Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Með kvíðahnút í maganum á þeytingi út um allt

Hlynur Bær­ings­son og Jón Arnór Stef­áns­son sneru báðir heim úr atvinnu­mennsku árið 2016. Þeir við­ur­kenna að það hafi kostað tölu­vert átak að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi á ný enda takt­ur­inn hér heima allt annar og hrað­ari en í Svíþjóð og Suður-Evrópu.

Með kvíðahnút í maganum á þeytingi út um allt
Mynd/Hallur Karlsson

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali við þá félaga í Mannlífi, en allt við­talið má lesa hér.

Jón Arnór: „Ég naut þess sér­stak­lega seinni hluta atvinnu­manns­fer­ils­ins þegar ég var kom­inn með konu og börn að geta átt tíma með þeim. Það er ofboðs­lega dýr­mætur tími þegar ég hugsa til baka, að maður hafi fengið að njóta þeirra for­rétt­inda að verja svona miklum tíma með börn­unum sínum. Ég finn mikið fyrir því þegar ég kem heim til Íslands að hrað­inn er meiri, konan er farin að vinna og krakk­arnir í skóla þannig að við sjáum minna hvert af öðru. Þessi dýr­mæti tími saman er eitt­hvað sem þegar ég horfi til­baka er mér ótrú­lega dýr­mætur.“

Hlynur: „Þar er ég sam­mála þér. Maður hafði alltaf tíma til að gera allt. Þegar ég var í Svíþjóð voru tvær æfingar á dag en samt hafði maður tíma til að fara á leik­skól­ann og maður sá miklu meira af fjöl­skyld­unni. Þegar maður horfir til baka þá eru það helstu for­rétt­indin við atvinnu­mennsk­una. Nú er bara allur dag­ur­inn und­ir­lagður. Það er veru­leik­inn hérna á Íslandi að það eru allir eru stress­aðir með kvíða­hnút í mag­anum um hvar þeir eiga vera hér og þar allan dag­inn, á þeyt­ingi út um allt, að gera betri hluti en þeir eru að gera. Mér finnst aldrei neinn vera í ró hérna. Það er aldrei neinn slakur á Íslandi.“

Jón Arnór: „Fólk er líka alltaf að hafa óþarfa áhyggjur af náung­anum sem er ekki að gera neitt. „Ertu í skóla, ertu að vinna?“

Hlynur: „Ég geri mér grein fyrir því að það er allt annað að vera atvinnu­maður en að vinna hérna heima. En tempóið er allt annað. Áherslan þar er mun meiri á tím­ann með fjöl­skyld­unni, þeir búa til sitt prógram í kringum það. Hérna finnst mér fólk alltaf þurfa að vera að sanna eitt­hvað, að það þurfi að vera að gera eitt­hvað, að vera á leið­inni eitt­hvað.“

Jón Arnór: „Maður alveg dettur í þetta sjálfur. Á Spáni og Ítalíu var allt byggt í kringum þessi fjöl­skyldu­gildi. Það er bara skylda um helgar, sama hvað þú ert gam­all eða með bull­andi ung­linga­veiki eða ekki, þá bara mætir þú í mat hjá stór­fjöl­skyld­unni og þið sitjið þarna saman í fimm klukku­tíma. Það er bara partur af rútín­unni. Fólk hitt­ist, öll stór­fjöl­skyldan, ekki bara á jólum eins og við kannski þekkjum.“

Hlynur: „Ég hed að það séu margir á Íslandi sem gengur mjög vel í starfi eða hverju sem er, en er svo með sam­visku­bit yfir því að hafa ekki tíma fyrir það sem það myndi helst vilja að gera. Krakk­arnir eru í skól­anum til fjögur, svo þarf að gera eitt­hvað og græja og svo er dag­ur­inn bara far­inn. En svo má heldur ekki gleyma því að fólk þarf að lifa af, það er fullt af fólki sem er ein­fald­lega í þeirri aðstöðu. Það væri ósk­andi að það væri aðeins hæg­ara tempó hérna.“

Jón Arnór: „Það er alla­vega mun­ur­inn á Íslandi og Spáni að gæinn sem á sjopp­una á horn­inu á Spáni, keyrir ekki um á Range Rover. Er það ekki lýsandi dæmi? Kaup­mað­ur­inn á horn­inu á Spáni á nóg fyrir sig og sína og hann reynir að vinna eins lítið og hann getur. Það eru öll frí brúuð, ef það er frí á fimmtu­degi þá er bara lokað á föstu­degi og fram á mánu­dag. Þetta getur verið mjög pirr­andi en er samt mjög fal­legt á sama tíma.“

Hlynur: „En ég held líka að það séu margir hér heima sem spenna bog­ann ansi hátt og eiga ekk­ert almenni­lega fyrir því sem þeir eru að gera. Þeir eru að fylla upp í ein­hverja ímynd af því sem þeir eiga að vera. Mér heyr­ist það á mörgum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina