Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Færeyingar stíga varlega til jarðar á meðan Íslendingar eru djarfari

Færeyski raf­tón­list­ar­mað­ur­inn Janus Rasmus­sen var að senda frá sér sína fyrstu sóló­plötu, Vín. Platan inni­heldur fal­lega og melódíska raf­tón­list en er með broddi.

Færeyingar stíga varlega til jarðar á meðan Íslendingar eru djarfari

„Platan var í vinnslu í eitt og hálft ár á milli þess sem ég var að spila úti með Kiasmos og að plötu­snúð­ast. Það var ofboðs­lega krefj­andi ferli,“ segir Janus og bætir við að hann hafi fengið mik­inn stuðn­ing frá æsku­vini sínum tón­list­ar­mann­inum Sakaris sem býr einnig á Ísland. Janus segir að vin­irnir hafi byrjað að grúska í tón­list þegar þeir voru krakkar en faðir Sakaris hafi átt upp­töku­ver.

„Við fengum að prófa okkur áfram og leika okkur með hljóð­færi og græjur sem smá­strákar. Þannig byrj­aði það og var ekki aftur snúið. Við stofn­uðum síðan hverja hljóm­sveit­ina á fætur annarri og erum báðir starf­andi tón­list­ar­menn í dag.“

Janus kemur frá Þórshöfn í Færeyjum en flutti til Íslands árið 2004 með fær­eyskri hljóm­sveit sem hét Speaker. Hljóm­sveitin ferð­að­ist um allt land og spil­aði meðal ann­ars á lista­há­tíð­inni Lunga þar sem Janus kynnt­ist með­limum Bloodgroup og gekk í kjöl­farið til liðs við sveit­ina. „Þá var ég með annan fót­inn á Íslandi og hinn í Færeyjum í nokkur ár þar til ég flutti end­an­lega til Íslands árið 2008 og hef búið hér síðan,“ segir hann.

Var næstum því hent af Hróarskeldu

Janus segir að margt skemmti­legt hafi komið upp á ferl­inum og nefnir atvik með umræddri hljóm­sveit Bloodgroup þegar hún kom fram á Hró­arskeldu fyrir nokkrum árum. „Ég man að umgjörðin var öll mjög alvar­leg og Hallur, for­sprakki Bloodgroup, þurfti að skrifa undir alls­konar skil­mála áður en við fengum að spila,“ rifjar hann upp.

Okkur var næstum því hent af hátíð­inni en ég baðst fal­lega afsök­unar og við fengum að vera áfram.

„Einn af skil­mál­unum var sá að við máttum ekki stökkva inn í þvög­una af svið­inu. En ein­hvern veg­inn fór það alveg fram hjá mér að það væri bannað. Tón­leik­arnir gengu eins og í sögu, við öll í stuði og ég tók upp á því í hita leiks­ins að stökkva fram af og „crowdsurfa.“ Restin af hljóm­sveit­inni horfir síðan á mig fljóta um í áhorf­enda­sk­ar­anum og var í hálf­gerðu sjokki. Skipu­leggj­endur Hró­arskeldu brjál­uð­ust. Okkur var næstum því hent af hátíð­inni en ég baðst fal­lega afsök­unar og við fengum að vera áfram.“

Auðveldara að vera tónlistarmaður á Íslandi

Þrátt fyrir að hafa komið að mörgum tón­list­ar­verk­efnum á Íslandi seg­ist Janus þó ekki hafa gleymt því hversu mikið er af hæfi­leik­a­ríku tón­list­ar­fólki í Færeyjum. Þannig hafi hann og fær­eyska tón­list­ar­konan Guðrið Hans­dóttir, úr popp-hljóm­sveit­inni Byrta, unnið að einu tón­list­ar­verk­efni saman og það hafi verið með því skemmti­leg­asta sem hann hafi gert hingað til. „Að fá að vinna aftur á fær­eysku eftir að hafa búið á Íslandi svona lengi var frá­bært. Gaman að búa til fær­eyskt popp fyrir fær­eyskan markað.“

Færeyski tón­list­ar­mað­ur­inn Janus Rasmus­sen hefur búið á íslandi í 15 ár og unnið að ýmsum tón­list­ar­verk­efnum með þekktum nöfnum bæði hér heima og erlendis.

Að sögn Janusar er lista­senan í Færeyjum í sífeldum blóma. Þar sé margt virki­lega hæfi­leik­a­ríkt og flott tón­list­ar­fólk. Hins vegar sé tölu­vert erf­ið­ara að starfa ein­göngu sem tón­list­ar­maður í Færeyjum en á Íslandi. Það sé ein ástæða þess að sumt fær­eyskt tón­list­ar­fólk sest að á Íslandi, líkt og hann sjálfur.

„Þar er mun smærri mark­aður og erfitt að tak­marka sig við eina ákveðna tón­list­ar­stefnu,“ útskýrir hann og bætir við að þjóð­irnar tvær séu að mörgu leyti svip­aðar en Fær­ey­ingar stígi þó örlítið var­lega til jarðar á meðan Íslend­ingar séu djarfari. „Hér er síðan líka stút­fullt af skap­andi fólki. Ísland er nógu stórt til þess að rýma allt þetta hæfi­leik­a­ríka fólk en nógu lítið til þess að auð­velt sé að sækja í það fólk sem maður vill vinna með.“

Þess má geta að fram undan hjá Janusi er tón­leika­ferða­lag með Christian Löffler.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina