Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lofaði dóttur sinni því að kaupa Rangá

Bjarni Þór Logason keypti hina gam­al­grónu hverf­is­verslun Rangá í Skipa­sundi í sumar og hefur rekið hana síðan í júlí. Hann segir ástæð­una fyrir kaup­unum ein­falda; hann hafi lengi starfað innan versl­un­ar­geirans en alltaf dreymt um að eiga sína eigin verslun. Þar ofan á bæt­ist að hann búi í hverf­inu og viti hversu miklu máli hin átta­tíu og átta ára gamla verslun Rangá skipti fyrir íbú­ana.

Lofaði dóttur sinni því að kaupa Rangá
Bjarni Þór Logason og Rakel Ólafs­dóttir eiga og reka hverf­is­versl­un­ina Rangá í Skipa­sundi.|Ég hef lagt mig fram um að breyta ekki miklu

„Ég tók við rekstr­inum hérna 10. júlí,“ segir Bjarni þegar honum loks gefst tóm til að tala við okkur. „Ég tengd­ist þess­ari búð ekk­ert fyrir þann tíma,“ bætir hann við. „Ég bara bý hérna í hverf­inu.“

En hvernig dettur nokkrum manni í hug að ger­ast kaup­mað­ur­inn á horn­inu á þessum síð­ustu og verstu tímum, eru þeir ekki allir að fara á haus­inn?

„Þeir eru allir farnir á haus­inn,“ segir Bjarni og hlær við. „En þessi verslun er átta­tíu og átta ára gömul og hefur staðið af sér ansi margt í gegnum tíð­ina. Ég er við­skipta­fræð­ingur og skoð­aði rekst­ur­inn vel áður en ég ákvað að kaupa, sá að þetta var vel rekið fyr­ir­tæki svo ég ákvað að kýla bara á þetta.“

Trygglyndustu viðskiptavinirnir

Bjarni hefur lengi unnið versl­un­ar­störf, byrj­aði hjá 10-11 fór þaðan í Hagkaup og síðan á skrif­stofu Ölgerð­ar­innar svo hann seg­ist þekkja versl­un­ar­rekstur ansi vel frá báðum hliðum. Draum­ur­inn um eigin verslun hafi þó alltaf blundað undir niðri og þetta legg­ist vel í hann.

„Þetta leggst bara vel í mig, já,“ segir hann. „Salan hefur verið stöðug síðan ég tók við. Við­skipta­vinir Rangár eru rosa­lega dyggir, mikið af fastakúnnum sem eru trygg­lynd­ustu við­skipta­vinir sem ég hef kynnst, enda er það stórt atriði í þeirra huga að missa ekki kaup­mann­inn á horn­inu.“

Er þetta samt ekki hálf­von­laust dæmi? Er ein­hver mögu­leiki að vera sam­keppn­is­fær við stór­mark­að­ina?

„Það fer nú eftir því við hvaða stór­mark­aði þú miðar,“ segir Bjarni. „Ég keppi ekk­ert við lág­veru­verðs­versl­anir en ég er sam­keppn­is­fær við aðra. Ég er til dæmis búinn að lækka verðið á hátt í tvö hund­ruð vörum síðan ég tók við rekstr­inum, bara með því að end­ur­semja við birgja.“

Spurður hvort það sé ein­hvers konar hug­sjón hjá honum að sinna versl­un­ar­rekstri fyrir nærum­hverfi sitt dregur Bjarni við sig svarið.

Ég hef lagt mig fram um að breyta ekki miklu, hélt öllu starfs­fólk­inu og svo fram­vegis, þótt ég sé aðeins að brydda upp á nýj­ungum með,“ segir Bjarni.

„Nei, í raun­inni ekki,“ segir hann hugsi. „Ég var að vinna á skrif­stofu hjá Ölgerð­inni í tvö ár og þar var dag­ur­inn lengi að líða. Hérna er hann mjög fljótur að líða. Mér finnst gaman að vinna í búð og mig hefur alltaf langað til að eiga eigin verslun. Þótt það hafi verið mjög gaman að vinna í Hagkaup, frá­bært fólk og svona, þá hefur það verið minn draumur síðan ég byrj­aði að vinna í búð í kringum alda­mótin að eiga mína búð sjálfur.“

Finnst töff að eiga búð með pabba

Eins og fram er komið býr Bjarni í hverf­inu með fjöl­skyldu sinni, eig­in­konu og þremur börnum, er þetta ekki ófjöl­skyldu­vænt starf, er hann ekki alltaf í vinn­unni?

„Jú, jú, en ég var það hvort eð er,“ segir hann og brosir. „Það sem er öðru­vísi þegar maður ræður sér sjálfur er að nú geta krakk­arnir komið og hjálpað til í búð­inni. Saga dóttir mín, sem er níu ára, á sinn eigin versl­un­ar­slopp hérna og nafn­spjald og kemur stundum og aðstoðar við áfyll­ingar og svona. Henni finnst þetta óskap­lega spenn­andi, en bræður hennar eru eins og fimm ára þannig að þeir eru lítið farnir að spá í þetta enn þá. Henni finnst það mjög töff að geta sagt krökk­unum að hún eigi búð með pabba.“

Saga teng­ist reyndar draumi Bjarna um að kaupa Rangá frá upp­hafi.

„Við tvö fórum stundum hingað að versla áður en ég keypti,“ útskýrir hann. „Og ég sagði við hana í fyrsta sinn sem við komum að ég ætl­aði að kaupa þessa búð ein­hvern tím­ann og hún man alveg eftir því. Og er mjög stolt af mér fyrir að hafa staðið við það.“

„Erlendis er verslun víða að fær­ast aftur inn í hverfin. Flestir risarnir, eins og Walmart og svona, opna miklu minni búðir í dag en áður vegna þess að fólk vill hafa þjón­ust­una nær sér.“

Sömu fastakúnnar síðan 1970

Hvernig er við­skipta­vina­hóp­ur­inn sam­settur? Er það mest eldra fólk sem heldur tryggð við hverf­is­búð­ina eða er þetta fólk á öllum aldri?

„Það er allur skal­inn,“ segir Bjarni. „Þetta er gam­alt og mjög rót­gróið hverfi en það hefur orðið mikil end­ur­nýjun hérna. Fyrri eig­endur skil­uðu mjög góðu starfi, það er algjört afrek að hafa náð að halda þess­ari búð gang­andi í gegnum allt, en ég hef aðeins reynt að bregð­ast við breyttri íbúa­sam­setn­ingu hverf­is­ins. Hef til dæmis lagt mig fram um að lækka verð á nauð­synjum fyrir fjöl­skyldu­fólk. Mesta salan er samt til eldri ein­stak­linga sem hafa búið hérna lengi. Þeir gera sín heild­ar­inn­kaup hérna og hafa gert mjög lengi. Ein hjón sem koma nán­ast dag­lega hafa til dæmis verslað hérna síðan áður en fyrri eig­endur tóku við, 1971, þannig að þau hafa verslað hérna ansi lengi og eru mjög ánægð með að versl­unin skuli enn vera í rekstri. Ég hef lagt mig fram um að breyta ekki miklu, hélt öllu starfs­fólk­inu og svo fram­vegis, þótt ég sé aðeins að brydda upp á nýj­ungum með.“

Bjarni er bjart­sýnn á fram­tíð hverf­is­versl­ana og bendir á að þró­unin erlendis miði að því að færa þjón­ustu meira út í hverfin.

„Erlendis er verslun víða að fær­ast aftur inn í hverfin,“ bendir hann á. „Flestir risarnir, eins og Walmart og svona, opna miklu minni búðir í dag en áður vegna þess að fólk vill hafa þjón­ust­una nær sér. Nú er fólk farið að ganga og hjóla miklu meira en það gerði og leggja bílnum þannig að það er mjög ánægt með að vera með mat­vöru­verslun í göngu­færi.“

Ein róm­an­tíkin í kringum kaup­mann­inn á horn­inu felst í því hversu miklu meiri nánd skap­ist á milli starfs­fólks hverf­is­versl­ana og við­skipta­vina en í stærri búðum. Bjarni segir það enga goð­sögn.

„Alla vega er það þannig hérna,“ segir hann. „Með­al­starfs­aldur starfs­fólks­ins er yfir tíu ár og þau þekkja nán­ast alla kúnn­ana með nafni. Svo hittir fólk nágranna sína hérna og spjallar, talar um Þrótt og kven­fé­lagið og allt sem er í gangi hér í hverf­inu þannig að þetta er líka dálítil félags­mið­stöð í leið­inni.“

Spurður hvort hann sjái fyrir sér að hann standi við búð­ar­borðið í Rangá fram á eft­ir­launa­aldur seg­ist Bjarni ekki vita neitt um það, hann hafi ekki sett sér nein tíma­mörk.

„Þetta er skemmti­leg­asta vinna sem ég hef verið í,“ segir hann. „Og á meðan þetta gengur vel er ég ánægður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina