Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áhugaverð og umhugsunarverð nálgun á hönnun

Hol­lenski vöru­hönn­uð­ur­inn Christien Meind­ertsma hefur unnið fjölda áhuga­verðra verk­efna frá útskrift sinni frá Design Academy Eind­hoven árið 2003. Rann­sóknir hafa skipað mik­ils­vert hlut­verk í hennar starfi og hefur hún meðal ann­ars lagt upp úr því að kanna líf vara og óunn­inna eða hrárra efna.

Áhugaverð og umhugsunarverð nálgun á hönnun

Í sumum til­fellum er loka­út­koma verk­efn­anna ferlið sjálft, meðan í öðrum verða til hefð­bundn­ari fram­leiðslu­vörur. Rík áhersla er á að varpa ljósi á þau ferli sem hafa orðið okkur fjar­læg í kjöl­far iðn­bylt­ing­ar­innar og dýpka skiln­ing á þeim efnum og vörum sem eru allt í kringum okkur.

Verk­efnin hennar eru óneit­an­lega út fyrir það sem flestir hugsa að vöru­hönn­uður geri og vekja mann til umhugs­unar, bæði um eigið líf og heim­inn okkar. Verk Christien Meind­ertsma eru til sýnis í MOMA-safn­inu í New York, The Victoria & Albert Museum í London og Vitra Design Museum í Weil am Rein. Hún hefur einnig unnið til fjölda verð­launa fyrir störf sín, Dutch Design Award, Index Award og Future Award.

PIG 05049

Í þessu verk­efni kann­aði Christien tengsl milli hrárra og óunn­inna efna og þeirra hvers­dags­legu hluta sem við not­umst við í dag­legu lífi. Rann­sóknin leiddi í ljós eins­konar net milli upp­sprett­unnar eða hráa efn­is­ins og neyt­and­ans en þessi teng­ing hefur orðið sífellt ósýni­legri í nútíma­sam­fé­lagi.

Bókin PIG 05049 gefur yfir­sýn yfir allar þær vörur og afurðir sem svínið er notað í.
Bókin hlaut Hol­lensku hönn­un­ar­verð­launin árið 2008 og Index-verð­launin árið 2009.

Undir lok verk­efn­is­ins PIG 05049 árið 2007 setti hönn­uð­ur­inn saman afar áhuga­verða bók, þar sem tal­inn er upp hver ein­asti hlutur fram­leiddur úr svínum eða ein­hvers­konar svína­af­urðum. Lesendur fá yfir­grips­mikla sýn yfir hversu víða ein afurð  eða hrá­efni dreif­ist og í hve marga hvers­dags­lega hluti þær eru not­aðar.

Bókin hlaut Hol­lensku hönn­un­ar­verð­launin árið 2008 og Index-verð­launin árið 2009.

Flax Project

Verk­efnið hófst árið 2008, stendur enn yfir og hefur leitt af sér marga anga og áhuga­verð hlið­ar­verk­efni. Eitt þeirra fól í sér að hönn­uð­ur­inn tók þá ákvörðun að fjár­festa í heilli upp­skeru af hör af hol­lenskum bónda, heilum 10.000 kg.

Christien Meind­ertsma tók þá ákvörðun að fjár­festa í heilli upp­skeru af hör af hol­lenskum bónda, heilum 10.000 kg.

Hör er enn rækt­aður víða um Evrópu þar sem lofts­lagið er rakt og hlýtt, en 90% af evr­ópsku upp­sker­unni er seld til Kína þar sem ofið er efni úr hör. Christien vildi kanna hvort mögu­legt væri að nýta efnið á stað­bundn­ari hátt en gert er í dag og skapa heild­stæða vöru­línu úr upp­sker­unni.

Stóll unn­inn úr hör og vist­vænu plasti.

Í upp­hafi hófst hún handa við að spinna fín­gert garn úr hör, sem hún nýtti svo til fram­leiðslu á visku­stykkjum, dúkum og serví­ettum. Síðar vann hún annað verk­efni úr upp­sker­unni en það var stóll úr hör og PLA, sem er vist­vænt nið­ur­brjót­an­legt plast. Stólinn er ein­stak­lega sterk­byggður en hann er úr löngum hör­trefjum sem búið er að þæfa og síðar press­aðar inn í bráðið plastið til að móta stól­inn.

Áhuga­verð nálgun Christien Meintertsma á hönnun er umhugs­un­ar­verð og gefur mögu­lega inn­sýn í hvað hönn­uðir fram­tíð­ar­innar munu koma til með að fást við.

Verk­efnið Arita var hannað með það í huga að upp­hefja sögu og kunn­áttu postu­líns­gerð­ar­fólks á Arita-svæð­inu í Japan.

Myndir / Frá fram­leið­endum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni