Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fyrst og fremst ríkisstjórn aðgerðaleysis“

„Ég held að þetta sé fyrst og fremst rík­is­stjórn aðgerða­leysis,“ segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í ítar­legu for­síðu­við­tali Mannlífs sem kom út á föstu­dag­inn.

„Fyrst og fremst ríkisstjórn aðgerðaleysis“

Í við­tal­inu segir Logi frá því að hann eygði tæki­færi til að koma Sam­fylk­ing­unni í rík­is­stjórn því fljót­lega eftir kosn­ingar hóf hann stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við VG, Pírata og Framókn­ar­flokk um rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Þeim við­ræðum var hins vegar slitið eftir þriggja daga við­ræður og fór svo að VG fór í sæng með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Logi segir þá nið­ur­stöðu von­brigði enda ekk­ert sem benti til ann­ars á þeim tíma­punkti en að flokk­arnir væru sam­huga.

Logi segir von­brigðin að hafa ekki náð að mynda rík­is­stjórn frá miðju og til vinstri sár­ari en ella í ljósi kjara­við­ræðna sem nú standa yfir. Þar skipti aðkoma rík­is­valds­ins miklu máli. „Það er auð­vitað það sem skorti strax í stjórn­ar­sátt­mál­anum fyrir ári síðan. Þá lá alveg fyrir að þessi vetur kæmi með þessum kröfum en rík­is­stjórnin hefur ekki lagt neitt hald­fast á borðið. Alvöru­fé­lags­hyggju­stjórn hefði for­gangs­raðað öðru­vísi, svo sem með tekju­skiptu skatt­kerfi sem hlífir lág­tekju- og með­al­tekju­fólki.“

Kannski snýst þetta um hags­muni land­bún­að­ar­ins ein­göngu en ekki hags­muni neyt­enda.

„Ég hélt í sak­leysi mínu og ein­feldni að þetta væri nákvæm­lega sama skattapóli­tík og Vinstri græn töl­uðu um fyrir kosn­ingar. Ég hélt að það væri forms­at­riði að þessir flokkar tveir næðu að minnsta kosti saman um þetta. En kannski snýst þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf svo um eitt­hvað allt annað en hægri og vinstri. Kannski snýst það einmitt um íhalds­semi, um að við­halda gömlum kerfum sér­hags­muna­hópa. Kannski snýst það um að við­halda rétti útgerð­ar­innar til þess að sitja á sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar og nýta hana fyrir litla pen­inga. Kannski snýst þetta um hags­muni land­bún­að­ar­ins ein­göngu en ekki hags­muni neyt­enda. Kannski snýst þetta um það að afneita því að stór og örugg mynt geti skilað ávinn­ingi fyrir launa­fólk. Kannski skilur meira á milli Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna en ég í ein­feldni minni hélt. Kannski eru þessir flokkar eðl­is­ó­líkir.“

Þetta aðgerða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í kjara­mál­unum telur Logi vera ein­kenn­andi fyrir rík­is­stjórn­ina. „Þau tala um að þau hafi siglt lygnan sjó og komið mörgum málum í gegn. Ég held að þetta sé fyrst og fremst rík­is­stjórn aðgerða­leysis. Hún er ekki að taka á neinum málum, hún er að við­halda kerfum en hún er ekki að gera neitt. Það er eitt ár rúm­lega síðan þessi rík­is­stjórn var stofnuð og það lá alveg fyrir að það þyrfti að fara í hús­næð­isá­tak. Þess vegna fór Sam­fylk­ingin strax í að búa þær til­lögur til en við vöknum upp við það árið 2019 að rík­is­stjórnin er að ákveða ein­hvern starfs­hóp. Ég veit ekki af hverju. Mér finnst vera droll­ara­háttur á þeim, þau eru sein til verka og fyrst og fremst finnst mér þau vera vinna tölu­vert á for­sendum stærsta flokks­ins í rík­is­stjórn­inni, Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Hún er ekki að taka á neinum málum, hún er að við­halda kerfum en hún er ekki að gera neitt.

Hvað væruð þið að gera öðru­vísi ef þið sætuð í rík­is­stjórn?

„Við hefðum að sjálf­sögðu ráð­ist í breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem hefðu hlíft með­al­tekju- og lág­tekju­fólki og lagt aðeins meiri álögur okkur betur stæðu. Við hefðum ráð­ist í meiri stór­sókn í mennta­málum, að sjálf­sögðu hafið vinnu með öðrum flokkum um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sem leiddu til þess að þjóðin fengi meiri og sann­gjarn­ari arð af sam­eig­in­legri auð­lind. Við sjáum núna að veiði­gjöldin eru lækkuð um um 3-4 millj­arða en það er líka verið að lækka fé til haf­rann­sókna sem er und­ir­staða ekki bara efn­hags okkar heldur líf­ríkis líka. Við hefðum útvíkkað gjald­miðla­nefnd­ina og látið hana líka skoða hvaða hags­munir gætu falist í því að  vera með aðra mynt en krón­una í stað­inn fyrir að stinga hausnum í sand­inn eins og strútur og segja „krónan skal það vera“. Það er svo margt sem við hefðum gert öðru­vísi.“

Viðtalið við Loga má lesa í heild sinni hérna.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina