Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ertu ekki að koma?

Kynlíf getur verið, og á að vera, skemmti­legt en það getur verið erfitt að njóta þess. Heilinn gætir þess nefni­lega oft að við gleymum okkur ekki í gleð­inni og njótum þess að láta hinn aðil­ann gæla við okkur og koma okkur í hæstu hæðir. Þá væri nú gott að hafa slökkvara í heila­bú­inu.

Ertu ekki að koma?
|

Einhvers staðar las ég að karlar geti slökkt á heil­anum í sér eins og ekk­ert sé, jafn­vel líka þegar þeir stundi kyn­líf, en að við konur ættum hins vegar ekki jafn­auð­velt með það. Ég hef staðið mig að því að muna eftir því í miðjum klíðum að heyra þvotta­vél­ina klára vind­ing­ar­prógram­mið frammi í þvotta­húsi og hugsa með mér að ég verði að hengja upp þvott­inn áður en ég fari að sofa svo það komi ekki vond lykt í hann yfir nótt­ina. Og áður en ég veit af er ból­fé­lag­inn búinn að fá það en ég ekki.

Kynköld kærasta

„Þú ert nú bara eitt­hvað kynköld,“ sagði einn af mínum fyrr­ver­andi eitt kvöldið eftir að við höfðum stundað kyn­líf. Hann sagði það reyndar ekki upp úr þurru heldur roms­aði hann þessu út úr sér eftir að ég hafði ákveðið að segja honum að ég fengi yfir­leitt ekki full­næg­ingu. Með honum. Ég meira að segja gerði næstum því gott úr þessu, því ég sagði yfir­leitt en hefði sann­leik­anum sam­kvæmt átt að segja aldrei. En þar með var málið bara útrætt og engin þörf á að pæla í því hvort ég væri að fá eitt­hvað út úr kyn­líf­inu. Ég man að ég hálf­skamm­að­ist mín líka, eins og það væri eitt­hvað að mér. Ég væri pínu­lítið gölluð. Auðvitað fengju allar konur sturl­aða full­næg­ingu í hvert sinn. Með honum.

En svo elt­ist ég nú og þroskað­ist. Ég las mér heil­mikið til og pældi hell­ing í því af hverju ég ætti svona erfitt með að fá full­næg­ingu. Meðal ann­ars las ég bók­ina The Female Brain (sem gæti útlagst sem Kven­manns­heil­inn á íslensku) eftir Dr. Louanne Brizendine, þar sem segir meðal ann­ars að kyn­ferð­is­leg örvun kvenna hefj­ist ekki fyrr en heil­inn hafi slökkt á sér, þ.e.a.s. svæðið í heil­anum sem stjórni ótta og kvíða. Áður en það ger­ist geti alls kyns áhyggjur, meðal ann­ars af krökk­unum, dag­skránni, kvöld­matnum og fleiru, haft áhrif á það hvernig gengur að ná full­næg­ingu. Og hver kann­ast ekki við þetta? Eina stund­ina fer fiðr­ingur um mann allan en þá næstu er maður far­inn að hugsa um það hvort maður hafi örugg­lega slökkt á elda­vél­inni.

Heilabú og tilfinningaflækjur

Málið er nefni­lega þetta með heil­ann í okkur konum. Við virð­umst eiga erfitt með að slökkva alveg á honum og njóta augna­bliks­ins. Við erum svo sam­visku­samar; alltaf að hugsa um það sem þurfi að gera á morgun og hinn og hinn. Og hvort sé búið að ganga frá hinu og þessu. En það er ekki bara sam­visku­semin sem veldur því að við konur getum átt í mesta basli með að njóta kyn­lífs­ins og/eða fá full­næg­ingu. Það getur líka verið um til­finn­inga­legar ástæður að ræða.

Við konur erum til­finn­inga­verur, ég held það þýði ekk­ert fyrir okkur að ætla að þræta fyrir það. Og til­finn­ingar hafa mikil áhrif á nánd og það hvernig okkur líður gagn­vart maka okkar. Ég var til dæmis ekk­ert yfir mig spennt að stökkva í rúmið með fyrr­ver­andi mann­inum mínum eftir rifr­ildi (nei, ekki heldur fyrir svo­kallað makeup-sex) því ég átti mjög erfitt með að gleyma bara einn tveir og þrír að við hefðum verið að ríf­ast og að ýmis orð hefðu verið látin falla í hita leiks­ins. Hann átti hins vegar mun auð­veld­ara með það. Kannski út af slökkvar­anum í heila­bú­inu hans, sem vant­aði í mig.

„Málið er nefni­lega þetta með heil­ann í okkur konum. Við virð­umst eiga erfitt með að slökkva alveg á honum og njóta augna­bliks­ins.“

Það segir sig samt lík­lega sjálft að þegar annar aðil­inn, konan oft­ast nær, er óör­uggur í sam­band­inu eða líður eitt­hvað illa er erf­ið­ara fyrir hann að fá full­næg­ingu. Góð sam­skipti eru því stór þáttur í full­næg­ing­unni. Og að maður geti rætt opin­skátt um til­finn­ingar sínar og upp­lifun. Án þess að eiga á hættu að vera kall­aður kyn­kaldur eða eitt­hvað þaðan af verra.

Af hverju að skammast sín?

Ég ræddi þetta við vin­konur mínar um dag­inn og það var ótrú­legt hversu margar okkar höfðu sömu að segja. Við ættum erfitt með að aftengja okkur hvers­dags­leik­anum og því sem þyrfti að gera og svo fram­vegis. En nokkrar töl­uðu líka um skömm­ina sem þær finndu fyrir í kyn­lífi. Eða eftir kyn­lífið. Þrátt fyrir að við séum allar komnar á fer­tugs­ald­ur­inn, og sumar jafn­vel á fimmtu­dags­ald­ur­inn, voru margar okkar sam­mála um að við gætum enn þá heyrt ein­hverja innri rödd frá því í æsku segja okkur að það væri ógeðs­legt að stunda kyn­líf. Og hvað þá sjálfs­fróun, en það er nú efni í annan pistil.

Maya Melamed hefur skrifað um akkúrat þetta; skömm­ina sem sér­stak­lega konur finna fyrir þegar kemur að kyn­lífi. Hún segir að ein ástæða þess að hugur okkar reiki annað í kyn­mökum sé meðal ann­ars sú að bæði karlar og konur hafi fengið ýmsar rang­hug­myndir um kyn­líf í gegnum tíð­ina. En konur hafi frekar þá hugsun í und­ir­með­vit­und­inni að kyn­líf sé slæmt, sóða­legt eða hættu­legt. Heilinn reyni þess vegna að taka völdin og minna okkur á að við ættum nú ekki að vera að standa í þessum ósóma. Þess vegna leyfi hann okkur ekki að gleyma okkur alveg og njóta þess að ná hæstu hæðum án þess að muna eftir því að það þurfi að skutla yngsta barn­inu í fiðlu­tíma næsta dag. Hann vilji vera viss um að við séum ekki and­lega fjar­ver­andi, því kyn­líf er ó-ó og sóða­legt og allt það, munið´i.

Melamed tekur þó fram að þetta eigi ekki við um allar konur. Sumar konur hugsi ekki um kyn­líf sem eitt­hvað sóða­legt heldur eitt­hvað geggjað sem þær njóti í botn. En vanda­málið sé hins vegar að margar konur njóti kyn­lífs til að byrja með, þegar sam­bandið er nýtt og spenn­andi, en hætti því svo eftir því sem líður á. Og því miður eigi margar konur erfitt með að segja frá því að þær séu hættar að fá full­næg­ingu, eins og þær fengu næstum í hvert sinn í byrjun sam­bands­ins. Þeim finn­ist vand­ræða­legt að við­ur­kenna, jafn­vel fyrir sjálfum sér, að þær séu ófull­nægðar og óánægðar.

En ef ekki er rætt um vand­ann, leys­ist hann ekki. Og leys­ist hann ekki er hætt við að hann verði stærri og meiri eftir því sem lengra líður. Kynlíf getur nefni­lega verið óskap­lega skemmti­legt. Og auð­vitað er skemmti­leg­ast ef allir þátt­tak­endur njóta sín og hafa jafn­gaman. Og þetta með skömm­ina … Við þurfum að fleygja henni á haug­ana. Kynlíf er ekk­ert til að skamm­ast sín fyrir. Án þess sæti ég ekki hér að skrifa þessar línur. Og án þess sætir þú ekki hér að lesa þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina