Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stríðið gegn fíkniefnum

Lítið hefur gengið að vinna gegn útbreiðslu fíkni­efna. Það er óhætt að segja að það sé ekki íslenskt vanda­mál, því stríðið gegn fíkni­efnum virð­ist með öllu óvinn­andi.

Stríðið gegn fíkniefnum

Stríð gegn fíkni­efnum er póli­tískt hug­tak. Það varð fyrst til – í það minnsta í stjórn­mála­um­ræðu í Banda­ríkj­unum – á tíma Richards Nixon, sem var for­seti Banda­ríkj­anna frá 1968 til 1974, þegar hann sagði af sér eftir Watergate-hneykslið. Stjórn hans lagði mikla áherslu á að fíkni­efni væru sam­fé­lags­legt böl. Flestir geta tekið undir það en hvar rót vand­ans liggur og hvernig á að takast á við hann, er síðan annað mál.

Um þessar mundir eru stjórn­völd í Banda­ríkj­unum að láta kné fylgja kviði þegar kemur að einum anga ópíóða­vand­ans. For­stjórar og for­svars­menn lyfja­fyr­ir­tækja eru nú til rann­sóknar og hafa sumir hverjir verið sak­sóttir. Þar á meðal er for­stjóri Purdue Pharma sem fram­leiðir verkja­lyfið OxyContin en stór hluti þeirra sem hefur látið lífið úr of stórum skammti hefur sótt í það lyf.

For­stjór­inn Craig Landau ját­aði í vik­unni, í við­tali í Washington Post, að Purdue Pharma væri nú alvar­lega að íhuga að gera fyr­ir­tækið upp til skipta og hætta allri starf­semi. Ástæðan er meðal ann­ars yfir þús­und mál­sóknir á hendur fyr­ir­tæk­inu frá borgum og sýslum Banda­ríkj­anna sem hafa þurft að glíma við afleið­ingar af far­aldr­inum. Landau sagði það ekki ljóst enn hvernig fyr­ir­tækið myndi koma út úr þeim mál­sóknum sem væru fram undan. En það segir sína sögu að þessi lyfj­arisi í Banda­ríkj­unum sé að hugsa um að hætta allri starf­semi.

Í ofaná­lag bæt­ast síðan mál­sóknir aðstand­enda fíkla og lát­inna en í mörgum til­vikum áttu þeir sem lét­ust ekki mikla sögu af óreglu áður en fíknin heltók þá. Í sumum til­vikum er um að ræða verkja­lyf sem eru meira en 50 sinnum sterk­ari en mor­fín og heróín. Eftir einn skammt er ein­fald­lega ekki aftur snúið.

Dreifing þess­ara sterku verkja­lyfja er nú orðin að miklu alþjóð­legu vanda­máli, þó mis­mun­andi miklu eftir svæðum. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) hefur sagt að leita þurfi leiða til að hjálpa fíklum að takast á við vanda­mál sín og hefur stofn­unin talað fyrir því að lýð­heilsa sé höfð í fyr­ir­rúmi þegar stefna fyrir mál­flokk­inn er mótuð. Stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem tekst á við skipu­lagða glæp­a­starf­semi hefur ítrekað talað fyrir því að nálgun á vand­anum sé gjör­breytt. Minna fari fyrir hörku og þungum refs­ingum og meira fyrir því að byggja upp heil­brigð­is­þjón­ustu til að hindra dauðs­föll og koma veikum fíklum undir lækn­is­hendur.

Ákveðin vit­und­ar­vakn­ing hefur átt sér stað und­an­farin miss­eri á alþjóða­vísu, ekki síst vegna hörm­ung­anna í Banda­ríkj­unum.

Þar eru meira en tvær millj­ónir manna í fang­elsum – hæsta hlut­fall af íbúum meðal vest­rænna þjóða – og meira en 60 pró­sent þeirra hafa gerst brot­legir við fíkni­efna­lög­gjöf­ina. Þrátt fyrir allt þá verða vanda­málin dýpri og ill­við­ráð­an­legri, ár frá ári, og hið svarta hag­kerfi fíkni­efna stækkar stöðugt. Ekki sést glitta í árangur af þeirri stefnu sem rekin hefur verið – undir póli­tískum áhrifum frá Nixon forðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina