Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björk um Samherjamálið: „Fékk velgju yfir allri spillingunni“

Björk Vil­helms­dóttir var hand­tekin af ísra­elska hernum, ásamt Tinnu Eyberg Örlygs­dóttur og tveimur frönskum konum, Nanou og Isabel, í síð­asta mán­uði þegar hún var við ólífu­tínslu í Palest­ínu og sat í haldi í þrjá tíma. Hún segir frá þess­ari lífs­reynslu í við­tali við Mannlíf og tjáir sig einnig um Sam­herj­a­málið svo­kall­aða sem er í brennid­epli þessa stund­ina.

Björk um Samherjamálið: „Fékk velgju yfir allri spillingunni“

„Ég er svo­lítið upp­tekin af firr­ing­unni á Íslandi og til­gangs­leys­inu og þegar maður kemur héðan út til Palest­ínu þá finnst manni maður vera meiri hluti af hinu raun­veru­lega lífi. Fólk er ham­ingju­samt þótt það hafi ekki nein efn­is­leg gæði, búi við mjög miklar hömlur í öllu dag­legu lífi og geti oft ekki gert það sem það ætl­aði sér,“ segir Björk meðal ann­ars. Hún segir fólk í Palest­ínu búa við stöðuga ógn.

Sem dæmi um nán­ast dag­legar upp­lif­anir Palest­ínu­manna af ofbeldi segir Björk frá mjög grófri árás land­töku­fólks sem átti sér stað nokkrum dögum áður en þær stöllur voru hand­teknar.

Sem dæmi um nán­ast dag­legar upp­lif­anir Palest­ínu­manna af ofbeldi segir Björk frá mjög grófri árás land­töku­fólks sem átti sér stað nokkrum dögum áður en þær stöllur voru hand­teknar.

„Þá vorum við líka að tína ólífur með bónda í Burin og vissum að bónd­inn við hlið­ina var einnig með alþjóð­lega sjálf­boða­liða þann dag,“ segir hún.

„Allt í einu kemur palest­ínskur maður hlaup­andi og skipar okkur að forða okkur því það sé farið að brenna. Við tókum saman græjurnar og fórum að feta okkur niður hlíð­ina. Reyk­ur­inn var kom­inn mjög nálægt okkur og ég varð svo­lítið hrædd því ólífu­trén brenna mjög hratt. Við komumst niður á veg og þá fór að koma til okkar blóð­ugt fólk sem hafði orðið fyrir grjót­kasti og bar­smíðum af hendi land­töku­fólks­ins. Það voru ekki bara Palest­ínu­menn, heldur bæði ísra­elskir frið­ar­sinnar og útlend­ingar, fólk sem hafði verið grýtt og barið með felgu­lyklum og öðrum bar­eflum.

„Mér varð einmitt hugsað til hennar þegar ég horfði á Kveiks­þátt­inn um Samherja, fékk velgju yfir allri spill­ing­unni og skamm­að­ist mín svo inni­lega fyrir sam­landa mína.“

Svo kom til okkar ung kona með bæna­bönd í vest­inu sem sýndi að hún var trú­aður gyð­ingur. Ég varð mjög hissa að sjá hana, skildi ekki hvað hún var að gera þarna. Ég sá samt að hún var ekki í árás­ar­lið­inu og spurði hana hvað væri að ger­ast. Hún sagði mér að tutt­ugu til þrjá­tíu land­töku­menn hefðu verið að kveikja í ólífutrjánum og ráð­ast á bændur og frið­ar­sinna. Þegar ég hlust­aði á hana klökkn­aði ég og átti erfitt með að fara ekki að háskæla, ég vor­kenndi henni svo ofboðs­lega að þurfa að horfa upp á annað strang­trúað fólk, hennar fólk, ráð­ast að öðru fólki og bera enga virð­ingu fyrir lífi þess og lífs­við­ur­væri. Mér varð einmitt hugsað til hennar þegar ég horfði á Kveiks­þátt­inn um Samherja, fékk velgju yfir allri spill­ing­unni og skamm­að­ist mín svo inni­lega fyrir sam­landa mína. Þannig hlýtur ísra­elsku frið­ar­sinn­unum að líða þegar þeir upp­lifa sitt fólk hegða sér svona.“

Þrátt fyrir þessa reynslu segir Björk að ekki komi til mála að hætta að fara til Palest­ínu á haustin og hjálpa bænd­unum við ólífu­tínsl­una.

„Ég vil fara aftur og aftur til Palest­ínu því það gefur mér svo mikið,“ segir hún.

Lestu viðtalið í heild sinni í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­meist­ari Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina