Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Trúr sjálfum sér

Sindri Már Sig­fús­son sem er meðal ann­ars þekktur fyrir að hafa stofnað hljóm­sveit­ina Seabear var að senda frá sér plöt­una Sad Party. Hann segir plöt­una hafa verið gerða á tíma sem margir vina hans ströggl­uðu við að lifa af sem tón­list­ar­menn eða í tón­list­ar­tengdum störfum.

Trúr sjálfum sér

„Leigu­verð var að hækka og fólk var rekið úr stúd­íó­unum og æfing­ar­hús­næði. Mér fannst eitt­hvað ákveðið von­leysi í gangi í kringum mig og þessi plata var svona við­bragð við því,“ segir Sindri, en hann tók upp plöt­una Sad Party að mestu hjá vini sínum sem var með stúdíó á Lauf­ás­vegi í nokkur ár. „Þetta var æðis­legt stúdíó með útsýni yfir Hljóm­skála­garð­inn. Hann var að missa hús­næðið þannig að ég ákvað að taka upp plöt­una þarna á sein­ustu þremur vik­unum sem hann var með stúd­íóið til umráða.“

Vill ekki búa í heimi án tónlistar

Sindri hefur ávallt verið trúr sjálfum sér og sinni tón­list­ar­sköpun og aldrei samið tón­list sem er ekki í hans anda. Spurður hvort það sé aldrei erfitt, er hann fljótur til svars. „Þegar ég byrj­aði að vinna að tón­list af alvöru ákvað ég að ég myndi hætta ef þetta yrði ein­hvern tím­ann leið­in­legt eða kvöð. Ég hef prófað ýmis­legt í gegnum árin og eig­in­lega alltaf bara elt það sem mér finnst spenn­andi að gera,“ segir hann og bætir við að það gefi honum ótrú­lega mikið að semja og hlusta á tón­list. Hann gæti ekki hugsað sér að búa í heimi án hennar.

„Þegar ég byrj­aði að vinna að tón­list af alvöru ákvað ég að ég myndi hætta ef þetta yrði ein­hvern tím­ann leið­in­legt eða kvöð.“

Ef und­an­skilin er platan Team Dreams, sem var sam­starfs­verk­efni Sindra, Sóleyjar Stef­áns­dóttur og Örvars Smára­sonar, þá er Sad Party fyrsta platan sem Sindri hljóð­blandar með sjálfum sér. „Mér fannst það bara ganga vel,“ segir hann. „Þetta snýst eig­in­lega svo­lítið um að setja á sig mis­mun­andi hatta, vera tón­list­ar­maður einn dag­inn og semja og spila, en pródúsent og hljóð­bland­ari þann næsta og klára þá tón­list­ina, svona eins og ég sé að vinna fyrir ein­hvern annan,“ útskýrir hann, en ásamt Sindra spilar Magnús Tryggva­son Eliassen á trommur í þremur lögum á plöt­unni, Arn­ljótur Sig­urðs­son spilar á bassa í einu þeirra og Ingi Garðar Erlends­son spilar á brass og aðstoðar Sindra við útsetn­ing­arnar á því.

Með annan fótinn í Los Angeles

Sindri hefur komið víða við á ferl­inum. Síðustu ár hefur hann meðal ann­ars verið að semja tón­list með tón­list­ar­fólki hér heima og svo farið nokkrum sinnum til Los Angeles þar sem hann hefur unnið að kvik­mynda­tengdum tón­list­ar­verk­efnum. „Allt mjög skemmti­legt,“ segir hann og tekur fram að honum finn­ist gaman að vera hér heima, sér­stak­lega á vet­urna. Hann sé búsettur á Íslandi og ekki spenntur fyrir því að flytja annað.

En hvað er fram undan? „Ég er með næstu Sin Fang EP-plötu til­búna og er langt kom­inn með fyrstu plöt­una sem ég ætla að gefa út undir mínu eigin nafni. Svo er ég að vinna plötu með hljóm­sveit­inni Seabear og spila reglu­lega með Separate Boys. Ég hef líka verið að gefa út eitt­hvað raf-rugl undir nafn­inu Slim Fang og loks er mikið af sjón­varps- og kvik­mynda­tengdum verk­efnum á dag­skrá næstu mán­uði.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu