Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

14% íslensku þjóðarinnar býr í útlöndum

Tæplega 50 þús­und íslenskir rík­is­borg­arar eru búsettir í útlöndum, eða nærri 14 pró­sent þjóð­ar­innar. Þótt meiri­hluti brott­fluttra Íslend­inga flytji aftur til lands­ins á ein­hverjum tíma­punkti þá er það regla fremur en und­an­tekn­ing að brott­fluttir Íslend­ingar séu fleiri en aðfluttir.

14% íslensku þjóðarinnar býr í útlöndum
|

Í nýút­kominni skýrslu utan­rík­is­ráð­herra um utan­ríkis- og alþjóða­mál er að finna tölur um fjölda Íslend­inga sem búsettir eru í útlöndum. Alls eru þeir 49.218 tals­ins og eru þær tölur byggðar á tölum Þjóð­skrár og Lána­sjóði íslenskra náms­manna. Langstærstur hluti þessa hóps er búsettur á Norð­ur­löndum og búa tæp­lega 30 þús­und manns í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Íslend­ingar eru einnig fjöl­mennir í Banda­ríkj­unum en þar eru um 6.800 Íslend­ingar skráðir til heim­ilis. Inni í þessum tölum eru ekki þeir fjöl­margir Íslend­ingar sem eiga fast­eignir á suð­rænum slóðum og dvelja þar hluta úr ári. Einnig þarf að taka fram að tölu­legar upp­lýs­ingar um Íslend­inga í útlöndum eru ekki ein­hlítar. Þannig ber­ast upp­lýs­ingar um and­lát oft seint og um síðir og ein­hverjir kunna að hafa tvö­falt rík­is­fang og eru jafn­vel með lítil tengsl við landið. Eru þetta til að mynda börn íslenskra rík­is­borg­ara sem fæð­ast erlendis.

Ólöf Garð­ars­dóttir, pró­fessor í félags­sögu við Háskóla Íslands, áætlar þrátt fyrir þetta að þessar tölur séu nærri lagi enda séu Íslend­ingar mjög hreyf­an­legir í sam­an­burði við aðrar þjóðir. Þannig séu Íslend­ingar tvö­falt lík­legri til að flytja á milli landa en Danir og þrisvar til fórum sinnum lík­legri en Svíar. „Það má segja að það sé orðin ákveðin flutn­ings­hefð á meðal Íslend­inga. Tíðnin hefur verið nokkuð stöðug allar götur frá 8. ára­tugnum og hefur verið um 8 til 10 af hverjum 1.000 íbúum. Hún sveifl­ast svo eftir árferði og á árunum eftir hrun var tíðni brott­fluttra Íslend­inga 15 af 1.000 íbúum,“ segir Ólöf en bendir um leið á að meiri­hluti þessa fólks skili sér aftur til Íslands á ein­hverjum tíma­punkti. Þannig eru 70 pró­sent þeirra sem flytja til útlanda flutt aftur heim innan sjö ára.

Hér má sjá hve margir Íslend­ingar búa í hvaða landi og athygl­is­vert að sjá hve margir búa í Ástralíu.

Hrunin ýta undir brott­flutn­ing
Á síð­ari hluta 20. aldar og í byrjun þeirrar 21. má greina nokkur tíma­bil þar sem brott­flutn­ingur fær­ist mjög í auk­ana, til að mynda í lok 7. ára­tug­ar­ins þegar margir Íslend­ingar freist­uðu gæf­unnar erlendis í kjöl­far hruns síld­ar­stofns­ins og mik­ils atvinnu­leysis hér á landi. Almennt helst brott­flutn­ingur í hendur við tíð­ar­far en um miðjan 10. ára­tug­inn varð tölu­verð aukn­ing sem rekja má til gild­is­töku samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið.

„Við höfum alltaf haft þessi tengsl við Danmörku og okkar mennt­uðu stéttir sóttu löngum þangað. Svo eykst það enn frekar þegar mennta­bylt­ingin hófst á 8. ára­tugnum og þá varð hóp­ur­inn enn fjöl­breytt­ari. Þó er mik­il­vægt að hafa í huga að það eru ekki ein­vörð­ungu mennta­menn sem flytj­ast erlendis. Þeir sem fóru héðan á atvinnu­leys­is­ár­unum um 1970 voru t.d. að veru­legum hluta verka­fólk. Norð­ur­lönd hafa alla jafna verið fyrsti val­kostur því þar höfum við notið allra sömu rétt­inda og á Íslandi en þær dyr opn­uð­ust líka ann­ars staðar í Evrópu með til­komu EES.“

Efna­hags­á­stand ann­ars staðar skiptir einnig máli og hefur jafn­vel haft þau áhrif að brott­flutn­ingur er minni en hann hefði ella orðið. Þannig skall olíu­kreppan á ekki löngu eftir hrun síld­ar­stofns­ins sem að lík­indum hefur hægt á brott­flutn­ingi Íslend­inga. Það sama var uppi á ten­ingnum við fjár­mála­hrunið en þar var Noregur und­an­tekn­ingin, líkt og rakið er hér til hliðar.

Óvenju margir í Ástralíu
Það vekur athygli að sam­kvæmt gögnum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins eru um 500 Íslend­ingar búsettir í Ástralíu sem er ekki beint í alfar­ar­leið fyrir Íslend­inga. Ólöf segir lík­legt að það megi rekja til brott­flutn­ing­anna undir lok 7. ára­tug­ar­ins. „Það var mikil upp­sveifla á Vest­ur­löndum á þessum tíma og víða voru lönd að sækja sér vinnu­afl að utan. Þannig sóttu Danir og Þjóð­verjar til dæmis marga Tyrki. Ástralir sótt­ust líka eftir fólki í ákveðnum greinum og Íslend­ingum var boðið að koma til Ástralíu og í mörgum til­fellum var borgað far­gjald og útvegað hús­næði og það var þá gegn skuld­bind­ingu um að vera í Ástralíu í til­tek­inn tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina