Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skipulögð glæpastarfsemi sem teygir anga sína um allan heim

Heim­ilda­myndin Stolin list eða Nefer­titi The Lonely Queen fjallar um stöð­una á menn­ing­ar­legum verð­mætum sem hafa verið stolin frá upp­runa­þjóðum og komið fyrir á söfnum fyrrum nýlendu­velda. Myndin hlaut góðar við­tökur þegar hún var heims­frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð í Grikk­landi á dög­unum.

Skipulögð glæpastarfsemi sem teygir anga sína um allan heim
|||adsf

„Við erum þarna að fjalla um stöð­una á þjóða­ger­semum sem hafa verið teknar með vafasömum hætti og eru nú til sýnis á stórum stöfnum eins og British Museum og Louvres. Verðmæti sem gamlar nýlendu­þjóð­irnar neita að skila upp­runa­þjóð­unum,“ útskýrir Örn Marinó Arn­ars­son hjá Markell Productions sem stendur að baki gerð mynd­ar­innar, í sam­vinnu við RÚV og grísku sjón­varps­stöðv­arnar OTE og ERT.

„Á eftir alþjóð­legri eit­ur­lyfja- og vopna­sölu er þetta hrika­lega stórt dæmi. Svarti mark­að­ur­inn er alveg gígantískur.

Að hans sögn er þetta umfangs­mikið umfjöll­un­ar­efni enda sé skipu­lögð glæp­a­starf­semi í kringum stolna list mikil, í raun mun meiri en hann hafi gert sér grein fyrir í upp­hafi. „Á eftir alþjóð­legri eit­ur­lyfja- og vopna­sölu er þetta hrika­lega stórt dæmi. Svarti mark­að­ur­inn er alveg gígantískur. Í kjöl­far arab­íska vors­ins hefur til að mynda verið stans­laus straumur af munum frá löndum eins og Egypta­landi og Sýrlandi, bæði „org­inal“ stolnum hlutum og fölsuðum sem hafa mikið til verið seldir til Banda­ríkj­anna, Evrópu og Kína, oft í skiptum fyrir vopn og eit­ur­lyf. Fals­an­irnar eru svo góðar að fólk veit hrein­lega ekki hvort það er að kaupa ósvikna muni eða ekki,“ lýsir hann og bætir við að þessi glæp­a­starf­semi hafi auð­vitað valdið gríð­ar­legu tjóni, ekki aðeins fyrir þjóðir sem hafa verið rændar eins og í Egypta­landi, Írak, Líbíu og Sýrlandi, heldur einnig fyrir forn­leifa­fræð­inga sem vilja rann­saka mun­ina. „Vanda­málið er bara að þessi heimur er svo dul­inn að það virð­ist vera erfitt, í raun bara ógern­ingur að upp­ræta starf­sem­ina.“

Mafían að verki
Í ljósi þess um hversu umsvifa­mikla starf­semi sé að ræða segir Örn tökur hafa farið fram víða um heim; í Grikk­landi, á Íslandi og ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum, í Bret­landi, Þýska­landi, Egypta­landi, Sýrlandi og víðar þar sem hann og Þorkell Harð­ar­son, sam­starfs­maður hans, söfn­uðu heim­ildum. Eftir það hafi tekið við tveggja ára vinna sem fór í að full­gera mynd­ina og þrjá þætti sem hafa verið gerðir upp úr efn­inu fyrir sjón­varp.

Spurður hvort þeir félagar hafi lent í ein­hverjum hættum á þessum ferða­lögum, segir Örn að þeir hafi bless­un­ar­lega sloppið við allt slíkt. Hins vegar hafi fljót­lega komið í ljós að þeir sem standi á bak­við glæp­a­starf­sem­ina séu langt frá því að vera ein­hver lömb að leika sér við, því þar sé maf­ían meðal ann­ars að verki.

En vitið þið hvort þessi glæp­a­starf­semi teygi sig til Íslands? Var eitt­hvað í ykkar rann­sóknum sem gaf það til kynna? „Það er erfitt að segja til um það,“ segir hann. „Þetta er nátt­úru­lega allt svo falið.“

Vakti athygli í Grikklandi

„Grikkj­unum … finnst að Bretar eigi að skila þeim Parthenon-högg­mynd­unum eins og þær leggja sig. Það er þeirra við­horf en stundum nægir þessum þjóðum bara að fá lyk­il­verkin heim.“

Samkvæmt Erni hafa myndin og þætt­irnir engu að síður sterka teng­ingu við Ísland þar sem í þeim er meðal ann­ars fjallað um íslensku hand­ritin. „Já, við komum inn á þau en í dag er helm­ingur þeirra á Íslandi og helm­ingur í Danmörku og þjóð­irnar tvær hafa verið að stúd­era þau saman. Sem sýnir að þessar fyrr­ver­andi nýlendu­þjóðir þurfa auð­vitað ekk­ert að sitja á verð­mætum ann­arra þjóða. Það er vel hægt að semja um þessa hluti og eiga í góðu sam­starfi,“ segir hann og bætir við að sá þáttur hafi einmitt vakið athygli þegar Stolin list var heims­frum­sýnd á hinni kunnu heim­ilda­mynda­há­tíð í Þessa­lóníku í Grikk­landi í mars.

„Grikkj­unum fannst þetta ánægju­legt. Þeir voru reyndar líka hissa þar sem þeim finnst að Íslend­ingar eigi að fá öll hand­ritin. Rétt eins og þeim finnst að Bretar eigi að skila þeim Parthenon-högg­mynd­unum eins og þær leggja sig. Það er þeirra við­horf en stundum nægir þessum þjóðum bara að fá lyk­il­verkin heim.“

Myndin hlaut góðar við­tökur í Grikk­landi og segir Örn að sýn­ing­ar­rétt­ur­inn að henni hafi þegar verið seldur til þriggja sjón­varps­stöðva. Nú sé verið að skoða fram­haldið en greini­legt sé að mik­ill áhugi sé á mynd­inni.

Aðalmynd: Örn Marinó Arn­ars­son hjá Markell Productions 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina