Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hér hjálpast allir að“

Gamla Sam­komu­húsið á Akureyri, leik­hús Leik­fé­lags Akur­eyrar, iðar af lífi þessa dag­ana. Í hús­inu er nú unnið hörðum höndum að upp­setn­ingu á nýju íslensku fjöl­skyldu­verki, Galdra­gáttin og Þjóð­sagan sem gleymd­ist eftir norð­lenska leik­hóp­inn Umskipt­inga.

„Hér hjálpast allir að“
Konur í öllum lyk­il­stöðum

Leik­hóp­ur­inn fékk styrk frá Leik­list­ar­ráði Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis fyrir sýn­ing­unni sem er unnin í sam­starfi við Leik­fé­lag Akur­eyrar en fjöl­margir standa að baki sýn­ing­unni. Það sem þó vekur athygli er að konur gegna öllum lyk­il­stöðum fram­leiðsluteym­is­ins. Agnes Wild er leik­stjóri, Auður Ösp Guð­munds­dóttir sér um hönnun bún­inga og leik­myndar, Birna Pét­urs­dóttir er fram­leið­andi, Katrín Mist Har­alds­dóttir er höf­undur dans- og sviðs­hreyf­inga og Sesselía Ólafs­dóttir er annar tveggja höf­unda tón­listar.

„Það er ótrú­lega gaman að fá að sjá um dans­inn í svona stóru og metn­að­ar­fullu verk­efni og það er líka rosa lær­dómur í því fyrir mig að vinna með leik­urum sem eru flestir ekki með mik­inn dans­bak­grunn,” segir dans­höf­und­ur­inn Katrín Mist og bætir því við að það sé mjög gaman að vinna dans­spor út frá per­sónum verks­ins sem margar hverjar eru langt frá því að vera mennskar. Katrín hefur áður verið dans­höf­undur í verkum Leik­fé­lags Akur­eyrar og hlaut meðal ann­ars Grímutil­nefn­ingu 2016 fyrir dans­inn í sýn­ing­unni Píla Pína. Á síð­asta leik­ári var Katrín aðstoð­ar­maður dans­höf­undar fyrir Kabarett, en þar vann hún náið með Lee Proud sem er marg­verð­laun­aður dans­höf­undur og hefur á Íslandi samið fyrir sýn­ingar á borð við Billy Elliot, Mary Poppins og Matt­hildi. Katrín er lærður leik­ari en hefur æft dans frá barns­aldri og verið braut­ryðj­andi í dans­kennslu á Akureyri, rekur Dans­stúdíó Alice sem er að hefja sitt sjötta rekstr­arár og kemur til með að kenna tæp­lega 300 akur­eyrskum börnum dans í vetur.

Ferðast þvert yfir landið og erlendis til að sinna leiklistarástríðunni

Leik­stjór­inn Agnes Wild tekur við kefl­inu. „Ég ólst upp í Mos­fellsbæ hjá mömmu minni og hún var virk í Leik­fé­lagi Mos­fells­bæjar þegar ég var barn. Ég man eftir að hafa oft sofið á gólf­inu neðan við sviðið sem lítil skotta og fylgst þess á milli með öllu sem gerð­ist á svið­inu,” segir Agnes sem hefur vakið athygli fyrir vinnu sína und­an­farin ár en hún hefur komið víða við. Agnes er einn stofn­enda leik­hóps­ins Mið­nættis en hóp­ur­inn hlaut til­nefn­ingu til Grímu­verð­laun­anna 2017 fyrir sýn­ing­una Á eigin fótum sem barna­sýn­ing árs­ins. Nú síð­ast setti Miðnætti upp sýn­ing­una Djákninn á Myrká, Sagan sem aldrei var sögð og sló eft­ir­minni­lega í gegn á síð­asta leik­ári LA og verður sýnd aftur í febr­úar. Meðal ann­arra leik­stjórna­verk­efna má nefna Fokkað í Full­veld­inu á vegum full­veld­is­há­tíðar og Þjóð­leik­húss­ins árið 2018 og Krúnk krúnk og dirrindí fyrir Menn­ing­ar­fé­lag Akur­eyrar sama ár. Árið 2015 var Agnes aðstoð­ar­leik­stjóri í sýn­ing­unni Í Hjarta Hróa Hattar í Þjóð­leik­hús­inu.

Agnes lærði leik­list í London en hefur aðal­lega feng­ist við leik­stjórn frá útskrift. „Ég hef aldrei alveg slitið tengslin við London, en ég stofn­aði fyrir nokkrum árum leik­hóp­inn Lost Watch theatre sem starfar í London og ég fer reglu­lega út og vinn með þeim,” segir Agnes sem býr í miðbæ Reykja­víkur en vílar það ekki fyrir sér að ferð­ast þvert yfir landið eða erlendis til að sinna ástríðu sinni. „Ég var ekki lengi að svara kall­inu ját­andi þegar Umskipt­ingar báðu mig um að leik­stýra Galdra­gátt­inni, þessi sýn­ing er svo ævin­týra­lega mikil gleði­sprengja og ég vona bara að sem flestir Akur­eyr­ingar og nær­sveita­menn taki börnin með sér í leik­húsið og styrki sjálf­stæðan og atvinnu­leik­hóp á lands­byggð­inni.“

Ævintýralegt og spennandi viðfangsefni

Auður, leik­myndar- og bún­inga­hönn­uður, er á fullu að skrúfa saman stuðla­berg fyrir leik­mynd­ina sem er inn­blásin af íslenskri nátt­úru. Auður er í grunn­inn vöru­hönn­uður frá LHÍ en árið 2018 kom hún heim úr meist­ara­námi í leik­myndar- og bún­inga­hönnun frá Prag. Hún er alin upp í upp­sveitum Árnes­sýslu og er þess vegna fjarri sínum heima­högum á Akureyri.

„Marta Nordal leik­hús­stjóri LA réði mig til að sjá um leik­mynd og bún­inga í Kabarett í byrjun síð­asta leik­árs og síðan hef ég eig­in­lega verið á Akureyri með að minnsta kosti annan fót­inn og oft báða,“ segir Auður sem var til­nefnd til Grímunnar 2019 fyrir bæði bún­inga og leik­mynd í Kabarett. „Birna hafði sam­band við mig og bað mig að hanna leik­mynd og bún­inga fyrir Galdra­gátt­ina og um leið og ég frétti hverjir stæðu að sýn­ing­unni var ekki aftur snúið, enda draumateymi. Það spillti svo ekki fyrir hvað við­fangs­efnið er ævin­týra­legt og spenn­andi, þarna er svo mikið af flottum þjóð­sagna­verum eins og Nykur, Skoffín og Skugga­baldur sem hafa sjaldan eða aldrei sést áður á sviði,“ segir Auður sem hefur fengið lausan taum­inn við hönn­un­ina og hefur hver furðu­veran á fætur ann­ari nú litið dags­ins ljós í Sam­komu­hús­inu.

Mikilvægt að allir gangi í öll verk

Birna Pét­urs­dóttir, fram­leið­andi sýn­ing­ar­innar, segir að hjá svona litlum leik­hópi sé mik­il­vægt að allir gangi í öll verk. „Hér hafa kvöld og helgar farið í að smíða, líma, skrúfa og mála. Og það er eng­inn „bara“ að leika eða „bara“ að fram­leiða í þess­ari sýn­ingu. Hér hjálp­ast allir að, sem er hvoru­tveggja í senn æðis­lega gaman og ofsa­lega krefj­andi,“ segir Birna aðspurð um hlut­verk sitt sem fram­leið­andi.

Hún bætir við að þetta sé í fyrsta skipti sem hún sinnir stöðu fram­leið­anda í leik­húsi en Birna er lærður leik­ari og var á samn­ing hjá LA síð­asta leikár og lék þar í Kabarett, Gall­steinum afa Gissa og Djákn­anum. Hún hefur, sam­hliða leik­list­inni, unnið tölu­vert í dag­skrár­gerð fyrir sjón­varp, meðal ann­ars sem einn umsjón­ar­manna Landans á RÚV en jafn­framt er hún annar tveggja eig­enda fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Flugu Hug­mynda­húss.

„Ég er einn af höf­undum verks­ins, ásamt rest­inni af leik­hópnum Umskipt­ingum og sá auð­vitað fyrir mér að leika í þessu, en svo varð ég svo heppin að verða ólétt og þá bara fékk ég nýtt hlut­verk í hópnum, bak við tjöldin,“ segir Birna sem verður gengin 37 vikur á frum­sýn­ing­ar­dag 5. októ­ber.

„Frum­sýn­ingin mun hafa alveg extra mikla þýð­ingu fyrir mig í þetta skipti, það er svo ótrú­lega mikil vinna að baki hjá öllum leik­hópnum og svo við­ur­kenni ég að það verður líka dásam­legt að geta loks­ins sest niður og hafið bið eftir barni og kannski und­ir­búa komu þess eitt­hvað pínu­lítið,“ segir Birna hlæj­andi.

Leikið með ólíkar tónlistarstefnur

Sesselía Ólafs­dóttir er helm­ingur norð­lenska tón­list­ar­dúós­ins Vand­ræða­skálda sem semja alla tón­list­ina fyrir Galdra­gátt­ina, en útsetn­ingin er í höndum Krist­jáns Edel­stein. Vand­ræða­skáld hafa á und­an­förnum árum haldið tón­leika vítt og breitt um landið og komið víða við sem veislu­stjórar og skemmti­kraftar. Þau Sesselía og Vil­hjálmur B. Bragason sem skipar hinn helm­ing dúós­ins hafa vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum fyrir hár­beitta „sketcha“ og laga­texta en þetta er í fyrsta skipti sem lög eftir þau birt­ast í barna­söng­leik. „Það var ótrú­lega skemmti­legt að semja tón­list­ina fyrir þetta verk en líka flókið á köflum. Þarna eru alls­konar verur að segja alls­konar mis­furðu­legar sögur og oft þarf maður líka að passa að ein­hver ákveðin fram­vinda í sög­unni sé skýr í gegnum texta lags­ins,“ segir Sesselía sem lærði leik­list í London og fer líka með hlut­verk í sýn­ing­unni.

Aðspurð um hvernig tón­list sé í verk­inu segir Sesselía: „Við erum að leika okkur með ólíkar tón­list­ar­stefnur í Galdra­gátt­inni og hver vera hefur sinn ein­staka stíl. Það er ekki laust við Elton John fíl­ing á köflum, eitt lagið hefur yfir sér sjó­ræn­ingja­brag og Iggy Pop og Tom Waits veittu okkur líka inn­blástur.“

Sýningin Galdra­gáttin og þjóð­sagan sem gleymd­ist fjallar um það þegar fyrir algjöra slysni opn­ast gátt inn í heim íslenskra þjóð­sagna í skóla­stofu Hring­valla­skóla. Sak­lausum sjö­unda­bekk­ing, Jóni Árnasyni, er í kjöl­farið rænt af Húm­skoll­unni skelfi­legu svo bekkj­ar­systk­ini hans Sóley og Bjartur leggja upp í háska­för honum til bjargar. Við tekur æsispenn­andi atburða­rás þar sem hinar ýmsu kynja­verur íslenskra þjóð­sagna koma fyrir, Nykur, Skoffín og Skugga­baldur ásamt fleirum. Verkið er frum­sýnt 5.októ­ber og miða­sala er hafin á mak.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina