Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áhugaleysið á árásunum er sláandi

Rit­stjóri Gest­gjafans, sem var stödd í Sri Lanka, furðar sig á áhuga­leysi umheims­ins á mann­skæðum hryðju­verka­árásum.

Áhugaleysið á árásunum er sláandi
|Mæðgurnar Viktoría og Hanna í upp­hafi ferðar.
Mæðgurnar Viktoría og Hanna í upp­hafi ferðar.

„Mér finnst þetta bara sorg­legt, en ef ég á að segja eins og er þá held ég að hluti vand­ans sé hvað við á Vest­ur­löndum getum verið sjálf­miðuð,“ segir Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir, rit­stjóri Gest­gjafans, um fréttir þess efnis að bruni Notre Dame veki sjö­faldan áhuga Netverja á Vest­ur­löndum á við hryðju­verkin í Sri Lanka, sam­kvæmt nýjum upp­lýs­ingum frá Google.

Hanna var ásamt dóttur sinni Viktoríu Kjart­ans­dóttur stödd í Negombo í Sri Lanka dag­inn áður en þar var framin skelfi­leg hryðju­verka­árás í kirkj­unni með þeim afleið­ingum að 67 manns lét­ust.

Var árásin hluti af röð skipu­lagðra sprengju­árása sem gerðar voru í Sri Lanka, en talið er að minnst 370 manns hafi látið lífið í þeim og fleiri hund­ruð særst.
Virðast árás­irnar hafa beinst gegn kristn­u fólki og ferða­mönn­um, þar sem hótel og kirkjur í land­inu voru helstu skot­mörkin, en árás­irnar eru þær mann­skæð­ustu sem hafa verið gerðar í Suður og Suð­austur-Asíu.

Hanna segir að í ljósi fyrr­greindra upp­lýs­inga frá Google sé áhuga­leysi Vest­ur­landa­búa á árás­unum í Sri Lanka í raun og veru slá­andi. Vissu­lega hafi mikil menn­ing­ar­verð­mæti farist í bruna Notre Dame í París, kirkju sem hún kveðst sjálf halda mikið upp á, en kirkj­una sé alltaf hægt að end­ur­reisa. Manns­lífin sem týnd­ust í Sri Lanka komi hins vegar aldrei aftur.

Spurð hvernig þeim mæðgum líði eftir árás­irnar segir Hanna að þær séu enn að með­taka þetta allt saman. „Það er margt sem er búið að fara í gegnum huga minn. Ég sé fyrir mér and­litin á börnum og fólki sem við hittum og mér finnst skrítið að hafa verið svona nálægt þessu,“ segir Hanna, sem þakkar Viktoríu dóttur sinni fyrir að þær skyldu hafa ferð­ast frá Sri Lanka til Malda­ví­eyja dag­inn áður en árás­irnar voru gerðar, því sjálf hafi hún viljað fresta för­inni um einn dag.

„Það er margt sem er búið að fara í gegnum huga minn. Ég sé fyrir mér and­litin á börnum og fólki sem við hittum og mér finnst skrítið að hafa verið svona nálægt þessu.“

Þær mæðgur eru nú staddar á Malda­ví­eyjum og seg­ist Hanna ætla að ráð­færa sig við ferða­skrif­stof­una þeirra meðan á dvöl­inni stendur og fylgj­ast vand­lega með fram­vindu mála.

Sjá einnig:Notre Dame brun­inn vekur sjö­faldan áhuga vest­ur­landa­búa á við hryðju­verkin í Sri Lanka

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bruninn í Notre-Dame

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi