Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lyfjaver býður góða þjónustu og gott verð: Happdrætti og afmælistilboð út september

Lyfjaver fagnar í sept­em­ber 20 ára afmæli en fyr­ir­tækið var stofnað sem lyfja­skömmt­un­ar­fyr­ir­tæki árið 1999. Á tveimur ára­tugum hefur fyr­ir­tækið þró­ast og blómstrað hjá sam­hentum hópi starfs­manna sem margir hafa starfað hjá fyr­ir­tæk­inu frá upp­hafi. Í dag er öll starf­semi á einum stað, að Suð­ur­lands­braut 22 þar sem apó­tek og verslun er opið alla virka daga og laug­ar­daga, auk lyfja­skömmt­unar. Lyfjaver þjón­ustar ein­stak­linga og stofn­anir um allt land.

Lyfjaver býður góða þjónustu og gott verð: Happdrætti og afmælistilboð út september

„Það gefur okkur mik­inn styrk að vera öll saman á einum stað og þetta er ein­stakt fyrir fyr­ir­tæki í smá­sölu lyfja,“ segir Hákon Steins­son, fram­kvæmda­stjóri Lyfja­vers, sem er einn af 55 starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins. Af þeim eru 17 lyfja­fræð­ingar og 5 lyfja­tæknar.

Hákon Steins­son, fram­kvæmda­stjóri Lyfja­vers.

„Lyfjaver var stofnað sem lyfja­skömmt­un­ar­fyr­ir­tæki sem þjón­u­staði hjúkr­un­ar­heim­ili, en greini­leg tæki­færi voru á þeim mark­aði enda mikil vinna og tími sem fólst í hand­skömmtun á slíkum heim­ilum og stofn­unum.. Fljót­lega varð mikil eft­ir­spurn eftir því að við skömmt­uðum einnig lyf fyrir ein­stak­linga í heima­húsum. Þá bætti fyr­ir­tækið við sig lyf­sölu­leyfi og krafa þess er að hafa opið apó­tek,“ segir Hákon og minn­ist þess að fyrst opn­aði lítið apó­tek á hlið húss­ins og ávallt var þar fullt af við­skipta­vinum. „Apótekið varð fljótt mjög vin­sælt vegna afar góðs verðs og þjón­ustu.“

Áhersla á gott verð verð og gæðaþjónustu

Þær vin­sældir og mark­mið Lyfja­vers í góðu verði og þjón­ustu hafa hald­ist þótt apó­tekið hafi vaxið veru­lega, bæði að stærð og í vöru­úr­vali. „Lyfjaver býður upp á vörur á lágu verði og við erum með heild­sölu hér sem aðstoðar okkur við það. Við flytjum inn vörur, eins og til dæmis Vichy-kremin, Kyolic, Swanson-gæða­vítamín og bæti­efni og fleira,“ segir Hákon. „Það er mjög hóf­leg álagn­ing hjá okkur á lausa­sölu­lyfjum og vörum í versl­un­inni. Við höfum lagt upp úr því að vin­sæl­ustu vör­urnar séu á extra lágu verði, eins og nikótín­lyf, Benecta, Nutri­lenk og fleiri vörur. Við komum stöðugt inn með nýjar vörur og sem dæmi má nefna að nýlega hóf Lyfjaver sölu á fal­legum gæða­fatn­aði frá heild­versl­unni KÓSK, sem slegið hefur ræki­lega í gegn.

Heilsu­ver leggur áherslu á heilsu­vörur og fæðu­bót­ar­efni.

Heilsu­ver er sér­verslun og er hluti af Lyfja­veri, þar er ein­blínt á heilsu­vörur og fæðu­bót­ar­efni, þar á meðal breitt úrval frá Swanson. Í sept­em­ber er 20% afsláttur af mörgum vörum. „Hér er boðið upp á hágæða­þjón­ustu sem skiptir miklu máli þegar komið er inn í slíka verslun og maður þarf ráð­legg­ingar, ólíkt fæðu­bót­ar­hillum stór­mark­að­anna.“

Tölvustýrð lyfjaskömmtun

Fyrir innan versl­un­ina slær hjarta Lyfja­vers og upp­runi fyr­ir­tæk­is­ins stendur, sjálf lyfja­skömmt­unin, þar sem vélar sjá um að skammta lyf í lyfjarúllur undir öruggri stjórn lyfja­fræð­inga og sér­þjálfaðs starfs­fólks. „Við þjón­ustum fjölda hjúkr­un­ar­heim­ila og einnig heil­brigð­is­stofn­anir eins og Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands, með lyfja­skammt­anir og einnig öll önnur lyf sem ekki er hægt að skammta, svo sem stungu­lyf og inn­önd­un­ar­lyf,“ segir Hákon. Boðið er upp á að fá helstu vítamín og bæti­efni með í lyfjarúll­una. Lyfja­fræði­legt eft­ir­lit er mjög mik­il­vægt en dag­lega berst inn mik­ill fjöldi breyt­inga á skömmt­unum. Þá þarf að færa breyt­ingar inn, þær eru tví­yf­ir­farnar af lyfja­fræð­ingum og lyfja­tæknum, en um 30% af lyfja­skömmt­unum sem hjá okkur eru, breyt­ast í hverjum mán­uði,“ segir Hákon.

Happdrætti, afmælistilboð og viðburðir

„Í til­efni af afmæl­inu er happ­drætti sem er áhuga­verð nýj­ung þar sem við munum draga úr afgreiddum lyf­seðlum og skömmt­unum í sept­em­ber,“ segir Hákon. „Einnig er fjöldi til­boða í versl­un­inni. Á föstu­dögum gerum við síðan extra vel við við­skipta­vini okkar, í verslun er boðið upp á kaffi og með því. Einnig nýtur starfs­fólk góðs af en við­burðir eru á hverjum föstu­degi, enda á starfs­fólkið veru­legan þátt í að 20 ára afmælið er orðið að veru­leika.

Lyfja­mark­að­ur­inn er frekar fast­held­inn og þró­ast hægt og bít­andi en við erum í stöðugri þróun og stöðnum ekki,“ segir Hákon aðspurður um nýj­ungar fram undan hjá Lyfja­veri. „Við horfum til fram­tíðar hvað tækni­mál varðar og leit­umst við að minnka fjar­lægð­ina til við­skipta­vina okkar, sér­stak­lega þeirra sem búa fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið. Við erum frum­kvöðlar að upp­lagi og ætlum okkur að halda því áfram, hér starfar hópur af frjóu fólki með fullt af hug­myndum.“

Lyfjaver er til húsa að Suð­ur­lands­braut 22, Reykja­vík. Apótek og verslun er opið frá kl. 8.30-18.00 virka daga, laug­ar­daga kl. 10-14. Sími Lyfja­vers er 533-6100 og net­fangið [email protected]. Heima­síða er lyfja­ver.is.

Texti / Ragna Gests­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur