Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Misjöfn reynsla pólskra innflytjenda á Íslandi

Gríð­ar­legar breyt­ingar hafa orðið á íslensku sam­fé­lagi á síð­ustu ára­tugum og er ein breytan þar mik­ill fjöldi inn­flytj­enda. Stærsti hóp­ur­inn sam­anstendur af Pól­verjum og hafa þeir eins mis­jafna reynslu af dvöl sinni á Íslandi og þeir eru margir.

Misjöfn reynsla pólskra innflytjenda á Íslandi
Mynd / Þórður Snær

Pól­verjar á Íslandi fóru yfir 20 þús­unda múr­inn í sumar og eru þeir lang­fjöl­menn­asti hópur inn­flytj­enda hér á landi. Þeir byrj­uðu að koma hingað fyrir mörgum ára­tugum en í góð­ær­inu fyrir hrun jókst fjöldi þeirra til muna. Sá fjöldi minnk­aði í og eftir hrun og nú heldur þeim áfram að fjölga. En hvernig líður Pól­verjum á Íslandi, hvaða áskor­anir þurfa þeir helst að glíma við hér á landi og hvernig er hægt að hjálpa þeim að aðlag­ast landi og þjóð?

Vinnu­að­stæður hér á landi hafa breyst á síð­ustu ára­tugum og má jafn­framt merkja ákveðnar breyt­ingar í við­horfi gagn­vart inn­flytj­endum. Blaða­maður náði tali af tveimur Pól­verjum sem búsettir eru hér á landi til að ræða mál­efni tengd pólsku sam­fé­lagi á Íslandi. Annar er sendi­herra Póllands og hinn er sér­fræð­ingur sem unnið hefur á Íslandi og rann­sakað tengsl pólsks verka­fólks á Íslandi við heima­landið og hvaða áhrif þessi tengsl hafa á hversu vel þeir hafa sam­lag­ast íslensku sam­fé­lagi.

Gerard Pokruszyński er fyrsti pólski sendi­herr­ann á Íslandi en hann tók við stöð­unni í lok árs 2017. Hann segir að erfitt geti verið að reikna út nákvæman fjölda Pólverja á Íslandi því þrátt fyrir að sam­kvæmt Þjóðskrá séu þeir rúm­lega 20.000 þús­und tals­ins þá sé lík­legt að þeir séu fleiri. „Inn í þess­ari tölu eru til dæmis ekki þeir sem einnig eru orðnir Íslend­ingar en þeir eru á bil­inu fjögur til fimm þús­und tals­ins.“

Þegar hann er spurður út í það hvort íslensk stjórn­völd geti gert eitt­hvað til að taka betur á móti Pól­verjum svarar hann að þau í sendi­ráð­inu leggi áherslu á aðeins einn hlut: Að bæta aðstöðu fyrir pólsk börn í skólum. „Fyrir þá sem ákveða að dvelja á Íslandi til lengri tíma er mik­il­vægt að huga að pól­skri tungu­mála­kennslu fyrir börnin. Það er nauð­syn­legt að geta við­haldið móð­ur­mál­inu því þegar börn eru vel stödd þar þá eiga þau auð­veld­ara með læra önnur tungu­mál.“

Anna Wojtynska er doktor í mann­fræði frá Háskóla Íslands en hún kom fyrst til Íslands árið 1996 og lýsir hún gjör­ó­líkum aðstæðum Pólverja hér á landi á þeim tíma. Hún segir að þeir hafi ein­ungis verið nokkur hund­ruð tals­ins, flestir hafi búið í þorpum úti á landi og aðeins örfáir í Reykja­vík.

Hún flutti síðan til Ísa­fjarðar árið 2005. „Fyrst þegar pólskir inn­flytj­endur fluttu til þess­ara þorpa þá höfðu þeir tæki­færi til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu. Til að mynda var litið á pólskar konur sem komu til Ísa­fjarðar og eign­uð­ust íslenskan maka og töl­uðu íslensku sem inn­fæddar. Svo þegar fólk talar um „þessa Pólverja“ þá er það lík­leg­ast ekki að tala um til dæmis þessar konur.“ Þannig megi segja að þegar Pól­verjar aðlag­ist vel þá sé á vissan hátt ekki lengur litið á þá sem „Pólverja“.

Hægt er að lesa fréttaskýringuna í heild sinni í nýjasta tölublaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Texti / Bára Huld Beck

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina