Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Með samviskubit yfir heppninni

Aðfanga­dagur árið 2018 mun aldrei líða Ingi­björgu Rósu Björns­dóttur úr minni og þótt sú minn­ing sé ekki góð skyggir hún á allar aðrar jóla­minn­ingar í huga hennar. Þær fréttir sem hún fékk þann dag, eftir margra tíma veru á göngu­deild krabba­meins­deildar Western General-sjúkra­húss­ins í Edinborg, gerðu það að verkum að hún átti allt eins von á því að vera að upp­lifa sín síð­ustu jól.

Með samviskubit yfir heppninni
Ingi­björg Rósa er búsett í Edinborg

„Ég greind­ist reyndar með brjóstakrabba­mein 20. des­em­ber í fyrra,“ segir Ingi­björg Rósa. „En lækn­arnir voru bjart­sýnir á að það væri stað­bundið og að ég þyrfti bara að fara í fleyg­skurð og geisla og þá væri þetta búið. Þannig að ég var ekk­ert mjög slegin við þær fréttir. Á aðfanga­dag fékk ég hins vegar að vita að þetta væri hrað­vax­andi krabba­mein sem hugs­an­lega hefði dreift sér í eitl­ana og ég myndi senni­lega þurfa að fara í lyfja­með­ferð og allan pakk­ann. Þá varð þetta pínu sjokk.“

Eftir að lyfja­með­ferð­inni lauk skellti Ingi­björg Rósa sér í að vera með uppi­stand um krabba­meinið á Fringe-hátíð­inni í Edinborg og seinna í Reykja­vík, sem hún segir hafa gengið ótrú­lega vel og verið vel tekið. Þegar þeirri törn lauk fór hún til Bali í boði vina sinna og dvaldi þar í þrjár vikur til að hlúa að heils­unni, borða hollt og stunda jóga. Þá kvikn­aði löngun til að nýta lífið öðru­vísi en hún hafði gert áður en hún veikt­ist.

„Ég var heppin, svo óskap­lega heppin að ég er með sam­visku­bit yfir því. Það eru ekki öll svo heppin, við fjöl­skyldan erum til að mynda að fara að halda 25. jólin án pabba míns sem var ekki eins hepp­inn í slagnum við krabba­meinið og ég.“

„Eftir þá lífs­reynslu að takast á við krabba­mein get­urðu aldrei orðið sama mann­eskja og þú varst áður,“ segir hún ákveðin. „Það er ekki hægt að ganga bara inn í sama lífið. Maður breytir for­gangs­röð­inni og langar ekki að gera það sem maður var vanur að gera. Ég veit ekki nákvæm­lega hvað það er sem mig langar að gera, hef ákveðið að geyma þá ákvörðun fram á næsta ár. Mig langar líka til að koma á fót ein­hvers konar hjálp­ar­starfi fyrir ungar konur sem hafa greinst með brjóstakrabba­mein. Ég á eftir að sjá hvernig ég get útfært það. Er aðeins byrjuð á Facebook að leiða grúppur fyrir ungar konur með brjóstakrabba­mein og langar að vinna meira með það á alþjóð­legum vett­vangi.“

Nú eru önnur jól að skella á og í þetta sinn verður Ingi­björg heima á Íslandi með fjöl­skyld­unni. Það er nóg til þess að þetta verði góð jól, segir hún.
„Ég hef alltaf verið mikið jóla­barn,“ upp­lýsir hún og grettir sig. „Verið alveg óð í skreyt­ingum og alls kyns jóla­und­ir­bún­ingi, en ég hef eig­in­lega alveg látið það vera í ár, það minnir mig bara á jólin í fyrra sem er ekki það sem ég er að sækj­ast eftir. Ég var heppin, svo óskap­lega heppin að ég er með sam­visku­bit yfir því. Það eru ekki öll svo heppin, við fjöl­skyldan erum til að mynda að fara að halda 25. jólin án pabba míns sem var ekki eins hepp­inn í slagnum við krabba­meinið og ég. Og ég veit um allt of mörg börn sem eru að fara að halda fyrstu jólin án for­eldris vegna þess að krabba­mein er ekki alltaf lækn­an­legt, ekki einu sinni núna þegar árið 2020 er að ganga í garð. Ég veit að það hljómar mjög væmið og ég hef aldrei verið þessi væmna týpa, en það að geta notið litlu hlut­anna; drukkið kakó og borðað köku og fundið bragð af því, til dæmis, er svo góð upp­lifun og gerir mig svo glaða að ég þarf ekk­ert ein­hver jóla­læti til að upp­lifa gleði og full­nægju. Bara það að vera hérna enn þá er nóg.“

Lestu við­talið við Ingi­björgu Rósu í heild sinni í nýj­ustu tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina