóf nám í tölv­un­ar­fræði árið 2010 í HR. „Með nám­inu vann ég hjá litlu Internet-þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem heitir Hring­iðan. Ég var upp­haf­lega ráð­inn sem þjón­ustu­full­trúi og vann þar meðal ann­ars með vef­hýs­ingar. Þaðan fór ég að fikta mig áfram með vef­for­ritun, fyrst með WordPress sem síðar þró­að­ist út í stærri og flókn­ari verk­efni. Ég fór frá Hring­iðunni árið 2013 til sprota­fyr­ir­tæk­is­ins Spyr á frum­kvöðla­setr­inu á Eiðis­torgi. Þar vann ég sem vef­for­rit­ari í tæpt ár, þangað til ég útskrif­að­ist úr nám­inu og hóf störf hjá Vivaldi, hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem smíðar vef­vafra. Starfið var virki­lega spenn­andi og ég fékk þar tæki­færi á að upp­lifa öran vöxt á þeim þremur árum sem ég var þar. Hjá Vivaldi var ég umkringdur fólki sem hafði ára­tug­a­reynslu af vefnum og vef­tækni. Fyr­ir­tækið var nefni­lega stofnað af Jóni Steph­en­son von Tetzcher sem stofn­aði Opera Software snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Árið 2017 vann ég svo hjá Vett­vangi í nokkra mán­uði áður en ég fór í námið til Hollands,“ segir Steinar.

Hann hafði hugsað sér að fara aftur til Íslands að námi loknu en fór svo að sjá að hann lang­aði að vera lengur í Hollandi. „Ég hafði myndað ákveðin vina­bönd og tengsl við Holland sem ég vil rækta áfram. Ég hóf atvinnu­leit hér fyrir nokkrum vikum síðan, fór í mörg atvinnu­við­töl og sá mörg spenn­andi tæki­færi en það var ekk­ert sem fang­aði athygli mína jafn­sterk­lega og NearOnes.

Yvonne Greeuw og Toni Lufi fundu Steinar Braga á LinkedIn og fengu hann til að verða tækni­legan með­stofn­anda NearOnes.

Toni og Yvonne fundu mig á LinkedIn og komu til mín til Den Haag og sann­færðu mig um að taka þátt í þessu verk­efni, og vildu fá mig inn sem tækni­legan með­stofn­anda. Þeim fannst bak­grunnur minn passa vel þarna inn, til þess að smíða og byggja fyrstu útgáfu af app­inu frá grunni. Ég þurfti því að velja á milli þess að fá stabílt, venju­legt starf sem fram­enda­for­rit­ari eða tæki­færi til þess að gera það sem mig hefur langað að gera lengi, að smíða eitt­hvað nýtt frá grunni með kláru fólki. Seinni kost­ur­inn var meira spenn­andi en óvissan og áhættan meiri. Ég ákvað að fylgja hjart­anu og taka þátt í þessu ævin­týri með þeim. Ég ánægður með það og hef fulla trú á að ég hafi valið rétt.“

Þau eru með aðstöðu hjá Holland Startup, frum­kvöðla­setri í Utrecht sem er rekið af reynslu­boltum í nýsköpun og frum­köðla­starf­semi. „Það er ómet­an­legt að fá stuðn­ing þeirra, hand­leiðslu og ráð­gjöf og að auki aðstoð með fjár­magn til þess að koma okkur af stað.“

Hvíldi for­ritun og varð sendi­bíl­stjóri
Steinar Bragi flutti til Egils­staða með for­eldrum sínum og bróður árið 2000 og segir það hafa verið svo­lítið menn­ing­ar­sjokk fyrst enda alinn upp í Suður-Frakk­landi fyrstu árin. „Það tók mig svo­lít­inn tíma að aðlag­ast íslenskri menn­ingu, kuld­anum og aðeins öðru­vísi lifn­að­ar­háttum. Mennta­skóla­árin voru mjög fjörug, aðeins of fjörug á köflum, og ég eign­að­ist fjöl­breyttan vina­hóp. Ég held enn þá sam­bandi við marga þeirra í dag. Ég bjó á Egils­stöðum þangað til 2010 þegar ég útskrif­að­ist úr ME og flutti til Reykja­víkur í nám. Ég átti virki­lega góð ár á Egils­stöðum og sakna stað­ar­ins stundum. Síðasta sumar lang­aði mig að vera þar yfir sum­arið, svo ég ákvað að taka mér pásu frá tölv­unni og vinna sem sendi­bíl­stjóri þar. Ég var aðal­lega í því að skutla mat­vöru á hótel og veit­inga­staði. Það var gott að kom­ast aftur „heim“ í smá­tíma.“

Steinar mun flytja til Amster­dam frá Den Haag á næstu vikum. „Það eru mikil kafla­skil í mínu lífi þessa dag­ana, nýtt starf, ný borg og ný tæki­færi. Ég er gríð­ar­lega spenntur yfir fram­hald­inu, þótt það ríki enn svo­lítil óvissa. Fyr­ir­tækið okkar er enn á frum­stigi en það er mjög bjart fram undan,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina