Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Plastpokabann gæti skapað nýjan vanda

Plastið er orðið tákn þeirrar umhverf­is­vár sem íbúar jarð­ar­innar glíma við og hefur gríð­ar­leg vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað á síð­ustu miss­erum og árum. Með miklu upp­lýs­inga­flæði geta ákvarð­anir þeirra sem vilja vera með­vit­aðir neyt­endur flækst fyrir þeim; hvað skal versla og í hverju á að bera það heim. Svo er spurn­ing hvort þetta skipti yfir­höfuð ein­hverju máli í stóra sam­heng­inu?

Plastpokabann gæti skapað nýjan vanda
Guðni Elísson

Þegar við færum okkur yfir í stóru spurn­ing­arnar varð­andi reglur, neyslu og val neyt­enda þá spyrja margir sig hvort aðgerðir á borð við plast­poka­bannið skipti máli í stóra sam­heng­inu við lofts­lags­mál. Guðni Elísson, pró­fessor í bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands, hefur rann­sakað lofts­lags­mál til fjölda ára og segir hann í sam­tali við Kjarnann að stutta svarið við þeirri spurn­ingu sé nei.

Lífræna baðmullin verst

„Það mætti hugs­an­lega flækja þetta frekar og segja að ef plast­poka­bann yrði að almennri reglu um allan heim þá værum við í raun að skapa nýjan vanda vegna þess að heild­ar­um­hverf­is­á­hrifin af plast­poka­fram­leiðslu eru miklu minni en til dæmis af papp­írs­pokum, svo við tölum ekki um fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull. Samkvæmt skýrslu sem danska umhverfis- og mat­væla­ráðu­neytið lét vinna eru papp­írs­pokar 40 sinnum frek­ari á nátt­úru­legar auð­lindir en plast­pokar og taupok­arnir 7000 til 20000 sinnum verri. Verst er líf­ræna baðmullin, því hún kallar ein­fald­lega á orku­frek­ari fram­leiðslu, meira pláss, o.s.frv.,“ segir hann.

„Íslensk umhverf­is­vernd­ar­stefna hefur fók­userað allt of mikið á það að breyta Íslandi úr fram­leiðslu­svæði yfir í stað þar sem neysla og upp­lifun fer fram.“

Guðni bætir því við að hér sé hann að sjálf­sögðu að tala um fram­leiðslu­end­ann, en vand­inn við plastið liggi ekki síst í því hvað við gerum við það þegar það hefur gegnt hlut­verki sínu. „Ef við tryggðum það að öllu plasti væri fargað eftir kúnst­ar­innar reglum ættu allir fremur að nota plast­poka en til dæmis fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull.“

Reglan ætti að vera að nota hvern einnota poka þrisvar, fjórum sinnum. „Ef við not­uðum alla plast­poka nokkrum sinnum og förg­uðum þeim rétt væri hægt að tvö- til þre­falda töl­urnar frá danska umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Og það má árétta að í dönsku skýrsl­unni er gert ráð fyrir að plastið sé brennt í lokin sem er ekk­ert endi­lega besta leiðin,“ segir hann.

Guðni bendir á að kost­ur­inn við plast­poka­bannið geti verið sá að það veki fólk til vit­undar um umhverf­is­málin en ef eina nið­ur­staðan sé sú að við fyllum taupok­ana okkar af sama ákaf­anum og áður sé þetta sýnd­ar­gjörn­ingur, sem skapi falska umhverf­is­vit­und. Aðal­at­riðið sé að minnka neyslu, draga úr löng­un­inni til að fylla alla poka af dóti sem vel hægt er að lifa án. „En auð­vitað er þetta flókn­ara en svo að hægt sé að svara þessu í svona stuttu máli og þarf að slá alls kyns varnagla.“

Þegar Guðni er spurður út í þá tog­streitu sem mynd­ast getur milli umhverf­is­sjón­ar­miða og lofts­lags­mála þá segir hann að lofts­lags­málin séu auð­vitað umhverf­is­vernd­ar­mál og plast­notkun sé hnatt­rænn vandi.

„En auð­vitað breyt­ast áhersl­urnar eftir því sem við víkkum sjón­deild­ar­hring­inn, frá til dæmis stað­bund­inni land­vernd yfir í spurn­ingar um almennar aðgerðir í lofts­lags­málum. Þannig eru margir land­vernd­ar­sinnar umhverf­is­sóðar og um leið brjóta þeir gegn því landi sem þeir segj­ast ætla að vernda. Margir sem láta sig vernd hálend­is­ins varða eru til dæmis með risa­vaxin sót­spor og taka þannig beinan þátt í eyð­ingu lands­ins sem þeir hafa svarið að verja.“

Hann telur að ekki sé hægt að kalla sig umhverf­is­vernd­ar­sinna og taka á engan hátt ábyrgð á sótsporum sínum eins og þurfi að gera með því að tak­marka flug og kjöt­neyslu. „Mér hefur sýnst áherslan vera sú að tryggja að land­inu sé ekki breytt í ein­hvers konar fram­leiðslu­land og leggja til dæmis fremur áherslu á þjón­ustu. Fara frá stór­iðju yfir í túrisma.“ Engu sé breytt með því að horfa á þetta gamla við­horf sem sé því miður allt of ráð­andi.

„Ef við tryggðum það að öllu plasti væri fargað eftir kúnst­ar­innar reglum ættu allir fremur að nota plast­poka en til dæmis fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull.“

„En ef rúmur millj­arður flýgur á hverju ári heims­horna á milli til þess að „njóta“ breytir hann jörð­inni á stór­tæk­ari hátt en nokkur uppi­stöðu­lón myndu t.d. gera, þótt vissu­lega auðgi menn líf sitt líka með ferða­lögum. Túrismi er stór­iðja skyn­fær­anna og hann er var­inn af djúp­stæðri þörf fyrir neyslu, upp­lif­anir og auð­vitað af skilj­an­legri þörf fyrir að kom­ast út úr nærum­hverf­inu. Íslensk umhverf­is­vernd­ar­stefna hefur fók­userað allt of mikið á það að breyta Íslandi úr fram­leiðslu­svæði yfir í stað þar sem neysla og upp­lifun fer fram. Land­vernd var t.d. styrkt af flug­fé­lag­inu Wow air sem er í raun erfitt að skilja ef við skil­greinum Land­vernd sem umhverf­is­vernd­ar­sam­tök,“ segir Guðni.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina