Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kröfuhafar WOW skoða lagalega stöðu sína

Stjórn­endur WOW gera nú loka­til­raun í sam­vinnu við kröfu­hafa til þess að bjarga rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Sam­göngu­stofa hefur fyr­ir­tækið undir nánu eft­ir­liti og tvær af 11 flug­vélum WOW hafa nú verið kyrr­settar, önnur í Montreal og sú síð­ari á Kúbu.

Kröfuhafar WOW skoða lagalega stöðu sína

Fyr­ir­tækið rær nú líf­róður og freista stjórn­endur flug­fé­lags­ins þess að bjarga því frá gjald­þroti. Björg­un­ar­að­gerð WOW felst meðal ann­ars í því að kröfu­hafar fyr­ir­tæk­is­ins sem komu inn í skulda­bréfa­út­boði síð­ast­liðið haust breyti skuldum sínum í hlutafé. Hins­vegar þarf að tryggja nægt lausafé til að halda rekstr­inum gang­andi, greiða starfs­fólki laun nú um mán­að­ar­mótin og koma í veg fyrir að fleiri flug­vélar fyr­ir­tæk­is­ins verði kyrr­settar.

Voru skuldabréfaeigendur blekktir?

Á sama tíma og kröfu­hafar WOW hafa örlög fyr­ir­tæk­ins í hendi sér, þar sem skuldum kann að vera breytt í hlutafé, þá skoða aðilar meðal kröfu­hafa flug­fé­lags­ins nú laga­lega stöðu sína, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Sænska fjár­mála­fyr­ir­tækið Pereto var umsjón­ar­að­ili skulda­bréfa­út­boðs fyr­ir­tæk­is­ins á haust­mán­uðum 2018, þar sem um 50 millj­ónum evra var safnað til að tryggja rekstr­arfé til næstu mán­aða. Vext­irnir sem WOW sam­þykkti að greiða af skulda­bréf­unum voru þeir hæstu sem nokk­urt flug­fé­lag í Evrópu hefur greitt und­an­farin miss­eri, níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti, sem end­ur­speglar veika fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs þá skoða kröfu­hafar nú laga­legu stöðu sína í mál­inu þar sem upp­lýs­inga­gjöf fyr­ir­tæk­is­ins og umsjón­ar­að­ila útboðs skulda­bréf­anna liggur til grund­vallar. Ónefndur kröfu­hafi sem Mannlíf ræddi við segir að upp­lýs­ingar í umræddu útboði kunni að gefa ranga mynd af fjár­hags­legri stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Hún hafi í raun verið mun verri en gefið var til kynna. Þá hafi skulda­bréfa­út­boðið ekki skilað þeim ávinn­ingi sem stefnt var að, sem var að tryggja lausafé til rekstur fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var lungað af þeim 50 millj­ónum evra sem til­kynnt var í útgáfu skulda­bréfa end­ur­fjár­mögnun eldri skulda. Telja má með öllu óvíst hvort ein­hverjar end­ur­heimtur verða á þeim 50 millj­ónum evra sem fjár­festar lögðu fram við útgáfu skulda­bréfa fyrir aðeins nokkrum mán­uðum. Umræddur skulda­bréfa­flokkur er skráður í kaup­höll­ina í Svíþjóð.  Þó herma heim­ildir Mannlífs að Skúli Mogensen for­stjóri og stærsti eig­andi WOW hafi tekið per­sónu­legt lán og lagt þá fjár­muni inn í skulda­bréfa­út­gáf­una á þessum tíma og þurft að leggja heim­ili sitt og jörð í Hval­firði að veði.

Eigendur skulda­bréfa WOW horfa til þess að upp­lýs­inga­gjöf hafi ekki verið full­nægj­andi og ekki gefið rétta mynd af rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Rekst­ar­vand­ræði WOW sýni það enn frekar og sú stað­reynd að stjórn­endur Icelandair skoð­aði rekstur fyr­ir­tæk­is­ins tví­veigis og taldi stöð­una verri en þeir höfðu talið. Ytri skil­yrði á alþjóðum mark­aði kunna vissu­lega að hafa þarna áhrif einnig. Þrátt fyrir að laga­lega staða gagn­vart félag­inu og stjórn­endum séu í skoðun og verði áfram metið þá segja heim­ild­ar­menn Mannlífs að for­gangs­at­riði kröfu­hafa sé að freista þess að halda rekstr­inum lif­andi áfram, þannig séu meiri líkur á end­ur­heimtum skulda­bréfa.

Ef til mál­sóknar kæmi myndu sú mál­sókn vænt­an­lega snúa að umsjón­ar­að­ila útboðs­ins og stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins ef tekst að sýna fram á að upp­lýs­inga­gjöf fyr­ir­tæk­is­ins hafi í raun verið röng eða vill­andi. Eigendur skulda­bréf­anna standa nú frammi fyrir tveimur kostum, ann­ars vegar að félagið fari í þrot og treysta á að end­ur­heimta fjár­mun­ina úr þrota­bú­inu eða að breyta kröf­unum í hlutafé og treysta á að það tak­ist að koma félag­inu á flot.

Tap WOW nam 22 millj­örðum króna á síð­asta ári og þrátt fyrir yfir­lýs­ingar stjórn­enda WOW má telja að bók­un­ar­staða fyr­ir­tæk­is­ins standi höllum fæti og óvissa um rekstur fyr­ir­tæk­is­ins geti ekki staðið í marga daga til við­bótar.

Arctica Finance í björgunarleiðangri

Arctica Finance sem kom að skulda­bréfa­út­boði í haust, ásamt Pereto í Svíþjóð, freistar þess nú á nýjan leik að fá fjár­festa að fyr­ir­tæk­inu og bjarga því frá þroti. Talið er að það þurfi fimm millj­arða króna til að tryggja rekstur fyr­ir­tæk­is­ins og skuld­breyt­ing kröfu­hfa í hlutafé sé lyk­ill í því sam­hengi. Áhuga­vert verður að sjá hvort þær fjár­hags­upp­lýs­ingar sem Artica Finance veitir fjár­festum nú, gefi skýr­ari mynd af rekstri WOW en þær upp­lýs­ingar sem áður voru veittar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina