Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég hef aldrei orðið eins hrædd“

Nara Walker hlaut dóm á Íslandi fyrir ofbeldi gegn þáver­andi eig­in­manni sínum sem hafði beitt hana ofbeldi í áraraðir. Hún var nýlega látin laus úr fang­elsi en býr hér sem rétt­laus kona. Hér á eftir fer lýs­ing á örlaga­ríka kvöld­inu þegar Nara fékk nóg af ofbeld­inu og varð­ist mann­inum. Athugið, frá­sögnin er alls ekki fyrir við­kvæma.

„Ég hef aldrei orðið eins hrædd“

Nara er fær um að lýsa fjölda atvika þar sem fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar beitti hana hrotta­legu ofbeldi. Alltaf gætti hann þess þó að berja hana í brjóst- og kvið­ar­hol svo áverk­arnir væru síður sýni­legir en það sem er einkum slá­andi eru lýs­ingar hennar á því hvernig hann gætti þess að horfa í augun á henni meðan á bar­smíð­unum stóð. Þessi frá­sögn er henni allt annað en auð­veld og erf­ið­ast af öllu er að ræða kvöldið sem leiddi til þess að hún hlaut fang­els­is­dóm á Íslandi.

„Helgina fyrir atvikið höfðum við farið út á lífið, hittum banda­rískan ferða­mann, spjöll­uðum við hann í fimm mín­útur og hann fór að fylgja mér á Instagram. Sendi mér svo skila­boð á þriðju­deg­inum til að for­vitn­ast um hvað væri að ger­ast í bænum og ég sagði honum að Airwaves væri í gangi og fullt af tón­leikum. Í fram­hald­inu fórum við mað­ur­inn minn út og hittum Banda­ríkja­mann­inn og íslenska konu sem ég leit á sem sam­eig­in­lega vin­konu okkar hjóna. Hún hafði verið að vinna með mann­inum mínum en mér finnst lík­legt að þau hafi þá þegar átt í sam­bandi þegar ég var ekki á land­inu og að auki sner­ist þeirra sam­band tals­vert um eit­ur­lyf og neyslu, eitt­hvað sem er þeirra en ekki mitt.

Við fórum á tvo bari og vorum að drekka bjór en ég tók eftir því að hún var mjög agressív gagn­vart mér sem hún hafði reyndar verið um tíma. Hann ætl­að­ist til þess að við værum vin­konur, enda var hún alltaf heima hjá okkur, en á þeim tíma leit ég á þeirra sam­band sem vin­áttu. Hún átti eftir að ljúga fyrir rétti fyrir hann og ég hefði átt að kæra hana fyrir lík­ams­árás en í mínum huga var hún fyrst og fremst næsta fórn­ar­lamb hans.

„Hann starði inn í sál­ina á mér. Ég hef aldrei orðið eins hrædd og ég gat ekk­ert gert, leið skyndi­lega eins og ég væri utan eigin lík­ama. Horfði á allt ger­ast eins og fluga á vegg. Síðan byrj­aði hann að berja mig í brjóst og kvið­ar­hol á meðan hann horfði í augun á mér.“

Þegar við komum aftur í íbúð­ina voru mað­ur­inn minn og íslenska konan að kyss­ast eins og þau höfðu verið gera fyrr um kvöldið. Það angr­aði mig satt best að segja ekki, það finnst kannski ein­hverjum skrítið, en fyrir mér var það bara koss og ég var búin að ákveða að skilja við hann hvort eð var. Ég hafði svo sem séð slíka til­burði hjá honum áður, ég hef séð hann hafa kyn­mök við annað fólk og hef þá yfir­gefið her­bergið. En þarna um kvöldið brást ég þannig við að ég kyssti Banda­ríkja­mann­inn, það var svona ég að sýna honum að ég gæti alveg hagað mér svona en svo hætti ég því til þess að verða ekki lamin og við vorum bara að spjalla.

En svo sáum við að mað­ur­inn minn og þessi íslenska kona voru nán­ast farin að stunda kyn­líf en í föt­unum inni í stofu. Banda­ríkja­mað­ur­inn sagð­ist bara ætla að fara þannig að ég sagð­ist líka ætla að fara, vildi ekki vera hluti af þessu. Þá varð allt vit­laust.
Maðurinn minn varð brjál­aður. Hann átti mig og ótt­að­ist að ég ætl­aði að fara með Banda­ríkja­mann­inum sem ég ætl­aði alls ekki að gera. Ég vildi bara ekki vera þarna.
Maðurinn minn og konan voru stöðugt að öskra á mig ein­hverjar sví­virð­ingar og ég man að ég horfði á hana og furð­aði mig á því af hverju hún væri að standa í þessu. Íbúðin sem við vorum í var á hæðum og á ein­hverjum tíma­punkti stóðu mað­ur­inn minn og Banda­ríkja­mað­ur­inn frammi á stig­anum og þá skyndi­lega ýtti mað­ur­inn minn honum þannig að hann kút­velt­ist niður stig­ann, niður á næstu hæð. Seinna kom fram í áverka­skýrslu að hann var með alvar­lega áverka eftir þetta.

Ég frík­aði út þegar ég sá þetta. Maðurinn minn hljóp á eftir honum og stóð yfir honum og hann er stór og sterkur. Ég reyndi að beina athygli hans að mér svo að hann héldi ekki áfram að meiða hann og þá komst Banda­ríkja­mað­ur­inn undan. Maðurinn minn byrj­aði að hrinda mér harka­lega og það kemur fram á áverka­skýrsl­unni að ég var með brákað rif­bein og með áverka á brjóst­hrygg sem ég held að hafi gerst þarna. En málið er að ég var sann­færð um að nú myndi hann drepa mig.

Hann starði inn í sál­ina á mér. Ég hef aldrei orðið eins hrædd og ég gat ekk­ert gert, leið skyndi­lega eins og ég væri utan eigin lík­ama. Horfði á allt ger­ast eins og fluga á vegg. Síðan byrj­aði hann að berja mig í brjóst og kvið­ar­hol á meðan hann horfði í augun á mér. Að hverju var hann að leita í aug­unum á mér? Eigin virði?“

Færð í hand­járn

„Ég gat ekki andað. Hann tók mig upp og lagði mig á sófann sem er á neðri hæð­inni inni í íbúð­inni sem er á tveimur hæðum. Hún var þarna líka og hann stóð yfir mér á meðan ég var að reyna að ná and­anum. Það var eins og árásin væri enn í gangi með hann þarna yfir mér og allar þessar hugs­anir um hvað hafði gerst. Hugsanir um að hann hefði getað drepið þennan mann. Hugsanir um að hann hefði verið að berja mig og ég myndi lík­lega ekki lifa þetta kvöld af. Lá bara þarna og reyndi að anda á meðan hann stóð yfir mér og hélt áfram að öskra á mig. Öskra að hann ætti mig.

Skyndi­lega fann ég adrena­línið flæða um mig í bylgjum og lík­amann segja mér að koma mér burt. Þannig að ég stóð loks­ins upp og reyndi að kom­ast fram hjá honum. Hann greip um upp­hand­legg­ina á mér, hélt mér fastri og hélt áfram að öskra á mig. Hann er eflaust svona 25 sm hærri en ég og skyndi­lega hall­aði hann sér niður að mér og þving­aði sér á mig. Það var á því augna­bliki sem ég beit bút af tung­unni á honum.

Ég fann aldrei fyrir tung­unni á honum uppi í mér, kannski vegna þess að þau höfðu sett kókaín í drykk­ina okkar án minnar vit­undar og það hefur víst stað­deyf­andi áhrif. Ég bara brást við og lík­ami minn lok­að­ist, herpt­ist saman, með þessum afleið­ingum.
Það var eins og tím­inn stæði í stað. Skyndi­lega rank­aði ég við mér og hjartað barð­ist um á ógn­ar­hraða þar sem ég lá á bak­inu á gólf­inu og hún sat klof­vega ofan á mér öskr­andi ókvæð­is­orð. Ég var skelf­ingu lostin. Þau voru tvö og bæði miklu stærri en ég. Ég reyndi að ýta henni af mér og við tók­umst á. En það sem ég ótt­að­ist mest var hvað hann mundi gera mér á meðan mér væri haldið svona fastri. Ég ótt­að­ist að hann kæmi og kastaði mér fram af svöl­unum eða eitt­hvað þaðan af verra.

Loksins náði ég að losa mig en ég komst ekki út fram hjá þeim heldur gat hlaupið upp á efri hæð­ina og falið mig þar. Ég var í algjöru áfalli. Þau héldu áfram að öskra á mig en hún hringdi í lög­regl­una. Þegar lög­reglan kom var ég grát­andi og end­ur­tók mig í sífellu sem er aug­ljóst merki um áfall, jafn­vel ég veit það, en samt var ég sett í hand­járn og þau tvö færð á sjúkra­hús. Ég var færð hand­járnuð út í aft­ur­sæti lög­reglu­bíls og var í haldi lög­reglu að því ég held í fimmtán klukku­stundir.“

Nara er í for­síðu­við­tali Mannlífs sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina