Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvað er plast og hvers vegna er það skaðlegt umhverfinu?

Plast var upp­götvað í kringum alda­mótin 1900 og varð strax mik­il­vægur stað­geng­ill fyrir vörur sem gerðar voru úr dýrum, til að mynda horn, skjald­böku­skeljar og fleira. Plast kemur við sögu í lífi flestra á hverjum degi og er hluti af nán­ast öllum okkar dag­legum athöfnum, bæði heima við og í vinnu. Vörur úr plasti geta verið vörur sem auka öryggi okkar eins og örygg­is­hjálmar og -gler­augu, auk barna­bíl­stóla. Margar vörur sem auð­velda líf okkar eru úr plasti, til dæmis umbúðir utan um mat­væli, tölvur, far­símar og burð­ar­pokar. Einnig er plast í vörum sem hafa skemmt­ana­gildi eins og leik­föng, sjón­vörp og annað.

Hvað er plast og hvers vegna er það skaðlegt umhverfinu?
plast

Til að fram­leiða plast er að mestu leyti notuð olía og jarð­gas en einnig efni eins og kol, sellu­lósi, gas og salt. Eig­in­leikar plasts eru þeir að end­ing­ar­tími þess er yfir­leitt nokkuð mik­ill. Plast er slitsterkt svo það hverfur ekki eða eyð­ist heldur brotnar í smærri og smærri plast­hluta í nátt­úr­unni, kallað örplast. Plast er það létt efni að það flýtur. Það getur þar af leið­andi borist um hund­ruð kíló­metra í vötnum og höfum og valdið þannig skaða langt frá upp­runa­stað sínum. Gríð­ar­stórir flákar af plasti hafa þegar mynd­ast í Kyrra­hafi, Atl­ants­hafi og Ind­lands­hafi þar sem haf­straumar hafa borið það. Það er síðan fast í þessum gríð­ar­stóru hring­straumum sem þar eru.

Notk­un­ar­tími einnota plasts er mjög stuttur því einnota umbúðum er hent um leið og búið er að drekka vatnið, kaffið, borða brauðið, ávext­ina og fleira. Að með­al­tali er talið að hver plast­poki sé not­aður í um tutt­ugu mín­útur og endi síðan í rusl­inu eða úti í nátt­úr­unni.

Á Íslandi er magn umbúða­pla­stúr­gangs um 40 kíló­grömm á hvern íbúa á hverju ári eða alls á Íslandi um 13.000 tonn á ári. Þegar talað er um umbúða­plast er átt við allt umbúða­plast sem teng­ist lífi ein­stak­lings, heim­ili, skóli, vinna. End­ur­vinnsla á umbúða­plasti er aðeins um 11 til 13 pró­sent á Íslandi. Ekki eru til góðar heild­ar­tölur fyrir annað plast sem ekki er skil­greint sem umbúðir og er til að mynda í raf­tækjum, leik­föngum, hús­gögnum og slíku.

Plastpokafrumvarpið fyrst og fremst táknræn aðgerð

Mælt hefur verið fyrir frum­varpi á Alþingi til laga um breyt­ingu á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir sem varðar notkun burð­ar­poka. Lagt er til í frum­varp­inu að frá og með 1. júlí næst­kom­andi verði óheim­ilt að afhenda alla burð­ar­poka, þar með talið burð­ar­poka úr plasti, án end­ur­gjalds á sölu­stöðum vara og skuli gjaldið vera sýni­legt á kassa­kvittun. Frá og með 1. jan­úar 2021 verði síðan óheim­ilt fyrir versl­anir að afhenda burð­ar­poka úr plasti, hvort sem er með eða án gjalds. Bannið sjálft á þannig við um plast­poka en ekki burð­ar­poka úr öðrum efnum.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefur sagt plast­poka­frum­varpið fyrst og fremst vera tákn­ræna aðgerð, því hún snerti líf okkar allra. Hann bendir á að vand­inn sé víð­tæk­ari, því vör­urnar sem fólk ber heim í plast­pok­unum séu einnig iðu­lega í plast­um­búðum. Enn fremur bendir hann á að um þriðj­ungi mat­væla í heim­inum sé hent og því megi segja að þriðj­ungur inni­halds pokans muni enda í rusl­inu. Þannig sé plast­poka­frum­varpið ein­ungis lít­ill hluti af „stóra plast­vand­anum“.

Að auki tók ráð­herr­ann á móti til­lögum í haust sem kveða meðal ann­ars á um að setja úrvinnslu­gjald á plast­um­búðir til þess að reyna að draga úr þeim eins og hægt er. Jafn­framt komu fram til­lögur um að sam­ræma og skylda flokkun. Guð­mundur Ingi telur það grund­vall­ar­at­riði í nútíma­sam­fé­lagi að fólk fari betur með hluti og að úrgangur sé nýttur sem hrá­efni í frek­ari fram­leiðslu og til verð­mæta­sköp­unar.

„Við þurfum fyrst og fremst að huga að því hvernig við getum tak­markað sem mest það sem fer inn í keðj­una, þannig að úrgang­ur­inn verði minni. En við verðum einnig að nýta hann eins vel og við getum. Við Íslend­ingar höfum verið svo­lítið hrædd við að tala um neyslu,“ segir Guð­mundur Ingi og rifjar upp orð­ræð­una fyrir hrunið 2008. „Ef ein­hver sagði orðið græðgi þá var það eitt­hvað sem ekki mátti taka sér í munn því þá var maður ekki maður með mönnum. Maður var algjör tuð­ari og aft­ur­halds­seggur; að hamla fram­förum og allt þetta. En ég held að við séum komin á aðeins annan stað núna og það er algjör­lega nauð­syn­legt að sam­band okkar og neysl­unnar sé end­ur­skoðað.“

Greinin er hluti af ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Hægt er að lesa alla skýr­ing­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina