Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Úr hugbreytandi efnum í tebolla

Ekki hringja í nótt, er nýjasta lagið hans Joseph Muscat eða Seint en hann hefur verið lengi í tón­list­inni, meðal ann­ars í nokkrum harð­kjarna­hljóm­sveitum. Þegar Joseph fjár­festi í sinni fyrstu far­tölvu árið 2009 kvikn­aði áhug­inn hjá honum að búa til raf­tón­list. Albumm hitti á kapp­ann og fékk að for­vitn­ast um hvernig allt þetta byrj­aði.

Úr hugbreytandi efnum í tebolla

„Ég hef verið í metal og harð­kjarn­anum síðan árið 2003. Þá byrj­aði ég að spila á bassa í metal-hetju­hljóm­sveit­inni Brothers Majere sem tók þátt í Mús­íktil­raunum árið 2004. Það var árið sem Mammút sigr­aði.“

Hljóm­sveitin lagði í laupana rétt fyrir 2005 og spil­aði lokatón­leik­ana í TÞM, Tón­list­ar­þró­un­ar­mið­stöð­inni, þar sem hún fékk að hita upp fyrir eina af upp­á­halds­hljóm­sveitum Josephs í harð­kjarn­anum, Modern life is war. „Það var heið­ar­legur dauð­dagi fyrir sveit­ina. Hún virð­ist á seinni árum hafa fengið smá­vegis „cult status“ í metal-sen­unni hérna heima. Þar sem við vorum ein­ungis 15 ára þegar við gáfum út okkar fyrstu official-útgáfu. En það var 15 mín­útna metal-ópera sem kall­ast Read an ephip­any. Hægt er að hlusta á hana á Youtube, þrátt fyrir að ég hafi ekki hug­mynd um hvernig hún rataði þangað þar sem engin okkar setti hana upp. En gaman af þessu.“

Úr ösku þeirrar hljóm­sveitar stofn­aði hann Celestine árið 2006. „Hún hefur starfað síðan en með miklum með­lima­skiptum í gegnum árin. Þetta er bara svo inn­gró­inn partur af mér að berja á gít­ar­inn að ég held ég muni aldrei sleppa tak­inu af honum,“ segir Joseph en hljóm­sveitin er að vinna að sinni fjórðu plötu og planið er að halda tón­leika á næstu mán­uðum.

Joseph var svo í goð­sagna­kenndu harð­kjarna­hljóm­sveit­inni I adapt árið 2008 og segir hann að sú hljóm­sveit sé ein ástæða þess að hann ákvað að feta braut tón­list­ar­innar. „Það var hinn æðsti heiður að hafa fengið að koma fram með henni sein­asta hálfa árið sem hljóm­sveitin var starf­andi,“ segir hann. „Hljóm­sveitin tók ævin­týra­legan túr um Banda­ríkin og end­aði á 500 manna troð­fullum lokatón­leikum í TÞM. Nítján ára ég fékk þennan draum upp­fylltan og verð ég ávallt þakk­látur fyrir það.“

„Það var hinn æðsti heiður að hafa fengið að koma fram með henni sein­asta hálfa árið sem hljóm­sveitin var starf­andi.“

Var ungur og for­vit­inn
Hvað var það sem fékk þig til að breyta um tón­list­ar­stefnu? „Minn áhugi á að búa til raf­tón­list kvikn­aði árið 2009 þegar ég fékk fyrstu far­tölv­una mína. En ég hafði hlustað mikið á hljóm­sveitir á borð við Nine Inch Nails og Massive Attack og síðan á hipp hopp í bland við það. Plús hug­breyt­andi efni á þeim tíma sem höfðu auð­vitað áhrif á hversu glaður ég var að prófa nýja hluti. Enda var ég ungur og for­vit­inn. Í dag er góður tebolli nóg fyrir mig til að koma mér í sköp­un­ar­gír,“ segir hann og hlær. „En ég rokk­aði alltaf líka og hef sinnt öllum mínum verk­efnum í tón­list af jafn­miklum áhuga. Seint kom mun seinna inn í mynd­ina eftir að ég hafði prófað mig áfram í alls­konar stefnum,“ útskýrir hann og bætir við að fyrsta platan sem hann gaf út undir því nafni hafi verið á árinu 2015.
Segja má að hljóð­heim­ur­inn sem Joseph er búin að skapa sér sé algjör­lega sér á báti. Hann seg­ist hafa verið fljótur að finna sig í rokk­inu enda aðeins 18 ára þegar Celestine sendi frá sér sína fyrstu plötu sem fékk glimr­andi við­tökur um allan heim­inn í jað­ar­sen­unni. „Ég var semj­andi slík lög á háum skala mjög snemma. Örugg­lega í svip­uðum gír og krakk­arnir í hipp hopp og popp­inu í dag. Hins vegar tók mig mun lengri tíma að fikra mig áfram í raf­tón­list­inni þar sem ég var í raun aldrei viss hvað það var nákvæm­lega sem ég vildi koma áleiðis.“

Texti/Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu