Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sendiherra Íslands í París: „Sorglegt að sjá Notre Dame brenna”

Frakk­lands­for­seti hefur heitið að kirkjan verði end­ur­reist í allri sinni dýrð. Auð­kýf­ingar leggja millj­ónir evra í verkið.

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands hefur heitið því að Notre Dame kirkjan í París verði end­ur­reist. Hefur Macron kallað eftir aðstoð hæfleik­a­rík­asta fólks við end­ur­reisn kirkj­unnar. Söfn­unar­á­tak á að hefj­ast í dag og hafa tveir franskir auð­kýf­ingar þegar gefið yfir­lýs­ingu um að þeir ætli að leggja til fé endu­reisnar kirkj­unni. Það eru þeir Bernard Arnault, sem ætlar að setja 200 millj­ónir evrur í verkið og Francois-Henri Pinault, fam­kvæmda­stjóri félags­ins Kering sem rekur m.a. Gucci og Yves Saint Laurent, sem ætlar að setja 100 millj­ónir í það. Þá hafa miklir fjár­munir þegar safn­ast en þeir hafa borist víðs vegar að úr heim­inum.

„Þetta er hryll­ingur”
Í gær­kvöld þegar brun­inn kom upp í Notre Dame ræddi Mannlíf við Íslend­inga sem eru búsettir í París en þeir voru harmi slegnir vegna elds­voð­ans. Kristín Jóns­dóttir, sem hefur verið búsett í París í þrjá­tíu ár og er þar með skipu­lagðar ferðir um borg­ina m.a. fyrir Íslend­inga, var í áfalli. „Þetta er hryll­ingur,” sagði Kristín um brun­ann en Notre Dame hefur verið einn af vin­sælli við­komu­stöð­unum í ferð­unum sem hún hefur boðið upp á.

Vera Páls­dóttir ljós­mynd­ari sem er sömu­leiðis búsett í París sagði í sam­tal við Mannlíf að fólk væri harmi slegið. „Kirkjan í Saint German brann fyrir ekki löngu. Nú brennur saga Frakk­lands. Fólk grætur.”

Heims­byggðin harmi slegin
Síðustu eld­arnir í Notre Dame kirkj­unni voru slökktir í  morgun, en slökkvi­lið Parísar hafði staðið í ströngu við að slökkva þá. Tókst slökkvi­lið­inu að bjarga stórum hluta 850 ára gömlu kirkj­unnar og tveimur turnum hennar og ýmsum merkum munum úr kirkj­unni. Þak Notre Dame hrundi aftur á móti og ekki liggur enn fyrir hvað skemmd­irnar eru miklar. Þá eru upp­tök elds­ins óljós á þess­ari stundu en talið er að þau megi rekja til end­ur­bóta á kirkj­unni.

Fjöldi Íslend­inga hefur lýst yfir sorg á sam­fé­lags­miðlum vegna brun­ans, þar á meðal Kristján Andri Stef­áns­son sendi­herra Íslands í París, sem sagði í gær á twitter að sorg­legt væri að sjá Notre Dame brenna, og sömu­leiðis fólk um allan heim. Í morgun sagði m.a. Frans Páfi að hugur sinn væri hjá Frökkum vegna brun­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bruninn í Notre-Dame

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas