Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fagmennska og falleg þjónusta

Fjölþætt útfar­ar­þjón­usta krefst fag­mennsku og nær­gætni. Útfar­ar­þjón­usta Kirkju­garð­anna hefur þjón­u­stað lands­menn í 70 ár.

Fagmennska og falleg þjónusta
Vonir standa til að samn­ingar náist við kenn­ara fyrir haustið svo ekki komi til verk­falla|Sigríður Björk Ein­ars­dóttir

Í hröðu nútíma­sam­fé­lagi er sífellt vax­andi krafa um fag­mennsku og góða þjón­ustu á flestum sviðum og þar er útfar­ar­þjón­usta ekki und­an­skilin. Hjá Útfar­ar­stofu Kirkju­garð­anna er leit­ast við að svara þeim kröfum og vænt­ingum t.d. með því að leggja áherslu á þær hliðar þjón­ust­unnar sem snúa að til­finn­ingum og mýkt, enda er þjón­ustan við­kvæm og mik­il­væg að sögn Sigrúnar Ósk­ars­dóttur, guð­fræð­ings og útfar­ar­stjóra. „Með auk­inni kröfu um fag­mennsku á þessum við­kvæmu stundum býður Útfar­ar­stofa Kirkju­garð­anna upp á þjón­ustu reynslu­mik­ils starfs­fólk sem m.a. sækir hin látnu, klæðir þau og snyrtir og veitir þjón­ustu við kveðju­stund­irnar. Það er lögð mikil áhersla á hlýjar mót­tökur og hefur stofan á að skipa sér­fræð­inga á sviði sál­gæslu, félags­ráð­gjafar og lög­fræði. Fyr­ir­mynd að fag­mennsku og hlýjum mót­tökum í fal­legu hús­næði sækjum við til kollega okkar á Norð­ur­löndum en við erum aðilar að nor­rænu sam­starfi og sækjum reglu­lega fundi og ráð­stefnur til að kynna okkur nýj­ungar.“

Ný hugmyndafræði

Meðal helstu sér­stöðu Útfar­ar­stofu Kirkju­garð­anna má nefna háskóla­mennt­aða sér­fræð­inga, stærð stof­unnar og þægi­lega aðstöðu til að taka á móti aðstand­endum bætir Emilía Jóns­dóttir félags­ráð­gjafi við. „Stundum eru ein­staka mál sér­stak­lega við­kvæm, t.d. þegar dauð­ann hefur borið að skyndi­lega. Þá höfum við fag­fólk til ráð­gjafar og gefum aðstand­endum svig­rúm fyrir þann tíma sem þarf. Þá er annað starfs­fólk til taks til þess að sinna því sem þarf til þess að halda starf­sem­inni gang­andi allan sól­ar­hring­inn. Auk þess bjóðum við upp á vakt­síma og stuttan við­bragðs­tíma.“

Mynd / Hallur Karlsson

Útfar­ar­stofa Kirkju­garð­anna leggur áherslu á jafnan hlut karla og kvenna í þjón­ust­unni. „Við höfum til­einkað okkur nýja hug­mynda­fræði er lýtur að þjón­ust­unni. Stofan hefur á að skipa reynslu­miklu starfs­fólki og sér­fræð­ingum sem eru til­búin að leið­beina, aðstoða og þjóna. Það er ekki okkar að segja hvernig kveðju­stund­irnar eiga að vera, við hlustum og leggjum okkur fram um að nema þarfir og óskir aðstand­enda og fylgja þeim eins og mögu­legt er,“ bæta þær við.

Hinstu óskir mikilvægar

Þær segja Útfar­ar­stofu Kirkju­garð­anna vera einu útfar­ar­stof­una hér á landi sem býður upp á lög­fræði­þjón­ustu en það sé inni­falið í þjón­ust­unni að hitta lög­fræð­ing eftir útför til að leið­beina þeim, sem á þurfa að halda, við upp­gjör dán­ar­bús. „Einnig veitum við þjón­ustu sem við köllum Hinstu ósk en þar bjóðum við ein­stak­lingum til sam­tals um lífslokin. Ein­hverjum kann að finn­ast þetta fram­andi og jafn­vel óþægi­legt en í raun finnst flestum eft­ir­lif­andi gott að hafa ein­hverja hug­mynd um óskir lát­inna ást­vina sinna þegar kemur að skipu­lagi útfar­ar­innar,“ segir Sigrún.

„Einnig veitum við þjón­ustu sem við köllum Hinstu ósk en þar bjóðum við ein­stak­lingum til sam­tals um lífslokin.“

Dauðinn á ekki að vera tabú

Í raun fer þjón­ustan þannig fram að allir eru vel­komnir í heim­sókn í Vest­ur­hlíð 2 í Reykja­vík segir Emilía. „Þar bjóðum við upp á gott kaffi og við­kom­andi getur sest niður í ein­rúmi eða þegið aðstoð sér­fræð­inga við að fylla út bæk­ling sem hefur yfir­skrift­ina Hinsta ósk. Grund­vall­ar­at­riði á borð við ákvörðun um bálför eða hefð­bundna kistu­gröf er ákvörðun sem mörgum reyn­ist erfið. Þá er gagn­legt að sú umræða hafi átt sér stað fyrir and­lát. Það er heldur ekki lengur sjálf­gefið hvar fólk á að hvíla þar sem mun algeng­ara er að fólk flytji á milli lands­hluta og jafn­vel landa. Það er því að mörgu að huga enda kjósa sífellt fleiri þessa þjón­ustu hjá okkur.“

Einnig er akstur mik­il­vægur þáttur í þjón­ust­unni að þeirra sögn. „Við leggjum því ríka áherslu á bíl­arnir okkar séu fal­legir gæða­vagnar í topp­standi. Á þessu ári höfum við keypt tvo nýja bíla, ann­ars vegar Mercedes Benz-flutn­ings­bíl og svo vorum við að fá til lands­ins sér­út­bú­inn VOLVO 90. Bíllinn er hinn glæsi­leg­asti og mjög frá­brugð­inn sam­bæri­legum bílum.“

„Bíllinn er hinn glæsi­leg­asti og mjög frá­brugð­inn sam­bæri­legum bílum.“

Miklar breytingar í vændum

Þær eru sam­mála um að miklar breyt­ingar séu í vændum innan útfar­ar­þjón­ust­unnar á næstu árum. „Þar munum við kapp­kosta að mæta þörfum og breyt­ingum varð­andi útfarir með auk­inni þjón­ustu og auknum gæðum. Þá viljum við einnig taka þátt í sam­tali og vinna að því að dauð­inn verði ekki það tabú sem hann þó er í sam­fé­lagi okkar.“

Breyttar áherslur í rekstr­inum hafa nú þegar skilað sér að þeirra sögn og segja þær starfs­menn vera umvafða kær­leika og þakk­læti fyrir þjón­ustu sína. Það er von og stefna stjórn­enda og starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins að breyt­ing­arnar muni ekki aðeins styrkja starf­semi útfar­ar­stof­unnar heldur einnig bæta útfar­ar­þjón­ustu almennt í þágu aðstand­enda.

Allar nán­ari upp­lýs­ingar má finna á www.utfor.is. 

Útfar­ar­þjón­usta Kirkju­garð­anna
Í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur