Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Byrjuðu í tónlistinni eftir brottrekstur úr Verzló

Þeir Aron Kristinn Jónasson og Brynjar Bark­ar­son mynda raf­tón­list­artvíeykið ClubDub. Strák­arnir slógu ræki­lega í gegn síð­ast­liðið sumar með plöt­unni Juice Menu Vol. 1. Nú fyrir stuttu kom út heim­ilda­myndin ClubDub the Movie sem fjallar meðal ann­ars um kynni þeirra Arons og Brynjars, hvernig platan þeirra og tón­list­ar­mynd­bönd urðu til og hvers vegna þeir voru reknir úr Verzló.

Byrjuðu í tónlistinni eftir brottrekstur úr Verzló

„Ef við eigum að vera alveg hrein­skilnir þá er svarið nei,“ segir Aron þegar þeir félagar eru spurðir hvort þá hafi órað fyrir að þeir ættu eftir að verða jafn­vin­sælir og raun ber vitni. „Við trúðum því hins vegar að tón­listin okkar væri góð,“ bætir hann við og getur þess að mark­mið þeirra Brynjars sé fyrst og fremst að gera tón­list sem hreyfi við fólki á ein­hvern hátt.

„Okkar mottó er frekar ein­falt: Ef eitt­hvað er gott, þá er það gott. Ef okkur finnst eitt­hvað gott eða skemmti­legt er engin ástæða til að fólki finn­ist það ekki gott.“

Aron og Brynjar kynnt­ust í Verzló. Þar unnu þeir saman að skemmti­þætt­inum 12:00 og urðu fljótt góðir vinir. „Við vorum báðir reknir úr Verzló vet­ur­inn 2014 fyrir að svindla á loka­prófum. Við töl­uðum oft um að gera tón­list saman en það var ekki fyrr en sum­arið 2017 sem við gerðum eitt­hvað í því. Þá hitt­umst við í skúrnum hjá mér og ákváðum að gera tón­list­ar­prójekt fyrir sum­arið 2018. Nafnið ClubDub kom í raun­inni bara kvöldið sem við skil­uðum tón­list­inni okkar inn til Spotify.“

Við vorum báðir reknir úr Verzló vet­ur­inn 2014 fyrir að svindla á loka­prófum.

Í dag stunda strák­arnir nám við Háskól­ann í Reykja­vík. Aron er í við­skipta­fræði og Brynjar leggur stund á hug­bún­að­ar­verk­fræði. „Það er nóg að gera í skól­anum þessa dag­ana en okkur langar rosa­lega að gefa út tón­list fyrir sum­arið. Við sitjum á nokkrum lögum eins og er og aldrei að vita nema við gefum eitt­hvað út á næst­unni. Við erum í sífellu að skapa, það er ekk­ert skemmti­legra. Þegar við erum ekki í stúd­íó­inu, erum við að hugsa um það.“

Strák­arnir sækja inn­blástur til Skand­in­avíu og þá sér­stak­lega Dan­merkur. „Það er nán­ast ómögu­legt að þvinga inn­blástur. Þú þarft í raun­inni bara að upp­lifa eitt­hvað sem þú tengir við, á réttum stað og á réttum tíma. Hins vegar eru margir lista­menn sem veita mér inn­blástur og þar má helst nefna Lil Uzi Vert, Flóna og Björk,“ segir Aron.

Það er nán­ast ómögu­legt að þvinga inn­blástur.

Heimildarmynd um félagana komin út

Nýlega kom út heim­ild­ar­mynd um sögu þeirra félaga. Hún nefn­ist ClubDub The Movie og varð til í kringum útgáfu plötu þeirra Juice Menu Vol. 1. Strák­arnir voru þá farnir að koma fram að með­al­tali þrisvar til fjórum sinnum í viku og fannst á ein­hverjum tíma­punkti snið­ugt að fanga stemn­ing­una með mynda­vél.

„Við gerðum mynd­ina fyrst og fremst af því að okkur þótti það svo gaman. Þannig að við héldum áfram að taka upp og tókum upp efni frá byrjun ágúst til loka októ­ber,“ segir Aron og bætir við að ClubDub the Movie fjalli um kynni þeirra Brynjars, hvers vegna þeir voru reknir úr Verzló og hvernig platan þeirra og tón­list­ar­mynd­bönd urðu til. „Einnig má sjá við­töl við fjöl­skyldur okkar, vini, fólk í tón­list­ar­brans­anum og almennt bara umfjöllun um ClubDub. Til dæmis hvernig við fórum að því að eiga vin­sælasta lagið á Spotify á Íslandi tveimur vikum eftir útgáfu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina