Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hrakfarir á hrakfarir ofan kosta ungmenni vel á aðra milljón

Und­ir­bún­ingur fyrir tón­leika­ferð Skóla­hljóm­sveitar Aust­ur­bæjar til Króatíu hefur verið lyg­inni lík­astur. Tvö af þeim þremur flug­fé­lögum sem hóp­ur­inn átti bókað flug með fóru á haus­inn og sam­skipta­örð­ug­leikar við það þriðja urðu þess vald­andi að sú bókun glat­að­ist. Þessi vand­ræði hafa kostað skóla­hljóm­sveit­ina vel á aðra milljón króna.

Hrakfarir á hrakfarir ofan kosta ungmenni vel á aðra milljón
||

Annað hvert ár fer Skóla­hljóm­sveit Aust­ur­bæjar í tón­leika­ferð til útlanda og í ár er stefnan tekin á Króatíu dag­ana 13. til 20. júní. Hópinn skipa 50 ung­menni á aldr­inum 13 til 18 ára og verða 10 stjórn­endur og for­ráða­menn með í för. Und­ir­bún­ingur fyrir ferð­ina hefur staðið yfir sleitu­laust í tvö ár og hafa ung­mennin meðal ann­ars selt kló­sett­pappír og annan varn­ing til að fjár­magna ferð­ina. Eins og gefur að skilja ríkir mikil eft­ir­vænt­ing innan hóps­ins fyrir drauma­ferð­inni.

Það hefur hins vegar reynst þrautin þyngri að koma hópnum á áfanga­stað. Fyrsta flug­farið til útlanda var bókað í ágúst síð­ast­liðnum með flug­fé­lag­inu Primera Air en félagið varð gjald­þrota í októ­ber. Bless­un­ar­lega var ekki búið að ganga frá neinum greiðslum þannig að næsta mál var að leita til­boða hjá öðru flug­fé­lagi. Fyrir val­inu varð WOW air og var bókað flug fyrir allan hóp­inn til Mílanó á Ítalíu. En WOW air varð líka gjald­þrota og í þetta skiptið slapp skóla­hljóm­sveitin ekki svo vel.

„Þegar ljóst var að WOW var fallið vorum við búin að borga 600 þús­und krónur í stað­fest­ing­ar­gjald. Það er mögu­leiki að sækja það úr þrota­bú­inu seinna meir en eins og staðan er í dag er það ólík­legt og við lítum á þetta sem glatað fé,“ segir Vilborg Jóns­dóttir, stjórn­andi Skóla­hljóm­sveitar Aust­ur­bæjar. Eftir fall WOW var farið að leita til­boða hjá öðrum flug­fé­lögum.

Vilborg Jóns­dóttir, stjórn­andi Skóla­hljóm­sveitar Aust­ur­bæjar.

„Við fórum að leita að björg­un­ar­hring og höfðum sam­band við Icelandair en svör þaðan bár­ust seint og í milli­tíð­inni duttum við niður á ágætis til­boð frá Wizz Air sem féll vel að okkar ferða­á­ætlun og því var ákveðið að stökkva á það.“

Bókunin glataðist vegna misskilnings

Bókað var flug frá Keflavík til Vínar og þaðan átti að keyra til Slóveníu til móts við þar­lenda lúðra­sveit áður en keyra átti til Króatíu. Bókað var stað­fest­ing­ar­gjald upp á 350 þús­und krónur en þegar hóp­ur­inn ætl­aði að ganga frá loka­greiðslu 30 dögum fyrir brott­för kom heldur betur babb í bát­inn. „Þá bara finnst engin bókun,“ segir Vilborg. „Þá er þarna pínu­lítil neð­an­máls­grein í plögg­unum að það þurfi að vera búið að borga 30 pró­sent af far­gjald­inu 60 dögum fyrir brott­för sem er allt öðru­vísi hjá öllum öðrum félögum. Venju­lega fær maður til­kynn­ingu um slíkt frá flug­fé­lög­unum en við fengum ekki neitt og aðil­arnir sem sáu um að bóka ferð­ina sáu ekki þessa neð­an­máls­grein.“

Bókunin var því glötuð með öllu og segir Vilborg að þau hjá Wizz Air hafi sýnt stöðu hóps­ins lít­inn skiln­ing. Góð ráð reynd­ust því ansi dýr. „Við vorum komin í mjög þrönga stöðu því það er mán­uður í brott­för og við erum ekki með neitt far. Icelandair átti engin sæti handa okkur en Wizz Air bauð okkur að bóka allt upp á nýtt en þá var far­gjaldið orðið miklu dýr­ara og far­ang­urs­heim­ildin var minni,“ segir Vilborg en eins og gera sér má í hug­ar­lund er það ekki lít­ill far­angur sem fylgir heillri lúðra­sveit. Þeim var því nauð­ugur kostur einn að ganga að til­boði Wizz Air. „Þegar upp er staðið hefur þetta kostað okkur um það bil 1,3 millj­ónir. Þetta er bara pen­ingur sem er far­inn út um glugg­ann.“

„Mér finnst það ljótt að fyr­ir­tæki skuli ekki taka til­lit til neins, þeim er alveg sama og hugsa bara um pen­ing­ana.“

Vilborg er allt annað en sátt við sam­skiptin við ung­verska lággjalda­fé­lagið. „Við höfum verið að elt­ast við þau en þegar þau hafa loks­ins svarað okkur eftir langa bið vilja þau ekk­ert gera fyrir okkur. Þau hafa vissu­lega lögin með sér því þessi neð­an­máls­grein er til staðar en maður spyr sig hvort virki­lega ekk­ert sé hægt að gera þegar þú kaupir 60 miða. Við höfum skrifað þeim bréf og útskýrt hvers konar hópur er þarna á ferð­inni en það kemur ekk­ert út úr því. Mér finnst það ljótt að fyr­ir­tæki skuli ekki taka til­lit til neins, þeim er alveg sama og hugsa bara um pen­ing­ana.“

Spila upp í tjónið

Þrátt fyrir þessar hrakn­ingar er mik­ill hugur í hljóm­sveit­ar­með­limum sem eru stað­ráðnir í að láta ljós sitt skína við strendur Adría­hafs­ins. „Þau eru algjör­lega til í þetta. Enda rosa­lega spenn­andi að fá að fara á svona fram­andi staði og fá tæki­færi til að spila tón­list úti við án þess að vera í regn­stakk. Þau eru búin að leggja svo mikið á sig fyrir þessa ferð og það var ekki hægt að taka þetta af þeim.“

Vilborg segir að erf­ið­lega gangi að styrkja starf­semi sem þessa og til að bæta upp tjónið sé hóp­ur­inn til­bú­inn til að taka að sér hvers konar verk­efni. „Lúðra­sveitin vill gjarnan spila sem víð­ast og öll verk­efni eru vel þegin. Það er bæði hægt að fá alla sveit­ina og svo er líka hægt að semja um að fá minni hópa. Þau eru búin að vera með þró­un­ar­verk­efni í gangi og hafa verið að æfa brasil­íska karni­valtón­list í allan vetur. Þau eru til­búin með helj­ar­innar pró­gramm sem eng­inn ætti að verða svik­inn af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina