Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk þarf að læra önnur ráð en að beita ofbeldi

Um helm­ingur ger­enda sem leitar sér aðstoðar vegna heim­il­is­of­beldis klárar með­ferð. Úrræðið Heim­il­is­friður hét áður Karlar til ábyrgðar en í dag eru um 20% þeirra sem sækja þjón­ust­una konur. Um 85% ger­enda eiga mikla áfalla­sögu að baki.

Fólk þarf að læra önnur ráð en að beita ofbeldi
|Andrés Proppé Ragn­ars­son||

Um 1.100 til 1.200 manns hafa sótt þjón­ustu hjá Heim­il­is­friði, með­ferðar- og þekk­ing­ar­mið­stöð um ofbeldi í nánum sam­böndum, eftir að úrræðið var stofnað árið 1998. Í þá daga hét það Karlar til ábyrgðar en því var breytt árið 2014, enda eru konur 20% þeirra sem nýta sér þjón­ust­una. Um er að ræða úrræði fyrir ger­endur heim­il­is­of­beldis, þá sem beita maka eða bæði maka og börn ofbeldi, og þrátt fyrir að hafa farið hægt af stað hefur aðsóknin vaxið gríð­ar­lega síð­ustu ár.

Andrés Proppé Ragn­ars­son

„Forsagan er sú að um 85% þeirra sem koma til okkar eiga gríð­ar­mikla áfalla­sögu og flestir þeirra, eða um 80%, voru sjálfir vitni að eða fórn­ar­lömb ofbeldis sem börn. Og það þarf að byrja þar,“ segir Andrés Proppé Ragn­ars­son sál­fræð­ingur um það hvernig með­ferð­inni er háttað. „En í grunn­inn felst með­ferðin í því að við þurfum að kenna fólki að gera eitt­hvað annað en að beita ofbeldi; gera hlut­ina á annan hátt, vinna þá á annan hátt, hugsa þá á annan hsátt. Þannig að við erum að vinna með atferli, hugs­anir, gild­is­mat og ráð­ast á mynstur sem eru ævi­löng. Við erum í raun að end­ur­for­rita ansi margt og þarna sjáum við gjarnan að fólk er hjá okkur yfir langan tíma.“

Að sögn Andrésar, sem fer fyrir Heim­il­is­friði, detta um 20% þeirra sem leita sér aðstoðar út eftir einn til þrjá tíma. Um helm­ingur „klárar“ með­ferð­ina á einu til þremur árum og það hefur raunar reynst erfitt að útskrifa fólk. „Við sjáum að fólkið vill ekki hætta,“ segir Andrés. „Þetta er hluti af örygg­is­net­inu: Á meðan ég kem hérna er allt í lagi. Þannig að við erum að velta ýmsu fyrir okkur í þessu; hvort við eigum að stofna sjálfs­hjálp­ar­hópa í kringum AA-kerfið … því við getum ekki sinnt þessu sjálf.“ Heim­il­is­friður er fjár­magnað með fram­lögum frá félags­mála­ráðu­neyt­inu og þrátt fyrir að vilja getað gert meira seg­ist Andrés finna fyrir miklum skiln­ing og vel­vilja hjá stjórn­völdum.

„Margir sem koma til okkar, flestir jafn­vel, gera lítið úr ofbeld­inu; fela það og nota mjög veik lýs­ing­ar­orð til að mínimalisera það.“

Afleiðingar ofbeldishegðunar karla og kvenna afar ólíkar

Þeir sem sækja aðstoð hjá Heim­il­is­friði gera það ýmist að eigin frum­kvæði eða vegna þess að þeim hefur verið vísað þangað af yfir­völdum á borð við barna­vernd. Að sögn Andrésar er það nú fast verk­lag hjá lög­reglu að láta félags­mála- og barna­vernd­ar­yf­ir­völd vita þegar hún er kölluð á vett­vang vegna heim­il­is­of­beldis. Fyrstu tím­arnir fara í klínískt mat og í fram­hald­inu er lögð áhersla á að gera ofbeldið „sýni­legt“. „Margir sem koma til okkar, flestir jafn­vel, gera lítið úr ofbeld­inu; fela það og nota mjög veik lýs­ing­ar­orð til að mínimalisera það. Og við tök­umst alltaf beint á við það til að kom­ast í næsta kafla, sem snýst þá um að ég ber ábyrgð á minni hegðun og mínu ofbeldi og það er bara ég sem geri það. Einu sinni sagði ein­hver við mig: „Ég er búinn að vera hérna í þrjú ár og það eina sem þú hefur kennt mér er að það má ekki segja „en“,“ útskýrir Andrés. En, þannig sé það. „Ég geri þetta og það er ekk­ert „en“ á eftir því. Ég gerði þetta, ég ber ábyrgð á því. Punktur.“

En er eðl­is­munur á körlum og konum sem ger­endum?

„Lík­am­lega ofbeld­is­hegð­unin sem við sjáum er ósköp álíka hjá körlum og konum,“ svarar Andrés. „Afleið­ingar ofbeld­is­hegð­unar karla og kvenna hins vegar, sér­stak­lega af lík­am­legu ofbeldi, eru ólíkar að því leiti að konur upp­lifa sig mjög oft í hættu og er gríð­ar­lega ógnað þegar um er að ræða lík­am­legt ofbeldi. Í krafti afls­munar. Á meðan karlar sem eru þolendur, þeim finnst þetta oft frekar vand­ræða­legt; upp­lifa nið­ur­læg­ingu eða lít­il­lækkun en ekki þessa miklu ógn gegn lífi og limum. Í þessu felst mik­ill munur.“

Munur á upplifun gerenda og þolenda

Þegar ein­stak­lings­með­ferðin er farin að bera árangur fer fólk að taka þátt í hóp­tímum. En hvaða breyt­ingar eru það sem Andrés vill sjá áður en hann útskrifar fólk?

„Ég vil sjá alla ofbeld­is­hegðun hætta. Það ger­ist ekki alltaf,“ svarar hann. Hann vísar hins vegar til úttektar sem gerð var á Heim­il­is­friði árið 2014, þar sem úrræðið kom mjög vel út. „Það kom í ljós að í lang­flestum til­vikum var lík­am­legt ofbeldi hætt. Þannig að okkur tekst það býsna vel. Við vorum ekki eins flott varð­andi and­legt ofbeldi og það á sér skýr­ingar í því að bæði er það flókn­ara fyr­ir­brigði og það tekur lengri tíma að vinna með það. Það var nú ein af nið­ur­stöðum þess­arar rann­sóknar, að við þyrftum að gefa fólki lengri tíma í með­ferð.“

Það kom líka í ljós nokkur munur á milli upp­lif­unar ger­enda og þolenda. „Þetta var mjög skýrt þegar spurt var um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Alls 2% ger­enda sögðu frá kyn­ferð­is­legu ofbeldi en þegar þú spurðir mak­ana þá voru um 30% sem sögð­ust hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Þetta kenndi okkur líka að við vorum allt of lítið vak­andi yfir því og breyttum verk­lagi hjá okkur í kringum það,“ segir Andrés. Þá sögð­ust 22% ger­enda hafa beitt and­legu ofbeldi eftir með­ferð­ina en 50% þolenda verið beitt and­legu ofbeldi.

Báðir hópar voru þó nokkuð ánægðir með úrræðið og sögðu ger­endur t.d. að með­ferðin hefði hjálpað þeim að verða betri makar og feður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina