Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við þurfum ekkert presta“

Davíð Þór Jónsson hefur verið starf­andi prestur í fimm ár og dálít­ill styr staðið um hann í því emb­ætti. Sumum þykir til dæmis ekki við hæfi að prestur semji og syngi hápóli­tíska og rót­tæka texta eins og hann gerir með hljóm­sveit­inni Aust­ur­víg­stöðv­unum. Öðrum þykir for­tíð hans ekki presti sæm­andi, en Davíð blæs á slíkt tal. Það sé löng hefð fyrir því að prestar séu virkir í stjórn­málum og for­tíð hans geri hann, ef eitt­hvað er, hæf­ari til að sinna mörgum af þeim sem til hans leiti sem prests. Hann hafi þó reyndar ekki stefnt að því að taka prest­vígslu þegar hann hóf nám í guð­fræði, en starfið hafi staðið undir öllum hans vænt­ingum og rúm­lega það.

„Við þurfum ekkert presta“
Davíð Þór Jónsson

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræðir hann meðal ann­ars prest­starfið, hjóna­bandið og for­tíð­ina.

„Ég átti alveg von á því að þetta starf myndi gera kröfur til mín,“ segir hann. „Ég hef átt bæði góðar og mjög erf­iðar stundir í starfi. Ef þú hefðir spurt mig árið 1991, þegar ég var að byrja í guð­fræð­inni, hvað ég ætl­aði að gera við þessa menntun þá hefði ég sagt þér að ég ætl­aði að verða kenn­ari við guð­fræði­deild Háskóla Íslands og stríða bók­stafs­trú­ar­fólk­inu sem kemur þar inn og getur ekki hugsað um ritn­ing­una á akademískum for­sendum. En sá draumur er far­inn. Ég held ég sé kom­inn á þann aldur að ég fari ekki að bæta við mig þeim prófum sem maður þarf að hafa til þess að verða pró­fessor við Háskóla Íslands héðan af.“

Davíð Þór segir að áherslur hans hafi breyst eftir því sem leið á námið í guð­fræð­inni.

„Það gerð­ist aðal­lega með kynnum mínum af prestum í gegnum námið,“ útskýrir hann. „Ég fór að sjá dálítið aðra mynd af stétt­inni og starf­inu. Síðan hætti ég í guð­fræði­námi árið 1993, eftir að hafa stundað það í tvö og hálft ár, því lít­ill útvarps­þáttur sem ég var með hafði slegið í gegn og ég þurfti að velja og hafna, ákveða hvort ég ætl­aði að vera í háskóla eða í sjó­bis­ness. Þannig að ég hætti í guð­fræð­inni og vann við sjó­bis­ness og fjöl­miðla í þrettán ár.“

Er nokkuð langt þar á milli? Er starf prests­ins ekki hálf­gerður sjó­biss­ness?

„Það er alveg hægt að taka því þannig,“ segir Davíð Þór og ég heyri að hann er ekki hress með þessa spurn­ingu. „Vissu­lega eru sam­eig­in­legir þættir, en starf prests­ins er ekki leik­hús, ekki per­formans en það þýðir ekki að maður megi van­rækja sjón­ræna og leik­ræna þátt­inn í því sem við erum að gera. Vegna þess að það hefur svo mikil áhrif og með hinu sjón­ræna og leik­ræna get­urðu miðlað hlutum sem þú getur aldrei gert með orðum. Mikið af því sem við skiljum, skiljum við öðru­vísi en með eyr­unum.“

Sumir halda því fram að kirkjan sé úrelt stofnun og engin þörf á prestum í nútíma­sam­fé­lagi, hvaða skoðun hefur Davíð Þór á því?

„Við þurfum ekk­ert presta,“ segir hann strax. „Við þurfum ekki heldur bíla og við gætum búið í tjöldum. Við kæm­umst alveg af án presta og kirkju, það þyrfti þá bara að koma ákveðnum hlutum öðru­vísi fyrir. Það þyrfti þá að fjölga hjá sýslu­mönnum til að gifta fólk, við þyrftum að ákveða hvað við ætl­uðum að gera til að losna við jarð­neskar leifar fólks ef engir prestar væru til að sjá um athafnir í kringum það. Ég held að fólk hafi þörf fyrir athafnir, hvort sem það er menn­ing­ar­leg eða sál­ræn nauð­syn. Þannig að, já, við kæm­umst alveg af án kirkju og presta en spurn­ingin er; væri það betra? Ég myndi svara þeirri spurn­ingu neit­andi.“

En er kirkjan góður vinnu­veit­andi, ertu sáttur við hvernig hún er rekin?

„Það er nú kannski ekki alveg að marka mig sem er búinn að vera í fríl­ansi og harki allt mitt líf og lendi allt í einu í því fjöru­tíu og níu ára gam­all að búa við tekju­ör­yggi og vita hvað ég hef í laun næsta mánuð,“ segir Davíð Þór. „Það léttir af mér óviss­unni. Kirkjan er mjög góður vinnu­veit­andi, alla­vega hvað varðar and­legan stuðn­ing og móral innan stétt­ar­innar. Við leitum upp til hópa hvert til ann­ars. Auðvitað er mis­jafn sauður í mörgu fé og menn eiga ýmist skap saman eða ekki en ég hef í presta­stétt fundið bæði mót­byr og mik­inn stuðn­ing og hvatn­ingu. Og þegar ég stend frammi fyrir upp­gjöf og kulnun sæki ég í skjól mér eldri og reynd­ari kollega. En það snertir auð­vitað ekki kirkj­una sem vinnu­veit­anda bein­línis og það er ýmis­legt sem ég myndi vilja sjá breyt­ast innan kirkj­unnar. Ég vil sjá stór­aukna lýð­ræð­i­svæð­ingu og dreifræði innan hennar, vil minnka mið­stýr­ing­una og hef stundum talað um að við þurfum að rífa þennan valdapýramída og smíða úr honum raðkassa­lengju.

„Þegar ég stend frammi fyrir upp­gjöf og kulnun sæki ég í skjól mér eldri og reynd­ari kollega.“

Nú er ég ekki lög­fræð­ingur heldur guð­fræð­ingur og það er auð­velt fyrir mig að benda á gall­ana við lögin um þjóð­kirkju frá 1997 þegar emb­ætti og verk kirkju­mála­ráð­herra færð­ust yfir á biskup, sem er svo guð­fræði­lega kol­rangt og and­lút­erskt að í kjöl­farið á þessum lögum vorum við komin með valda­mesta biskup á Íslandi frá upp­hafi Íslands­byggðar. Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að tala um þá bisk­upa sem setið hafa, þeir hafa sinnt sínum störfum af eins mik­illi trú­mennsku og þeir hafa verið færir um, þótt ég geti gagn­rýnt ákveðin ummæli þeirra og gjörðir. Hitt sem truflar mig, eins og staðan er núna, er hvernig staðið er að vali á prestum, að ég tali nú ekki um val á bisk­upum. Samkvæmt okkar hefð er lögð rík áhersla á rétt söfn­uða til að velja sér prest en eins og ástandið er núna er auð­veld­ara fyrir fólk að bjóða sig fram til for­seta heldur en að knýja fram almenna prest­kosn­ingu í sókn­inni sinni og hafa þar með eitt­hvað um það að segja hver er prestur þess. Það er alltaf verið að hræra í þessum lögum, það er mik­ill ótti við almennar prest­kosn­ingar og ég veit að margir eru brenndir af þeim og þær hafa stundum tekið á sig ljóta mynd.“

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina