Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Kannski ég endi sem eltihrellir“

Sköp er heiti á nýrri hreyfi­mynda­seríu þar sem kynjak­lisjur í kvik­myndum eru krufnar til mergjar.

„Kannski ég endi sem eltihrellir“
||
Fyrsti þáttur ser­í­unnar, Man Pain eða Karl-ang­ist, fjalli þannig um hina þjáðu karl­hetju í hasar­myndum, klisju sem gangi út það að hetjan glímir við djúp­stæðan innri sárs­auka í kjöl­far ást­vina­missis og hvernig hún tekst á við hann með því að leita hefnda.

Fyr­ir­tækið Freyja Filmwork hefur hafið fram­leiðslu á nýrri vefseríu sem kall­ast Sköp, en þær snú­ast um per­són­urnar Big Dogg og Thor­meister sem hefur til­hneig­ingu til þess að birt­ast upp úr þurru í lífi Big Daggar og útskýra fyrir henni kynjak­lisjur í kvik­myndum. Höfundar þátt­anna eru Dögg Mós­es­dóttir og Þórey Mjall­hvít H. Ómars­dóttir sem byggja per­són­urnar á sjálfum sér. „Í stuttu máli sagt erum að taka fyrir kynj­aðar staðalí­myndir í kvik­myndum,“ segir Þórey í sam­tali við Mannlíf. „Beina sjónum að hverri ster­íótýp­unni á fætur annarri, ein­fald­lega í þeim til­gangi að afhjúpa ruglið sem við­gengst í þáttum og bíó­myndum.“

Þórey segir að fyrsti þáttur ser­í­unnar, Man Pain eða Karl-ang­ist, fjalli þannig um hina þjáðu karl­hetju í hasar­myndum, klisju sem gangi út það að hetjan glímir við djúp­stæðan innri sárs­auka í kjöl­far ást­vina­missis og hvernig hún tekst á við hann með því að leita hefnda.

„Þetta er algengt þema í hasar­myndum þar sem sárs­auk­inn er bæði hvat­inn að ferða­lagi hetj­unnar og um leið not­aður til að rétt­læta gríð­ar­lega ofbeld­is­fulla hegðun hennar. Við sjáum þetta t.d. í annarri hverri Bruce Willis-mynd. Í fyrsta þætt­inum fjöllum við um þessa týpu og í næstu þáttum verða svo aðrar týpur sýndar í spaugi­legu ljósi.“

„Í stuttu máli sagt erum að taka fyrir kynj­aðar staðalí­myndir í kvik­myndum … ein­fald­lega í þeim til­gangi að afhjúpa ruglið sem við­gengst í þáttum og bíó­myndum.“

Spurð hvernig hug­myndin að ser­í­unni hafi kviknað seg­ist Þórey vera búin að velta kynjak­lisjum í kvik­myndum fyrir sér lengi. „Og ég er langt frá því að vera ein um það. Til eru heilu rann­sókn­irnar og vef­síð­urnar sem eru helg­aðar þessu við­fangs­efni. Þar sem staðalí­myndum af þessu tagi er velt upp og þeim gefin heiti.

Þegar ég fór að ræða þetta við Dögg varð hún mjög áhuga­söm þar sem hún kann­að­ist sjálf ekki við öll hug­tökin og það varð til þess að við ákváðum að gera seríu byggða á okkur sjálfum, þ.e. þar sem hún spyr ýmissa spurn­inga og ég svara. Ég er s.s. hálf­gert upp­fletti­rit í þátt­unum og verð í fram­rás þeirra svo upp­á­þrengj­andi að ég birt­ist meira að segja heima hjá henni að nóttu til. Þannig að hver veit, kannski ég endi sem elti­hrellir í anda Single White Female, með vísan í aðra klisju,“ segir Þórey og hlær.

 Heilandi að fjalla um erf­iða hluti

Þórey Mjall­hvít og Dögg Moses­dottir.

Þórey og Dögg hafa unnið saman að kvik­mynda­verk­efnum um nokk­urt skeið og stofn­uðu ásamt tveimur öðrum Freyju Filmwork fyrir nokkrum árum, fyr­ir­tæki sem hefur það yfir­lýsta mark­mið að jafna hlut kynj­anna bæði fyrir framan og aftan mynda­vél­ina. „Sem þýðir að við ráðum konur í alls konar störf tengd fram­leiðsl­unni og reynum að storka alls konar kynj­uðum ster­íótýpum í okkar hand­rita­skrifum,“ útskýrir Þórey.

Hún segir að ser­ían Sköp sé ekki eina verk­efnið í þeim anda sem fyr­ir­tækið er nú með í vinnslu. „Við erum t.d. að þróa hand­rit að þáttum sem kall­ast Gelgjur og fjallar um stelpur í bæ úti á landi sem taka þátt í tón­list­ar­keppni. Sagan er laus­lega byggð á okkur sjálfum þar sem önnur per­sónan er utan af landi, eins og Dögg, og hin per­sónan missir móður sína ung að aldri, rétt eins og ég, og flytur í sveit­ina og lendir þar upp á kant við allt og alla. Þetta er ekki alveg okkar saga en hún er samt svo­lítið sjálfsævi­sögu­leg.“

Aðspurð hvort það sé ekki erfitt að fjalla um svona per­sónu­lega hluti segir Þórey að vissu­lega geti reynt á að skrifa um erf­iða reynslu. „Auðvitað getur það verið sárt en það getur líka verið heilandi. Gefið manni ákveðna úrlausn ef svo má segja,“ lýsir hún. „Ég vill samt taka skýrt fram að Gelgjur er ekki dramat­ísk sería. Þvert á móti er stefnan að hafa hana fyndna. Enda er húmor eitt besta tæki sem völ er á til að koma ádeilu eða alvar­legum skila­boðum á fram­færi. Við erum svo­lítið að fara þá leið, bæði í Gelgjum og Sköpum.“

Fyrsta þátt­inn af Sköpum er hægt að nálg­ast á patreon.com, en þar stendur yfir hóp­fjár­mögnun fyrir þætt­ina.

Aðalmynd / Kristinn Magn­ús­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina