Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rétturinn til varna toppar réttinn til nafnleyndar

Helga Vala Helga­dóttir, alþingis- og lög­maður, vill ekki tjá sig sér­stak­lega um mál Atla Rafns Sig­urð­ar­sonar gegn Borg­ar­leik­hús­inu og Kristínu Eysteins­dóttur, en segir rétt þess sem ásak­aður er um brot vera eina af grunn­stoðum rétt­ar­rík­is­ins. Komi slíkar ásak­anir fram nafn­laust sé ekki hægt að vinna málið í eðli­legum far­vegi og þar með sé brotið á rétti meints ger­anda.

Rétturinn til varna toppar réttinn til nafnleyndar
Helga Vala Helga­dóttir.

„Það þarf auð­vitað að fara að settum reglum,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og alþing­is­maður, spurð hvernig yfir­menn eigi að bregð­ast við ásök­unum á hendur starfs­manna. „Ef margir koma og kvarta yfir ákveðnum starfs­manni, eða jafn­vel þótt það sé bara einn aðili sem kvartar, þá á vinnu­veit­and­inn að bregð­ast strax við og skoða hvað er hæft í ásök­unum, hvað hefur gerst og hvernig. Það er rík skylda vinnu­veit­enda að rann­saka málið í þaula og sú skylda er studd bæði með lögum og reglu­gerðum.“

Hvernig á vinnu­veit­and­inn að rann­saka málið? „Í þess­ari rann­sókn felst auð­vitað að tala við mein­tan ger­anda eða ger­endur og kanna hvort eitt­hvað sé hæft í þessum ásök­unum,“ útskýrir Helga Vala. „Ef um er að ræða sak­næmt athæfi ætti vinnu­veit­andi, að mínu mati, að ráð­leggja þeim starfs­manni sem kvartar að tala við lög­reglu því það er auð­vitað þar sem mál eiga að fá umfjöllun ef um er að ræða gróf brot, kyn­ferð­is­lega áreitni eða kyn­ferð­is­brot. Ef um er að ræða ein­elti eða ósið­sam­lega hegðun sem ekki er það gróf að geta flokk­ast undir hegn­ing­ar­laga­brot fer rann­sóknin fram innan vinnu­stað­ar­ins. Þá verður vinnu­veit­andi að skoða málið frá öllum hliðum og til þess að meintur ger­andi geti skýrt sína hlið verður hann/hún auð­vitað að fá að vita máls­at­vik og hverjir eru meintir þolendur.“

Eiga meintir þolendur sem sagt ekki rétt á nafn­leynd? „Ef þú berð ein­hvern sökum verður þessi ein­hver eða ein­hverjir að eiga mögu­leika á að svara fyrir þær sakir,“ segir Helga Vala. „Þú getur ekki svarað fyrir sak­irnar nema fá að vita máls­at­vik, hvar hlut­irnir eiga að hafa gerst og hvernig. Það er ekki hægt að verja sig gegn ein­hverju óskil­greindu.“

„Ég und­ir­strika að ég skil það mjög vel að brota­þolar vilji vera nafn­lausir en það má samt ekki taka þann rétt af ein­stak­lingi sem bor­inn er þungum sökum að verja sig, sama hversu ógeðs­legt manni kann að þykja brotið.“

Ekki hægt að kæra fyrir brot gegn ónafngreindri manneskju

Helga Vala hefur starfað sem rétt­ar­gæslu­maður brota­þola, gekk vaktir á Neyð­ar­mót­töku um nokk­urra ára skeið og seg­ist fyrst og fremst vera tals­maður brota­þola í sinni lög­mennsku. Það breytir ekki því að fyrir henni er aug­ljóst að fara verður eftir reglum rétt­ar­rík­is­ins.

„Við búum við ákveðið rétt­ar­ríki,“ segir hún. „Og ef ein­stak­lingur er bor­inn sökum eru það hans grund­vall­ar­mann­rétt­indi að eiga þess kost að verja sig. Ef hann veit ekki hvaða sökum hann er bor­inn hvernig á hann þá að geta varið sig? Sá réttur toppar að mínu mati rétt ásak­anda til nafn­leyndar. Ég hef farið í útköll á Neyð­ar­mót­töku þar sem ein­stak­lingur leit­aði þangað eftir að brotið var á honum en við­kom­andi vildi ekki fara með málið lengra af ýmsum ástæðum. Það er auð­vitað ekki sann­gjarnt að brota­þoli geti ekki leitað réttar síns en við getum ekki lagt fram kæru á hendur ein­hverjum fyrir brot gegn ónafn­greindri mann­eskju á ótil­greindum stað. Það er bara ekki hægt, alveg sama hversu ósann­gjarnt manni finnst það.“

En ef margir starfs­menn kvarta undan sama sam­starfs­mann­inum og vilja ekki vinna með honum, hvað er hægt að gera? „Það er mjög flókið,“ segir Helga Vala. „Þess vegna þarf að skoða það vel. Ástæðan getur verið sú að hóp­ur­inn beiti ein­hvern ein­stak­ling ein­elti eða vilji bara losna við við­kom­andi og því þarf að setja fram „kon­kret“ dæmi, það þurfa að vera mál­efna­legar ástæður fyrir kvörtun­inni til að vinnu­veit­and­inn geti metið það. Vinnu­veit­andi þarf að tryggja aðbúnað fólks og öryggi á vinnu­stað, en það breytir því ekki að ef þetta bein­ist gegn ein­hverjum einum þarf að skoða hverja ásökun fyrir sig án til­lits til hinna. Sem dæmi má nefna mál þar sem þrír aðilar báru einn og sama ein­stak­ling­inn sökum um kyn­ferð­is­brot og því má segja að það hafi verið  yfir­gnæf­andi líkur á að við­kom­andi væri síbrota­maður. Samt sem áður má ekki nota eitt mál til þess að byggja undir annað, það er óheim­ilt í saka­mála­rétti. Í því voru tvær af kær­unum felldar niður á rann­sókn­ar­stigi en eitt mál fór fyrir dóm og þótt allir teldu yfir­gnæf­andi líkur á sök var hann á end­anum sýkn­aður í hér­aði meðal ann­ars vegna þess að ekki mátti benda á líkur á síbrotum. Sumir vilja meina að þetta sýni að rétt­ar­kerfið sé ger­enda­vænt og það er svo sann­ar­lega margt sem má laga hvað varðar brota­þola í kerf­inu. Mér finnst það mjög mik­il­vægt að staða brota­þola sé end­ur­skoðuð, miska­bætur hækk­aðar veru­lega og að rétt­ar­kerfið sendi brota­þolum ótví­ræða við­ur­kenn­ingu á alvar­leika kyn­ferð­is­brota.“

Að segja frá hefur fælingarmátt

Nú hefur mikið verið talað um þær breyt­ingar sem hafi orðið á rétti þolenda til að segja frá í kjöl­far #metoo-hreyf­ing­ar­innar, en hefur þá sem sagt í raun­inni ekk­ert breyst? „Réttur þol­anda til að segja frá er ótví­ræður,“ segir Helga Vala ákveðin. „Og það sem #metoo gerði var í raun­inni að opna augu okkar allra fyrir því hvað þetta er  stórt vanda­mál. Það er alls staðar, það bein­ist af fyllstu hörku gegn þeim sem veikast standa, til dæmis erlendum og fötl­uðum konum, en það er líka til staðar í efri lögum sam­fé­lags­ins og snertir öll hólf þess. Þar var lögð áhersla á að nafn­greina ekki meinta ger­endur til þess einmitt að sýna fram á hversu útbreitt þetta vanda­mál er, ekki endi­lega á nafn­leynd meintra þolenda. En þar var heldur ekki verið að fara með mál fyrir dóm eða krefj­ast afsagna, þannig að sú bar­átta var ann­ars eðlis. Það sem má hins vegar ekki ger­ast núna í kjöl­far þessa alls er að það komi bakslag, að það verði allt brjálað ef þú segir frá. Til þess var þessi bar­átta ekki háð. Það mun fæla þolendur frá því að segja frá og þá erum við komin í algjört öng­stræti með þetta allt saman.

Þessi bar­átta hefur skilað ákveðnum árangri í bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi. Það hefur nefni­lega mik­inn fæl­ing­ar­mátt ef ger­endur geta  átt von á að ógeðs­leg hegðun þeirra verði komin á for­síður blað­anna á morgun, burt­séð frá því hvort vænta megi dóms fyrir athæfið eða ekki. Neyð­ar­móttakan varð vör við merkj­an­lega fækkun á kyn­ferð­is­brota­málum eftir #metoo-bylt­ing­una þannig að hún hafði greini­lega áhrif.“

Þá komum við aftur að þessu með nafn­leynd meintra þolenda. Margir brota­þolar eru hræddir við mein­tan ger­anda og vilja ekki að hann viti að þeir hafi sagt frá, er þá engin leið fyrir þá þolendur að fá neina úrlausn í rétt­ar­kerf­inu? „Ekki með nafn­leysi, nei,“ segir Helga Vala. „Því miður þá er það ekki hægt, þú getur ekki kært nafn­laust vegna þess að rétt­ur­inn til að taka til varna er jafn­ríkur og rétt­ur­inn til þess að kæra. Ég und­ir­strika að ég skil það mjög vel að brota­þolar vilji vera nafn­lausir en það má samt ekki taka þann rétt af ein­stak­lingi sem bor­inn er þungum sökum að verja sig, sama hversu ógeðs­legt manni kann að þykja brotið. Við verðum að gæta að rétt­indum allra og ef þú berð ein­hvern sökum verð­urðu að vera til­bú­inn til að standa fyrir máli þínu. Þú getur ekki kraf­ist þess að ein­hver sé rek­inn úr vinnu án þess að hann fái að vita um hvað málið snýst. Við verðum að hafa eitt­hvert kerfi á „gal­skapnum“. Annars endum við bara í ein­hverju Villta­vest­ur­s­á­standi sem kemur engum til góða, ekki heldur brota­þolum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina