Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páskaeggin hækkað í verði á hverju ári frá 2014

Verð á páska­eggjum hefur hækkað í verði á hverju ári frá árinu 2014 og er hækk­unin aldrei meiri en í ár. Hins vegar hafa laun hækkað tölu­vert umfram hækkun páska­eggja á þessu sama tíma­bili þannig að lands­menn geta keypt fleiri páska­egg fyrir launin sín en áður.

Páskaeggin hækkað í verði á hverju ári frá 2014
|

Þetta kemur fram í úttekt grein­ing­ar­deildar Arion banka. Í grein­ing­unni er stuðst við gögn úr verð­lagskönnun ASÍ á sjö völdum teg­undum páska­eggja á tíma­bil­inu 2014 til 2019.

Grein­ingin leiðir í ljós að verð á öllum teg­undum páska­eggja hefur hækkað á tíma­bil­inu. Und­an­tekn­ingin á þessu er Góu páska­egg númer 5 sem hefur lækkað í verði frá árinu 2014. Er lík­leg skýr­ing sú að það páska­egg hafi verið á til­boðs­verði á þeim tíma sem ASÍ gerði verð­lagskönnun sína. Í öðrum til­fellum nemur hækk­unin á bil­inu 12 til 25 pró­sent.

Líklegar skýr­ingar á hækkun páska­eggja eru sam­blanda af miklum launa­hækk­unum á tíma­bil­inu, hækkun á heims­mark­aðs­verði á súkkulaði og veik­ari króna.

Sé aðeins litið til verð­sam­an­burðar á milli áranna 2018 og 2019 hækka páska­eggin um 8 pró­sent eða meira. Það páska­egg sem hækkar mest er númer 5 frá Nóa Siríusi sem hækk­aði um 11,9 pró­sent í verð­könnun ASÍ.

Hins vegar ber að líta til þess að frá árinu 2014 hafa laun á Íslandi hækkað um 43 pró­sent frá því í febr­úar 2014. Þetta þýðir að laun hafa lækkað umtals­vert fram yfir verð­lag á páska­eggjum þannig að lands­menn geta keypt fleiri páska­egg fyrir launin sín en áður. Eins og segir í dæmi grein­ing­ar­deild­ar­innar:

„Hraunegg Góu hefur hækkað um tæp­lega 24% frá árinu 2014, út frá verð­könnun ASÍ. Á sama tíma hafa laun hækkað um 43%, sem sam­svarar tæp­lega 16% kaup­mátt­ar­aukn­ingu í Hrauneggjum á fimm árum!“

Sé hins vegar ein­göngu horft til áranna 2018 og 2019 blasir við önnur mynd. Laun hafa hækkað um 5,6 pró­sent milli páska­há­tíða, en verð á páska­eggjum hefur hækkað um 8 pró­sent eða meira. Það þýðir að hinn hefð­bundni launa­maður getur keypt færri páska­egg fyrir launin sín en hann gat í fyrra.

„Höggið er þyngst fyrir aðdá­endur rjómasúkkulaðis Nóa Siríusar, þar sem kaup­máttur mældur í hefð­bundnum Nóa páska­eggjum númer 5 hefur minnkað um 5,6% milli ára. Kaup­mátt­arrýrn­unin í Nóa páska­eggjum númer 4 er mun minni og því gætu rjómasúkkulað­isunn­endur sem vilja „besta“ pásk­ana fjár­hags­lega ,mögu­lega sætt sig við minna páska­egg í þetta skiptið. Þeir neyt­endur sem duttu niður á til­boðs­verð á Góu páska­eggjum númer 5 geta hins­vegar glaðst, enda náð að læsa inni 13% kaup­mátt­ar­aukn­ingu.“

Hér að neðan gefur að líta á línu­rit sem sýnir verð­þróun á ein­stökum teg­undum páska­eggja ann­ars vegar og launa­þró­unar hins vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina