Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Önnur atlaga að Sigríði í farvatninu en VG fær einnig sinn skammt

Úrskurður Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu þess efnis að skipun dóm­ara við Lands­rétt hafi ekki verið í sam­ræmi við lög mun enn og aftur setja þrýst­ing á Sigríði And­erd­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, um að segja af sér. En þrýst­ing­ur­inn mun ekki bara bein­ast gegn Sigríði heldur einnig þing­flokki Vinstri grænna sem hingað til hefur staðið vörð um ráð­herr­ann.

Önnur atlaga að Sigríði í farvatninu en VG fær einnig sinn skammt
Sigríður Andersen er í miklum vanda eftir að hafa klúðrað málum við skipun dóm­ara. . Mynd/Aldís Páls

Skipan dóm­ara í Lands­rétt var afar umdeild á sínum tíma eftir að Sigríður tók fjóra umsækj­endur fram yfir þá sem hæf­is­nefnd hafði lagt til að yrðu skip­aðir. Einn þess­ara dóm­ara var Arn­fríður Ein­ars­dóttir sem dæmdi í máli manns sem var dæmdur fyrir akstur undir áhrifum vímu­efna og án öku­rétt­inda. Maðurinn skaut mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins þar sem hann taldi sig ekki hafa fengið rétt­láta máls­með­ferð vegna þess að ólög­lega hafi verið staðið að skipan Arn­fríðar. Undir þau rök tók dóm­stóll­inn.

Segja má að dóm­ur­inn setji íslenskt rétt­ar­kerfi í upp­nám. Þannig þarf nú að svara því hvort allir þeir dómar sem Arn­fríður, og hinir þrír dóm­ar­arnir sem Sigríður tók fram yfir, lúti sömu lög­málum. Sömu­leiðis hvort þessum dóm­urum sé stætt á að sitja áfram í rétt­inum. Áður hefur ríkið þurft að greiða þeim dóm­urum sem Sigríður gekk fram­hjá millj­ónir króna í bætur.

Búast má við því að minni­hlut­inn á þingi geri harða atlögu að Sigríði vegna þess­arar nið­ur­stöðu og kröfur um afsögn hafa þegar verið settar fram. Eitt ár er liðið síðan Sigríður stóð af sér van­traust­s­til­lögu með 33 atkvæðum gegn 27. Þar greiddu tveir þing­menn VG, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, atkvæði með van­trausti en Mið­flokks­mað­ur­inn Bergþór Ólason greiddi ekki atkvæði. Ljóst er að þrýst­ing­ur­inn á Sigríði verður ekki minni í þetta skiptið.

En það er ekki bara Sigríður sem mun sæta þrýst­ingi vegna máls­ins því spjótin munu einnig bein­ast að Katrínu Jak­obs­dóttur og þing­liði hennar. VG gagn­rýndi á sínum tíma harð­lega hvernig staðið var að skipun dóm­ara í Lands­rétt en taf­lið snérist við þegar flokk­ur­inn tók sæti í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þá stóðu VG-liðar, að þeim Rósu Björk og Andrési Inga und­an­skildum, meðal ann­ars með þeim rökum að atkvæða­greiðslan um van­traust snérist í raun og veru um hvort rík­is­stjórnin stæði eða falli.

Í ljósi þess vafa sem ríkir um stöðu Lands­réttar um þessar mundir er óhjá­kvæmi­legt annað en að spjót­unum verði beint að VG í þess­ari umræðu, ekki síst Katrínu Jak­obs­dóttur sem verk­stjóra þess­arar rík­is­stjórnar.

Ofan á þetta bæt­ist við megn óánægja með fram­göngu lög­regl­unnar gegn hópi flótta­manna á Aust­ur­velli í gær. Á sama tíma og VG hefur talað fyrir auknu umburð­ar­lyndi í mál­efnum flótta­manna og hæl­is­leit­enda liggja fyrir frum­vörp Sigríðar þar sem útlend­inga­lög eru hert. Átökin á Aust­ur­velli í gær eru síst til þess fallin að friða gras­rót­ina í VG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina