Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Elskaði að hlusta á konurnar í kvöldboðunum“

Konur elska glæpa­sögur. Það er marg­sannað. Bæði að lesa þær og skrifa. Margir af þekkt­ustu og vin­sæl­ustu glæpa­sagna­höf­undum bók­mennta­sög­unnar hafa verið konur og þeim fjölgar frekar en hitt. Íslend­ingar hafa ekki farið var­hluta af þessum anga bók­mennta­sög­unnar og eiga sér sínar ókrýndu glæpa­sagna­drottn­ingar sem þjóðin dáir og virðir. Meðal þeirra er Jónína Leós­dóttir.

„Elskaði að hlusta á konurnar í kvöldboðunum“
Jónína Leós­dóttir

Jónína Leós­dóttir hafði skrifað alls kyns bækur, meðal ann­ars ung­linga­bækur, skáld­sögur og leik­rit, þegar hún söðl­aði um og fór að skrifa glæpa­sögur þar sem kjarna­konan Edda á Birki­melnum flækir sér í alls kyns saka­mál – og leysir þau auð­vitað. En hvaðan kom Edda og hvers vegna hefur Jónína ákveðið að fimmta bókin sem hún vinnur nú að verði sú síð­asta – í bili alla vega – um þennan dásam­lega karakter?

Hvers vegna vald­irðu að færa þig yfir í glæpa­sagna­formið? „Ég flakk­aði tals­vert milli bók­mennta­greina í þeim þrettán bókum sem ég hafði skrifað áður en ég byrj­aði á Eddu­málum. Mér fannst gaman að sitja ekki föst á sama bás. En það gat verið snúið að svara spurn­ingum um hvernig bækur ég skrif­aði. Stutta svarið var: Alls konar! Langa svarið var: Skáld­sögur fyrir ungt fólk, skáld­sögur fyrir full­orðna, ævi­sögur og … ja, bara alls konar. Allar bæk­urnar mínar, fyrir utan tvær ævi­sögur ann­ars fólks, eiga það þó sam­eig­in­legt að fjalla fyrst og fremst um nútíma­fólk og mann­leg sam­skipti þess. Það er efni sem heillar mig mjög. Kannski færði ég það bara í glæpa­sögu­bún­ing til þess að fólk vissi betur hvar það hefði mig …“

Hvaðan kom hug­myndin að Eddu sem aðal­sögu­hetju? Á hún sér ein­hverja fyr­ir­mynd í raun­veru­leik­anum? „Öflugar, klárar og svo­lítið kjaft­forar ömmur höfðu komið við sögu í fjórum af fimm ung­menna­bókum sem ég skrif­aði – og það var svo skemmti­legt að vinna með þær og með þeim að ég ákvað að prófa að hafa slíka týpu sem aðal­per­sónu í full­orð­ins­bók. Ég sé sko ekki eftir því, Edda er sér­lega góður vinnu­fé­lagi. Eig­in­lega er Edda eins konar sam­bland margra kvenna sem settu svip á líf mitt í æsku, ekki síst tveggja föð­ur­systra minna og vin­kvenna þeirra. Þessar frænkur bjuggu undir sama þaki og við kjarna­fjöl­skyldan, ég var mjög hænd að þeim og fékk alltaf að vera við­stödd svokölluð konu­boð sem þær héldu nokkrum sinnum á ári. Í þessum kvöld­boðum sat ég stein­þegj­andi í nátt­fötum og slopp, tróð mig út af kökum, hall­aði undir flatt og drakk í mig hvert orð. Þarna flugu dásam­legar dönsku­slettur, krassandi end­ur­minn­ingar og enda­lausar sögur af fólki í bænum. Fjörið varð svo mikið að kon­urnar stein­gleymdu að ég væri nær­stödd svo þær voru sko ekk­ert að rit­skoða sig. Ég held að Edda á Birki­melnum eigi rætur að rekja alveg aftur til þess sem ég hler­aði við þessi tæki­færi, það reynd­ist mik­ill sjóður.“

Þú hefur sagt að næsta bók verði sú síð­asta um Eddu. Er of þving­andi að skrifa inn í svona seríu um sömu rann­sókn­ar­mann­eskj­una? „Ég er enn að skrifa fimmtu Eddu­bók­ina en vona að mér tak­ist að ljúka hand­rit­inu fljót­lega svo hún komi út í árs­byrjun 2020 – sjö, níu, þrettán, ef guð lofar og allt það.

Það var aldrei á stefnu­skránni að hafa bæk­urnar um Eddu fleiri en fimm, aðal­lega af því að ég vildi ekki að les­endur fengju leiða á henni. En vinnan með glæpa­sagna­formið reynd­ist ánetj­andi og það hentar sér­lega vel fyrir umfjöllun um alls kyns þjóð­fé­lags­að­stæður sam­tím­ans og um líðan og tengsl fólks sem glímir við þær. Þótt Edda fái að hvíla sig langar mig því að halda mig á svip­uðum slóðum.

En kannski tökum við Edda upp þráð­inn seinna. Ég ætla helst að skrifa fram á graf­ar­bakk­ann og vona að hann sé nógu langt undan til að pláss sé fyrir margar bækur til við­bótar.“

„Ég væri alveg til í að skrifa nokkra þætti af sjón­varps­s­er­í­unni East Enders sem BBC hefur fram­leitt frá 1985. En ég á nú ekki von á hring­ingu frá Bret­landi.“

Sumir höf­undar hafa tekið það til bragðs að láta aðal­per­són­una deyja, eða gera hana ófæra um að sinna starfi sínu – Erlendur Arnalds og Wallander Mankells, sem dæmi – er það að þínu áliti góð leið til að slá á vænt­ingar les­enda um fleiri bækur í ser­í­unni? „Nei, veistu, það tekur á mig að fylgj­ast með fólki, sem ég hef tekið ást­fóstri við, hrörna og/eða deyja. Þetta á jafnt við um sögu­per­sónur sem fólk af holdi og blóði. Ég varð til dæmis alveg miður mín þegar það fór að slá út í fyrir Wallander. Það var hræði­legt! Ég vil frekar lifa í von­inni um fleiri bækur, jafn­vel þótt sú von ræt­ist ekki, en að lesa um dap­ur­leg enda­lok per­sónu sem er mér kær.“

Þetta form, glæpa­sagna­sería, verður það auð­veld­ara eftir því sem þú skrifar fleiri bækur? Er þetta eins og vöðvi sem verður sterk­ari með æfing­unni? „Eig­in­lega ekki. Það er að vísu þægi­legt fyrir höf­und að þekkja aðal­per­són­una, fjöl­skyldu hennar og vini strax í upp­hafi og hafa reynslu af glæpa­sagna­form­inu. En þetta skapar líka pressu því bæk­urnar mega ekki verða of líkar, hvorki efnið né fram­setn­ingin. Og ser­íu­saga verður að vera jafn­að­gengi­leg fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrri bæk­urnar og þá sem bíða eftir næsta „skammti“.

Ég verð að við­ur­kenna að ég hélt að þetta yrði auð­veld­ara. En vegna þess­arar glímu eru skrifin einmitt svo ögrandi fyrir mann­eskju eins og mig sem finnst miklu meira spenn­andi að leysa erf­iðar kross­gátur og sudoku-þrautir en auð­veldar. Ég sé engan til­gang í að leysa verk­efni sem reynir lítið á.“

Ef þú værir ekki að skrifa glæpa­sögur hvað myndi þá helst heilla þig að skrifa um? „Ég væri alveg til í að skrifa nokkra þætti af sjón­varps­s­er­í­unni East Enders sem BBC hefur fram­leitt frá 1985. En ég á nú ekki von á hring­ingu frá Bret­landi. Svo væri áhuga­vert að prófa að skrifa skáld­sögu þar sem alvara ríkir frá fyrstu til síð­ustu blað­síðu. Ég er þó ekki viss um að ég geti það. Mér hættir til að sjá húmor í öllu. Líklega smit­að­ist ég af þessu þegar ég var fluga á vegg í konu­boð­unum í gamla daga. Þar var heldur betur slegið á létta strengi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina