Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Söngurinn hefur bjargað mér á mínum erfiðustu tímum“

Íris Hólm, söng- og leik­kona, keppti 17 ára gömul í X Factor og hefur staðið á sviði síðan þá í fjölda verk­efna. Í byrjun októ­ber mun hún heiðra sína upp­á­halds­söng­konu, Beyoncé, með tón­leikum á Hard Rock en Íris segir hana heilla sig bæði sem söng­kona og mann­eskja.

„Söngurinn hefur bjargað mér á mínum erfiðustu tímum“
Íris flytur lög hinnar heims­þekktu Beyoncé. Mynd / Ólöf Erla||

„Beyoncé hefur alltaf verið í upp­á­haldi hjá mér. Ég er mjög heilluð af henni sem mann­eskju. Hún er sam­kvæm sjálfri sér, leggur hart að sér í öllu sem hún gerir og lætur engan segja sér að hún geti ekki gert hlut­ina,“ segir Íris, og bætir við að Beyoncé sé ekki ein­göngu góð söng­kona og lista­maður, heldur semji hún einnig flott lög og texta. „Mitt upp­á­halds­lag með henni er lagið I Care.“

„Beyoncé hefur alltaf verið í upp­á­haldi hjá mér.,“ segir Íris.

Áheyrnarprufa var hvatning

Fyrr á þessu ári fór Íris í áheyrn­arprufu fyrir tal­setn­ingu á kvik­mynd­inni The Lion King. Þar las hún hlut­verk Nölu, en Beyoncé talar og syngur fyrir Nölu í enskri útgáfu mynd­ar­innar. „Ég gekk út úr áheyrn­arpruf­unni og ákvað þá að ég ætl­aði mér að skella í þessa tón­leika, áheyrn­arpru­fan var kannski hvatn­ingin sem ég þurfti. En ég sendi umheim­inum greini­lega ein­hver skila­boð þennan dag þar sem ég fékk síðan hlut­verkið. Kannski umheim­ur­inn hafi líka verið að senda mér mjög skýr skila­boð.

Söngurinn heilun

Íris er 30 ára og fædd og upp­alin í Mos­fellsbæ, ein­hleyp og almennur nautna­seggur að eigin sögn. Hún er einnig móðir sex ára lífs­krafts.

„Ég byrj­aði að syngja mjög ung og það má eig­in­lega segja að söng­ur­inn hafi verið mín heilun sem barn og ung­lingur,“ segir Íris sem keppti 17 ára gömul í þátt­unum X Factor og segir bolt­ann hafa byrjað að rúlla eftir það. Hún hefur verið við­loð­andi Söngvakeppni Sjón­varps­ins nán­ast árlega frá árinu 2007 og tekið þátt í ýmis konar verk­efnum.

„Söng­ur­inn og ég erum eitt.“

„Það eru algjör for­rétt­indi að geta starfað við söng, finnst mér. Auðvitað er maður búinn að leggja hart að sér og æfa sig í mörg ár. En að fá að vinna við það sem maður raun­veru­lega elskar er hreint út sagt æðis­legt. Söng­ur­inn og ég erum eitt. Söng­ur­inn hefur bjargað mér á mínum erf­ið­ustu tímum og þess vegna gæti ég ekki lifað án hans.“

Auk þess að syngja semur Íris heil­mikið af textum og ljóðum og seg­ist finna mikla ró í því. Árið 2015 sótti hún um leik­list­ar­skóla í New York og stund­aði nám þar í tvö ár. Og í dag kennir hún leik­list, auk þess að tal­setja barna­efni og kvik­myndir.

„Ég er mikil félags­vera, en kann samt rosa­lega vel að meta það að vera ein. Ég vel afþr­ey­ing­una svo­lítið út frá því að geta verið umvafin fólki en samt með fókus á mig. Eins og til dæmis sund, hot-jóga, spila „pool“, fara í leik­hús og á tón­leika.“

Mynd / Aðsend

Langar í sálfræði

En hvert væri plan B, ef söng­ur­inn myndi klikka? „Ég hef mjög gaman af því að kenna. Mig hefur líka lengi dreymt um að fara í háskóla­nám og þá í sál­fræði.“

Íris hefur áður tekið þátt í tón­leikum þar sem til­tek­inn lista­maður var heiðr­aður, hún söng á Whitney Houston-heið­urs­tón­leikum árið 2012 og hefur tekið þátt í Freddie Mercury-heið­urs­tón­leikum Rigg-við­burða frá upp­hafi.

„Það er virki­lega lær­dóms­ríkt að fara yfir feril ákveð­inna tón­list­ar­manna í gegnum tón­list­ina þeirra. Lögin þeirra eru sögur og frá­sagnir og það er svo fal­legt að læra um lista­menn­ina á þann hátt.“ Það eru næg verk­efni fram undan hjá Írisi sem flytur ásamt glæsi­legum hópi þekkt­ustu lög Bee Gees á Hótel Gríms­borgum í vetur, síðan mun hún stíga á svið á jólatón­leikum Siggu Bein­teins í Eldborg. „Það er ynd­is­legt að fá að syngja inn jólin með Siggu.“

Facebook-síða Írisar.

Miða má fá á Tix.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina