Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jólin voru mikill sukktími

Í ein­lægi við­tali við Mannlíf segir Franz Gunn­ars­son að eig­in­lega engin orð ná yfir þann mun sem sé á líð­an­inni eftir að hann tók til í lífi sínu og hætti að drekka.

Jólin voru mikill sukktími
Franz Gunn­ars­son

„Það verða fimm ár núna í jan­úar síðan ég setti tapp­ann í flösk­una,“ segir Franz stoltur. „Ég hafði alltaf haldið að ég gæti bara hætt að drekka og dópa þegar ég vildi, til dæmis var ég sann­færður um það þegar sam­býl­is­kona mín varð ófrísk að ég myndi hætta þegar barnið kæmi í heim­inn. Það gat ég auð­vitað ekki og tæpu ári eftir að sonur okkar fædd­ist fór hún frá mér. Þá versn­aði ástandið á mér enn, og áður en ég lét segj­ast og fór í með­ferð var ég far­inn að velta því fyrir mér að binda enda á líf mitt. Fannst það hlyti að vera besta lausnin fyrir alla. Sem betur fer á ég góða vini og með þeirra hvatn­ingu og hjálp tókst mér að ná áttum og leita mér hjálpar.“

Eins og gefur að skilja var mikil vinna óunnin þegar Franz kom úr með­ferð­inni og hann segir það hafa tekið tölu­verðan tíma fyrir barns­móður sína að treysta sér.

„…það kemur eng­inn úr sex vikna með­ferð með haus­inn í full­komnu lagi.“

„Ég skil það vel,“ segir hann. „Og auð­vitað tekur tíma að ná bata, það kemur eng­inn úr sex vikna með­ferð með haus­inn í full­komnu lagi, það er margra ára vinna að taka á öllu sem maður hefur gert sjálfum sér og öðrum. En eftir að ég ræddi við hana, gekkst við því sem ég hafði brotið gegn henni og baðst afsök­unar hafa sam­skipti okkar lag­ast mikið og í dag erum við ágætis vinir og deilum for­ræði yfir syni okkar. Það er eitt af því besta sem hefur fylgt edrú­mennsk­unni hjá mér.“

Bleika skýið er ekki bara klisja

Margir sem hætta í neyslu verða yfir­máta aktífir í alls kyns lík­ams­rækt og Franz seg­ist ekki hafa verið nein und­an­tekn­ing frá þeirri reglu.

Franz Gunn­ars­son hætti að drekka fyrir tæpum fimm árum og er því að upp­lifa sín fjórðu jól edrú.

„Já, já, ég fór alveg á kaf í það,“ segir hann og hlær. „Fékk mér einka­þjálf­ara og var í rækt­inni flesta daga alveg á fullu. Með tím­anum hef ég nú dregið mikið úr því, þótt ég stundi auð­vitað lík­ams­rækt enn þá, en eina íþrótta­grein hef ég haldið áfram að stunda mjög mikið og það er sundið. Það gefur mér svo mikið að synda og ég reyni að gera það flesta daga.“

Franz segir erfitt að lýsa þeim mun sem orðið hafi á lífi hans og lífs­sýn á þessum fimm árum án þess að detta í klisjur og væmni. Það sé ein­fald­lega allt mun auð­veld­ara og betra. Klisjan um bleika skýið sé ekki út í hött, bara það að horfa á fal­legt sól­ar­lag geti fyllt hann fögn­uði, svo dæmi sé tekið. Og þegar talið berst að jól­unum og hvernig þau hafi breyst fer hann á flug.

„Jólin voru alltaf mik­ill sukk­tími,“ segir hann. „Ég hef alltaf borðað hjá mömmu og pabba á aðfanga­dags­kvöld en þegar maður var í neyslu reyndi maður að kom­ast þaðan sem fyrst og fara að „skemmta sér“. Nú erum við sonur minn að koma okkur upp okkar eigin jóla­hefðum. Förum alltaf á tvö jóla­böll saman, sem honum finnst óskap­lega skemmti­legt, og reynum að njóta jól­anna eins og við mögu­lega getum. Maður er aftur far­inn að hlakka til jól­anna eins og barn og að upp­lifa þau í gegnum hann setur algjör­lega kirsu­berið á topp­inn.“

Lestu við­talið við Franz í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina