Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eflaust ellimerki að kjósa fræðandi bækur

Gunn­laugur Bragi Björns­son, vara­borg­ar­full­trúi og for­maður Hinsegin daga, kýs bækur sem veita inn­sýn í sam­fé­lag og sögu.

Eflaust ellimerki að kjósa fræðandi bækur
|

„Í sann­leika sagt þá les ég allt of lítið og er alltaf að reyna að taka mig á í þeim efnum enda hef ég mjög gaman af lestri góðra bóka,“ segir Gunn­laugur Bragi.

„Fyrst eftir að ég lauk háskóla­námi fannst mér til­hugs­unin um meiri lestur svo­lítið erfið og því las ég einna helst auð­lesna krimma eða annað í þeim dúr á ferða­lögum. Á síð­ustu árum hef ég hins vegar sífellt meiri þörf fyrir að lesa fræð­andi bækur, bækur sem veita mér nýja þekk­ingu og betri inn­sýn í sam­fé­lag og sögu. Eflaust er það ein­hvers konar elli­merki en ég tek því fagn­andi. Bækurnar sem koma strax upp í hug­ann sem þær áhrifa­mestu sem ég hef lesið eru einmitt bækur af þessum toga.“

Sláandi frásögn

„Fyrst ber þar að nefna tríló­gíu hins sænska Jonas Gardell, Þerraðu aldrei tár án hanska. Verandi virkur þátt­tak­andi í bar­átt­unni fyrir áfram­hald­andi sýni­leika og auknum rétt­indum hinsegin fólks í sam­fé­lag­inu finnst mér afar mik­il­vægt að fræð­ast um fyrri tíma. Sagan má aldrei gleym­ast en ég trúi því líka að hluta svars­ins við því hvert við stefnum sé einmitt að finna í því hvaðan við erum að koma.

Og það er einmitt það sem þessi tríló­gía gerir. Þarna er á ferð slá­andi fyrstu handar frá­sögn um unga menn sem finna ást í örmum hvor ann­ars snemma á níunda ára­tugnum. Þarna spila m.a. inn í trú­ar­brögð, for­dómar, ein­mana­leiki og sorg en ekki síst HIV-far­ald­ur­inn. Upp úr bók­unum þremur voru svo gerðir sjón­varps­þættir sem m.a. vöktu mikla athygli á RÚV fyrir nokkrum árum.“

Saga sem gleymist seint

„Önnur bók sem hafði mikil áhrif á mig og hefur fylgt mér allar götur síðan er bókin Menn­irnir með bleika þrí­hyrn­ing­inn eftir Heinz Heger sem kom út árið 1972 en í íslenskri þýð­ingu árið 2013. Þar er sögð saga Josef Kohout sem árið 1939 var hand­tek­inn af Gestapo, leynilög­reglu nas­ista, ákærður fyrir alvar­legan saur­lifnað og dæmur til þrælk­unar.

Þar var Kohout einn af þús­undum sam­kyn­hneigðra karla sem látnir voru bera bleikan þrí­hyrn­ing í fanga­búðum nas­ista. Sárafátt hefur varð­veist sem lýsir aðbún­aði hinsegin fólks í fanga­búð­unum en Kohout lifði þrælk­un­ina af og í dag er saga hans lík­lega fræg­ust þeirra sem lýsa hlut­skipti homma í Þriðja ríki Hitlers. Átak­an­leg frá­sögn sem ég spændi í mig í flugi fyrir nokkrum árum og hefur átt sér­stakan stað í hjarta mér síðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina