Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stelpur dúxa

Athygli vekur nú þegar braut­skrán­ingum fram­halds­skól­anna er víð­ast hvar lokið þetta vorið er fjöldi stúlkna sem dúxa sam­an­borið við pilta. Mannlíf tók saman upp­lýs­ingar í 19 fram­halds- og mennta­skólum um allt land. Þar kemur ber­lega í ljós að stúlkur eru í meiri­hluta þeirra sem dúxa eða alls 14 á móti fimm piltum.

Stelpur dúxa

Krist­jana Stella Blöndal, dós­ent við félags­vís­inda­svið Háskóla Íslands, hefur um ára­bil rann­sakað brott­fall úr fram­halds­skólum og síð­ustu miss­eri hefur verið aukin áhersla á kynja­hlut­föll í slíkum rann­sóknum.

Í sam­tali við Mannlíf tekur Krist­jana Stella undir að þró­unin sé á þá leið að stúlkur séu að ná betri náms­ár­angri hlut­falls­lega eins og tölur um fjölda stúlkna sem dúxa bera með sér. Hún bendir einnig á að kyn hafi áhrif á fleiri þætti. „Þetta snýst ekki bara um ein­kunnir heldur líka náms­valið, það er svo kynjað og það nær alveg upp í háskól­ann,“ segir Krist­jana og bætir við að var­huga­vert sé að tala jafn­mikið og raun ber vitni um að konur séu síður að velja sér tækni­greinar. „Ef þú skoðar náms­val í háskóla t.d. þá kemur í ljós að náms­val kvenna er miklu breið­ara heldur en náms­val karla,“ segir hún og bendir á að dæmi­gerðar „kvenna­greinar“ séu mun stærri og fleiri en þær sem telj­ast til dæmi­gerðra karla­greina.

Strákarnir ekki að hverfa úr námi

Aðspurð um hvort þessar tölur séu vís­bend­ing um að strákar séu að hverfa úr hefð­bundnu bók­námi, segir Krist­jana svo ekki vera. „Það sem hefur gerst er að stelpum hefur fjölgað svo mikið í bók­námi. Strák­unum hefur ekki fækkað, þeim hefur bara ekki fjölgað,“ útskýrir hún og bætir því við að ef starfs­nám er skoðað sér­stak­lega þá komi í ljós að þar sé fækkun nem­enda af báðum kynjum.

„Þessi umræða um að skól­inn sé hrein­lega meira fyrir stelpur en stráka hefur verið áber­andi lengi en það sem mér finnst var­huga­vert í umræð­unni er að það er alltaf verið að draga svo miklar álykt­anir af með­al­tölum. Ef við skoðum stráka og stelpur, þá er t.d. mun meiri munur innan kynja heldur en á milli kynja í þeim rann­sóknum þar sem enn var verið að vinna með tvö kyn,“ segir Krist­jana Stella.

Hún segir að ekki sé ein­falt að skýra mun á milli kynja í námi en bendir á að lengi hafi verið skoðað hvort fækkun karl­manna í kenn­ara­stétt gæti skýrt lak­ari árangur hjá  strákum en rann­sóknir hafa ekki stað­fest að svo sé. Hún bendir á að eitt sinn hafi hún lagst yfir gamla skóla­ann­ála úr MR frá byrjun síð­ustu aldar en þar hafi mikið verið rætt um að stelpur séu sterk­ari í nám­inu. „Þá voru í fyrsta lagi miklu fleiri strákar en stelpur í skóla og í öðru lagi voru nær allir kenn­arar karl­kyns.“

Að sögn Krist­jönu Stellu voru strákar lengi framan af að standa sig betur en stelpur í stærð­ræði. „Þá var gripið til líf­fræði­legra skýr­inga og því m.a. ann­ars haldið fram að strákar hefðu meiri rým­is­greind en stelpur. Svo ná stelp­urnar í skottið á strák­unum og þá var farið að tala um að skóla­kerfið væri ónýtt,“ segir hún og rifjar upp að á sínum tíma hafi for­síður blað­anna slegið því upp þegar strákar voru að koma illa út í PISA- könn­un­inni. „Á sama tíma voru stelp­urnar að standa sig gríð­ar­lega vel en það var lítið sem ekk­ert minnst á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina