Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjálmar Jónsson um ummæli Stefáns Einars: „Það verður hver að þjóna sinni lund“

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands gefur ekki mikið fyrir orð frétta­stjóra við­skipta­f­rétta Morg­un­blaðs­ins.

Hjálmar Jónsson um ummæli Stefáns Einars: „Það verður hver að þjóna sinni lund“

Fyrr í dag tjáði Stefán Einar Stef­áns­son, blaða­maður á Morg­un­blað­inu, sig á Facebook um upp­sagnir á Morg­un­blað­inu og virð­ist kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að þær séu samn­inga­nefnd Blaða­manna­fé­lags­ins og for­mann­inum Hjálmari Jónssyni að kenna.

„Í dag horfum við starfs­fólk Árvakurs á eftir 15 öfl­ugum og góðum sam­starfs­mönnum sem sagt er upp vegna rekstr­ar­erf­ið­leika fyr­ir­tæk­is­ins. Á morgun ætlar Hjálmar Jónsson að lama þetta sama fyr­ir­tæki með 12 tíma löngu verk­falli. Annað svipað á að fylgja í næstu viku. Enn harð­ari aðgerðum hefur verið hótað í kjöl­farið,“ segir Stefán Einar og bætir um betur með því að segja að sér sé orðið ljóst að for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins sé ekki í neinum tengslum við raun­veru­leik­ann. Því miður virð­ist sem samn­inga­nefnd félags­ins sé það ekki heldur. „Það er erfitt að bjarga mönnum frá sjálfum sér. Það er hins vegar verra þegar ekki er hægt að bjarga sak­lausu fólki frá heimsku þeirra.“

Mannlíf sló á þráð­inn til Hjálmars og spurði hvað honum fynd­ist um þessi umm­mæli. „Það verður hver að þjóna sinni lund,“ segir hann. „Þessi ummæli dæma sig sjálf og eru ekki svara verð.“

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hafa Hjálmar og Stefán eldað grátt silfur í yfir­stand­andi kjara­bar­áttu blaða­manna. Til marks um það neit­aði Stefán Einar því ekki í sam­tali við Stundina að bera ábyrgð á fréttum sem birst hafa á vef­miðli Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, á meðan verk­falli blaða­manna hefur staðið. Í við­tal­inu kom m.a. fram að Stefán teldi slíkt ekki vera verk­falls­brot. „Hjálmar Jónsson er bara eng­inn verk­stjóri yfir mér eða öðru starfs­fólki hér,“ var haft eftir honum í Stund­inni, en ummæli og aðgerðir Stefáns Einars hafa vakið athygli ekki síst í ljósi þess að hann var áður for­maður VR.

Mörgum hefur reyndar líka blöskrað fram­ganga Stefáns Einars í mál­inu. Stefán Óli Jónsson, blaða­maður á Vísi, var til að mynda einn þeirra sem tjáði sig um hana á Twitter. „Það er samt ógeðs­lega kúl að fyrr­ver­andi for­maður VR, verka­lýðs­for­ing­inn og sið­fræð­ing­ur­inn hann nafni minn sem er með c.a. tvö­föld laun venju­legs blaða­manns, sé sagður fremstur í flokki verk­falls­brjóta. Ljóðrænt,” segir Stefán Óli og vísar þar til nafna síns, Stefáns Einars.

Síðustu ummæli Stefáns Einars um samn­inga­nefnd Blaða­manna­fé­lags­ins og for­mann­inn hafa heldur ekki bein­línis fallið í kramið hjá Net­verjum, sem láta blaða­mann­inn nú heyra það á Facebook. „Er sem sagt beint sam­band milli þess­ara upp­sagna og kjara­bar­áttu blaða­manna?“ spyr Ásgeir Jónsson blaða­maður til að mynda á Facebook-síðu Stefáns Einars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina