Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brexit fyrirferðamikið í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis

Utan­rík­is­ráð­herra mun í dag kynna skýrslu um stöðu Íslenskrar utan­rík­is­þjón­ustu fyrir þing­inu. Skýrslan var birt á vef þings­ins í gær en umræða um hana fer fram á á þing­fundi um klukkan tvö í dag.

Brexit fyrirferðamikið í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis
|Utan­rík­is­ráð­herra á fundið með EES-ráð­inu|Guð­laugur Þór Þórð­ar­son með Jeremy Hunt utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands.|Samráð vegna Brexit

Mikið áunnist að mati ráðherra

„Þegar ég tók við emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra á sínum tíma ein­setti ég mér að gera umbætur á íslenskri utan­rík­is­þjón­ustu svo hún yrði enn betur í stakk búin til að mæta áskor­unum sam­tím­ans,“ segir utan­rík­is­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, í inn­gangi skýrsl­unnar. Þá segir ráð­herra að hann sjái glöggt nú þegar hann skila skýrsl­unni hve mikið hafi áunn­ist í ráð­herra­tíð sinni. „Þær skipu­lags- og áherslu­breyt­ingar sem ég setti í for­gang á fyrstu vikum mínum í emb­ætti hafa þegar skilað árangri og fyr­ir­huguð for­ystu­verk­efni Íslands á alþjóða­vett­vangi eru að verða að veru­leika hvert af öðru.“

Utan­rík­is­ráð­herra á fundið með EES-ráð­inu

Framlag Íslands vel metið
„Það hefur komið mér þægi­lega á óvart hversu vel fram­lag okkar á alþjóða­vísu er metið. Til okkar er horft þegar fjallað er um mann­rétt­indi um allan heim, ekki síst jafnan rétt kvenna og karla. Íslend­ingar hafa um ára­bil verið í far­ar­broddi þeirra ríkja sem nýta auð­lindir hafs og lands með sjálf­bærum hætti og frá þeirri stefnu verður ekki hvikað. Bætt hefur verið um betur með tak­marki rík­is­stjórn­ar­innar um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040, enda höfum við for­sendur til að verða einnig leið­andi á því sviði,“ segir í skýrsl­unni.

Skýrslan er ítar­leg og fer yfir sam­skipti Íslands við mik­il­væg­ustu við­skipta­þjóðir auk þess að lista flest verk­efni utan­rík­is­þjón­ust­unnar.

Samráð vegna Brexit

Brexit for­gangs­verk­efni
Úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu er eitt viða­mesta verk­efni utan­rík­is­þjón­ust­unnar um þessar mundir. Ítarlega er fjallað um vinnu vegna þess í sér­stökum kafla skýrsl­unnar. „Frá því að Bretar kusu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní 2016 hefur umfangs­mikið starf verið unnið innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar og víðar í stjórn­kerf­inu til að gæta hags­muna Íslands vegna Brexit. Útganga Bret­lands úr ESB hefur í för með sér að samn­ingar Íslands við ESB ná ekki lengur yfir Bretland en þar skiptir samn­ing­ur­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) mestu máli. Umfangs­mikil við­skipti og náin sam­skipti eru á milli Íslands og Bret­lands á mörgum sviðum sem grund­vall­ast að miklu leyti á EES-samn­ingnum og öðrum samn­ingum við ESB.“

Vinnan hefur að mestu gengið út á að tryggja að útgöngu­skil­málar sem Bretar hafa samið um við ESB gildi um Ísland og önnur EFTA-ríki innan EES. „Þá hefur mikil vinna farið í að tryggja kjarna­hags­muni ef svo færi að Bretar gengju úr ESB án samn­ings. Að sama skapi hefur víð­tækt und­ir­bún­ings­starf verið unnið til að skil­greina hags­muni og mark­mið Íslands þegar kemur að fram­tíð­ar­sam­skiptum við Bretland.“ Á meðan Bretland er aðild­ar­ríki ESB hafa þeir ekki umboð til að gera fram­tíð­ar­samn­inga við önnur ríki. Í skýrsl­unni kemur fram að sam­skipti Íslands og Bret­lands í fram­tíð­inni muni taka mið af sam­skiptum ESB og Bret­lands. Þær samn­inga­við­ræður hefj­ast ekki form­lega fyrr en eftir útgöngu lands­ins.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son með Jeremy Hunt utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands.

Um 3000 Íslend­ingar búa í Bret­landi
Ráðherra segir í skýrsl­unni að Bretland sé meðal mik­il­væg­ustu vina­þjóða Íslands og einn af stærri mörk­uðum fyrir útflutn­ings­vörur. „Það er því for­gangs­verk­efni íslenskra stjórn­valda að tryggja að tengsl Íslands og Bret­lands verði áfram sterk og að íslenskir aðilar hafi greiðan aðgang að Bret­landi og breskum mörk­uðum, eins og þeir hafa notið í krafti EES-samn­ings­ins og ann­arra samn­inga Íslands við ESB.“

Brexit stöðugt á dag­skrá
Í skýrsl­unni kemur fram að mál­efni Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins séu stöðugt á dag­skrá. „Frá árs­byrjun 2017 hefur utan­rík­is­ráð­herra átt 17 fundi með breskum ráð­herrum og þing­mönnum, þar af 10 á und­an­förnu ári, og emb­ætt­is­menn ríkj­anna átt um 300 fundi. Meðal funda utan­rík­is­ráð­herra und­an­farið má nefna fundi með Dominic Raab, þáver­andi útgöngu­mála­ráð­herra Bret­lands, Liam Fox, utan­rík­is­við­skipta­ráð­herra Bret­lands, og Michael Gove, ráð­herra umhverfis-, byggða- og mat­væla­mála, í London síð­ast­liðið haust. Einnig átti utan­rík­is­ráð­herra fund með Jeremy Hunt, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, fyrr um haustið. Utan­rík­is­ráð­herra átti annan tví­hliða fund með Jeremy Hunt í mars 2019 þar sem und­ir­ritað var sam­komu­lag á sviði örygg­is­mála. Mikill sam­hljómur er um að tryggja áfram­hald­andi góð sam­skipti Íslands og Bret­lands og tryggja að hag­stæð við­skipti geti haldið áfram. Þá hafa ráð­herrar EFTA-ríkj­anna innan EES fundað reglu­lega með Michel Barnier, aðal­samn­inga­manni ESB, í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og utan­rík­is­ráð­herra átt tví­hliða fundi með öðrum úr fram­kvæmda­stjórn ESB. Þá ber Brexit iðu­lega á góma á fundum með evr­ópskum ráða­mönnum.

Ríkulegt sam­ráð hefur verið átt við Alþingi, bæði í umræðum í þing­sal og í utan­rík­is­mála­nefnd. Full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafa mætt tíu sinnum fyrir nefnd­ina frá því í árs­byrjun árið 2017 og þar af hefur utan­rík­is­ráð­herra komið fyrir nefnd­ina fimm sinnum. Þá hefur verið haft sam­ráð við íslenska hags­muna­að­ila í gegnum vinnu­hópana, eins og greint er frá hér að ofan, og á fjöl­sóttum upp­lýs­inga­fundum sem utan­ríkis- ráðu­neytið hefur staðið fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina