Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vonda stjúpan – góða stjúpan

Vonda stjúpan – góða stjúpan

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ófá ævintýri fjalla um vondar stjúpur sem láta einskis ófreistað til að gera stjúpbörnum sínum lífið leitt, jafnvel koma þeim fyrir kattarnef. Hans og Gréta, Mjallhvít og Öskubuska koma strax upp í hugann. Sjálf hef ég upplifað að eiga stjúpu, alls ekki af betri gerðinni, og undanfarin ár hef ég verið stjúpmóðir tveggja drengja.

Ég var tveggja ára þegar for­eldrar mínir hættu að vera saman og að verða níu ára þegar pabbi fór að vera með Stein­unni. Steinunn var bæði vin­sæl og vel liðin í bænum okkar. Hún var vel menntuð, í góðu starfi og að auki treyst til að sitja í barna­vernd­ar­nefnd á staðnum þar sem hún átti að tryggja vel­ferð barna. Þessi mikla „gæða­kona“ hefur alla tíð verið ótrú­lega afbrýð­isöm út í mig og til­veru mína og stjórnað pabba eins og strengja­brúðu frá því þau kynnt­ust.

Ég hafði verið í ágætu sam­bandi við pabba og gat hitt hann nán­ast þegar ég vildi. Ég fór oft til afa og ömmu í föð­ur­ætt og gisti ófáar helgar hjá þeim í æsku. Þau hafa alltaf reynst mér afar vel. Þeim fannst ég beitt órétti af Stein­unni og pabba og reyndu sitt besta til að bæta fyrir það þótt það væri alls ekki þeirra.

„Næstu árin eign­að­ist ég þrjú hálf­systk­ini og eins óvel­komin og ég hafði verið á heim­ili Stein­unnar og pabba fram að því var ég allt í einu orðin nógu góð til að passa börnin.“

Næstu árin eign­að­ist ég þrjú hálf­systk­ini og eins óvel­komin og ég hafði verið á heim­ili Stein­unnar og pabba fram að því var ég allt í einu orðin nógu góð til að passa börnin. Ekki kvarta ég yfir því, ég naut þess að fá að vera með þeim.

Mikil mismunun

Mikið hefur verið gert upp á milli okkar systk­in­anna alla tíð, ekki síst þegar kemur að jóla- og afmæl­is­gjöfum og ég skil hrein­lega ekk­ert í pabba að láta sér það lynda, svo mik­ill er mun­ur­inn. Systk­inum mínum hefur verið drekkt í dýrum gjöfum í gegnum tíð­ina, þau hafa fengið tölvur, iPada, snjall­síma, snjó­bretta­búnað, nokkrar utan­lands­ferðir, rán­dýr nám­skeið sem tengj­ast áhuga­málum þeirra, bæði á Íslandi og erlendis, og fleira og fleira. Nóg þótti að gefa mér eitt­hvað á borð við húfu og vett­linga eða bækur sem ég átti sumar hverjar fyrir því þetta voru aldrei nýút­komnar bækur og annað í þeim dúr. Stundum grét ég yfir þessu en ég lét engan sjá það, mér fannst þetta líka skammar­legt, eins og ég ætti ein­hverja sök á þessu sjálf.

Afi og amma í föð­ur­ætt reyndu bæði leynt og ljóst að bæta mér þetta upp og ég fékk alltaf mjög veg­legar gjafir frá þeim. Mun veg­legri en yngri systk­ini mín en ég þurfti alltaf að þegja yfir gjöf­unum til að svekkja engan.

Eftir því sem ég varð eldri gat ég farið að hlæja að þessu með sjálfri mér, ekki síst þegar gjaf­irnar til systk­ina minna voru sér­lega veg­legar. Þetta var svo yfir­gengi­lega fárán­legt.

Steinunn virt­ist sjúk­lega afbrýð­isöm út í fyrra líf pabba og það bitn­aði á mér. Hún var ekki þroskaðri en þetta og hefur ekk­ert breyst.

Um það leyti sem hún og pabbi fóru að vera saman, missti mamma heils­una, fyrst lík­am­lega og seinna fór hún að þjást af kvíða og þung­lyndi. Hún gerði þó sitt allra besta til að skapa mér gott líf og fannst erfitt að geta ekki veitt mér það sem henni fannst ég eiga skilið en hún gat lítið gert á örorku­bótum. Ég var sann­ar­lega ekki ofdekruð og miðað við hvernig systk­ini mín geta stundum látið er ég fegin því að hafa ekki fengið allt upp í hend­urnar.

For­eldrar mömmu bjuggu í Reykja­vík og voru í litlu sam­bandi við okkur svo mamma gat aldrei leitað til þeirra. Þau ferð­uð­ust mikið um heim­inn og mér finnst eig­in­lega óskilj­an­legt að þau hafi viljað eign­ast börn, þau sáu bara hvort annað. Eldri systir mömmu lést í bílslysi áður en ég fædd­ist og kannski var þetta leið þeirra við að takast á við sorg­ina, gleyma hinu barn­inu sínu og hugsa bara um sig sjálf. Þau voru alltaf ósköp góð við mig í þau fáu skipti sem við hitt­umst en ég náði aldrei að tengj­ast þeim.

Sjálf stjúpmóðir

Þegar ég kynnt­ist Bjarna var það nán­ast ást við fyrstu sýn hjá okkur báðum. Hann er sex árum eldri en ég og var frá­skil­inn, tveggja barna faðir. Hann hafði verið með kon­unni sinni frá því þau voru sextán ára en ástin minnk­aði jafnt og þétt hjá þeim og breytt­ist að lokum í vin­áttu.

Vinnu Bjarna vegna gat hann ekki verið með strák­ana aðra hverja viku, eins og hann, og þau bæði reyndar, vildu en þeir voru samt ansi mikið hjá honum, fyrir utan aðra hverja helgi. Stutt var á milli heim­il­anna og gott sam­komu­lag á milli. Svo gott að þegar fyrr­ver­andi konan hans var byrjuð að slá sér upp með núver­andi manni sínum, fékk hún mik­inn stuðn­ing frá Bjarna sem hjálp­aði strák­unum að sætt­ast við nýja mann­inn.

Þegar ég kom til sög­unnar mætti mér nokkur fjand­skapur frá strák­unum, aðal­lega tor­tryggni, held ég. Þeir voru sann­ar­lega ekki sáttir við nýju kon­una hans pabba í upp­hafi. „Þú ert sko ekki mamma okkar,“ sögðu þeir nokkrum sinnum.

Ég er svo heppin að eiga góða vin­konu sem einnig er stjúpa og hún hafði farið á nám­skeið í Reykja­vík um stjúp­tengsl. Hún átti í ein­stak­lega góðu sam­bandi við stjúp­dóttur sína, vissi ég, og hringdi í hana eitt kvöldið og leit­aði ráða hjá henni.

Frábær ráð

Vinkona mín tal­aði bæði af eigin reynslu og einnig um það sem hún hafði lært á nám­skeið­inu. Það var mjög nyt­sam­legt og gott að geta talað um áhyggjur mínar við hana. Ég varð rólegri og sátt­ari eftir sím­talið og hlakk­aði til að nýta mér ráð hennar næst þegar strák­arnir kæmu. Ég fann fljót­lega mun á and­rúms­loft­inu á heim­il­inu og eftir að ég fann réttu leið­ina að þeim, þar sem húmor leikur stórt hlut­verk, hætti ég að hafa nokkrar áhyggjur af þessu.

Ég hafði verið á nálum í kringum þá og reynt að þókn­ast þeim á allan hátt. Ég stein­hætti því, var bara ég sjálf með kostum mínum og göllum.

„…ég gef þeim afmælis- og jóla­gjafir frá mér einni en það var eitt af ráðunum frá vin­konu minni.“

Þegar þeir gista hjá okkur eru þeir saman í stóru her­bergi. Hjóna­her­bergið er minna og það finnst mér eðli­legt, við Bjarni sofum þar og búið, en strák­arnir leika sér mikið í sínu her­bergi yfir dag­inn. Þeir eiga hvor sína kommóð­una undir dót og fatnað og ganga alltaf að öllu sínu vísu. Ég reyni ekki að vera móð­ur­leg við þá, heldur sagði þeim fljót­lega að þeir ættu góða mömmu og ég ætl­aði sann­ar­lega ekki að reyna að koma í stað­inn fyrir hana. Ég væri frekar eins og frænka eða vin­kona.

Svo er eitt sem hefur komið mér ofar á vin­sælda­list­ann og ég finn að þeir kunna vel að meta, ég gef þeim afmælis- og jóla­gjafir frá mér einni en það var eitt af ráðunum frá vin­konu minni. Þeir fá líka sér­gjöf frá pabba sínum. Ótrúlegt hvað þetta litla atriði er í raun stórt og skiptir svona miklu máli.

Þegar systir þeirra kom í heim­inn fyrir nokkrum árum fann ég bara vænt­um­þykju og hrifn­ingu frá þeim, enga afbrýði­semi. Þeir voru kannski orðnir sjó­aðir í að vera stóru bræður því mamma þeirra hafði eign­ast tvö börn með skömmu milli­bili.

Við sama heygarðshornið

Bless­unin hún stjúpa mín sýnir dóttur minni sama við­mót og hún sýndi mér og stjúp­synir mínir eru ekki einu sinni til í hennar huga. Ég hef haldið nokkur barna­af­mæli en Steinunn ekki látið sjá sig. Ástæðuna segir hún vera þá að hún vilji ekki hitta mömmu! Konu sem aldrei hefur gert henni neitt og er sann­ar­lega ekki í nokk­urri sam­keppni við hana um pabba. En hún er auð­vitað hluti af for­tíð pabba, eins og ég. Systkini mín mæta þó alltaf og stundum pabbi.

Nú á Steinunn orðið tvö barna­börn sjálf og eys í þau gjöfum. Dóttir mín fær til mála­mynda eitt­hvað smá­vegis frá henni og pabba í jóla- og afmæl­is­gjafir en ég er hætt að spyrja systk­ini mín hver hafi gefið börnum þeirra þessa flottu hluti sem þau eru kannski að leika sér með eða klæð­ast. Svarið var alltaf afi og amma þeirra, eða pabbi og stjúpa mín. Ég finn að mér sárnar mun meira fyrir hönd dóttur minnar en fyrir mína hönd.

Mér finnst pabbi ótrú­lega hug­laus að láta Stein­unni stjórna sér svona, ég veit að honum þykir vænt um mig og einnig dóttur mína.

Það var aldrei haft sam­band við mig ef eitt­hvað var um að vera hjá þeim, nema auð­vitað þegar þau vant­aði pössun. Það er þannig enn nema núna er ég í góðu sam­bandi við systk­ini mín. Þau eru vissu­lega for­dekruð en að upp­lagi eru þau góðar mann­eskjur sem mér þykir ein­stak­lega vænt um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu