Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikilvægt að skrá öll ferðaplön til að leit geti hafist ef illa fer

Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, meist­ara­nemi í líf­fræði í Háskóla Íslands, var í tvo mán­uði á Sval­barða í sumar við rann­sóknir á vist­fræði plantna á norð­ur­slóðum. Fara þarf mjög var­lega vegna ísbjarna og hvell­hettur, riff­ill og neyð­ar­blys eru alltaf með­ferðis þegar farið er út fyrir bæinn.

Mikilvægt að skrá öll ferðaplön til að leit geti hafist ef illa fer
„Ég sýni GPS-tækið mitt sem stað­festir að ég sé kom­inn norður fyrir 80°N.“||||sdnf|lasjf||lsknc||

„Mark­miðið var að öðl­ast reynslu í því að stunda rann­sóknir á heim­skauta­svæðum, enda er margt öðru­vísi í umhverf­inu þar en ann­ars staðar í heim­inum. Þar er til dæmis sífreri í jarð­veg­inum, sem er nokk­urs konar íshella sem liggur stutt undir yfir­borði jarð­veg­ar­ins og kemur þar í veg fyrir að vatn og rætur plantna kom­ist ofan í jarð­veg­inn. Jarð­veg­ur­inn getur því heldur ekki drukkið í sig vatn svo vatn flæðir um á yfir­borð­inu svo það er auð­velt að verða blautur í fæt­urna ef maður gáir ekki að sér,“ útskýrir Jói, eins og hann er jafnan kall­aður, en leið­bein­andi hans í meist­ara­nám­inu benti honum á sum­ar­nám­skeið sem er kennt við Háskóla­setrið á Sval­barða, UNIS – Uni­versity Centre in Svalbard. Nám­skeiðið fól í sér nokk­urra daga und­ir­bún­ings­vinnu áður en haldið var í rann­sókn­ar­ferð með skipi um allan eyja­kla­s­ann. Þar gefst nem­end­unum tæki­færi á að gera merki­legar rann­sóknir á vist­kerfi norð­ur­hjarans undir hand­leiðslu sér­fræð­inga.

„Ég um borð í rann­sókn­ar­skip­inu að taka mynd.“

„Ingi­björg Svala Jóns­dóttir, pró­fessor í vist­fræði, hefur verið með rann­sóknir á Sval­barða og hún tal­aði mjög fal­lega bæði um þetta nám­skeið og um stað­inn sem slíkan. Ég held að það hafi ekki síður verið aðkallandi fyrir mig að fá að kom­ast í snert­ingu við nátt­úr­una eins og hún er hvað fjar­læg­ust umsvifum manns­ins. Kannski eins og við mátti búast var helsta við­fangs­efni nám­skeiðs­ins að reyna að kom­ast að því hvernig vist­kerfi heim­skaut­anna munu bregð­ast við lofts­lags­ham­för­unum sem eiga sér nú stað. Þetta er flókið við­fangs­efni en spenn­andi viður­eignar, sér­stak­lega vegna þess að sífrer­inn á norð­ur­slóðum geymir stóran hluta af þeim gróð­ur­húsa­loft­teg­undum sem lík­legt er að muni losna út í and­rúms­loftið á næst­unni. Það, hvernig vist­kerfi norð­ur­slóða munu breyt­ast á kom­andi árum, og hvernig það mun hafa áhrif á sífrer­ann, er einn af lyk­il­þátt­unum þegar kemur að því að spá um afdrif jarð­ar­innar. Það er þess vegna bæði mjög spenn­andi að fá að taka þátt í svona rann­sókn, en kannski líka svo­lítið yfir­þyrm­andi.“

Í nálægð við ísbirni

Á nám­skeið­inu voru um 20 nem­endur frá ýmsum löndum og háskóla­setrið er í Longye­ar­byen, stærsta bænum á Sval­barða. Ef farið er út fyrir hann þarf fólk að hafa með­ferðis hvell­hettur, riffil og neyð­ar­blys.

„Þegar maður fór eitt­hvað út fyrir bæinn reyndi maður að gera það í hópum og þá var yfir­leitt að minnsta kosti einn sem stóð vörð til að gá að ísbjörnum. Það er hins vegar óhætt að ganga um óvopn­aður inn­an­bæjar. Sem betur fer er frekar sjald­gæft að ísbirnir séu til vand­ræða. Yfir­leitt verður fólk þeirra vart á löngu færi og auð­velt er að fæla þá í burtu með hvell­hettum eða blysum. Ég þekki engan nem­anda sem hefur þurft að skjóta með riffli að ísbirni. Það er hins vegar ekki langt síðan stúlka fórst rétt fyrir utan Longye­ar­byen í ísbjarn­ar­áras og önnur slapp naum­lega undan með því að stökkva niður hátt kletta­belti. Maður er með­vit­aður um að hættan er alltaf handan við hornið en það er hluti af því að stunda rann­sóknir í nátt­úr­unni og maður þarf bara að fara þeim mun var­legar í stað­inn,“ segir Jói.

„Þýskt tökulið mætti til að mynda okkur einn dag­inn sem hluta af heim­ilda­þætti um lofts­lags­breyt­ingar.“

„Í íbúða­hús­unum eru bækur í and­dyr­inu þar sem maður skráir niður ferða­plönin sín áður en maður fer út og hvenær áætluð heim­koma er. Ef eitt­hvað skyldi koma upp á og maður kemur ekki heim á skráðum tíma er hægt að fletta upp í þeim bókum til að hefja leit að manni.“

Aðeins einu sinni í ferð­inni lentu Jói og félagar hans í nálægð við ísbjörn. „Hópurinn minn fór í rann­sókn­ar­ferð lengra norður en Longye­ar­byen til þess að safna sýnum. Þarna eru auð­vitað engir vegir svo við vorum 10 daga á skipi að flakka um eyja­kla­s­ann. Við gistum í skip­inu en á morgn­ana fórum við í land með litlum gúmmí­bátum sem gátu bara ferjað nokkra í einu. Í fyrsta bát fóru alltaf þeir sem voru í blaut­galla eða með riffla. Einn dag­inn ætl­uðum við að reyna að lenda í lít­illi vík undir fugla­bjargi og þennan dag var ég einmitt í fyrsta báti í land.

„Það hefði getað farið illa ef við hefðum farið þarna í land án þess að verða bjarn­ar­ins vör.“

Við vorum auð­vitað búin að grann­skoða strand­lengj­una með kíki áður en við fórum af stað en það var samt ekki fyrr en á leið­inni í land sem við fengum neyð­ar­kall í tal­stöð­ina að það væri ísbjörn með hún bak við klett inni í vík­inni sem við ætl­uðum að lenda í. Sem betur fer heyrðum við kallið og gátum snúið bátnum við og farið aftur um borð í skipið. Það hefði getað farið illa ef við hefðum farið þarna í land án þess að verða bjarn­ar­ins vör. Við breyttum svo bara plan­inu okkar þennan dag og fórum á annan stað og sendum út boð til ann­arra rann­sókna­hópa á svæð­inu að þarna væri ekki óhætt að fara um.“

Fór á „heimskautaeyðimörkina“

Jói segir að ferðin í heild sinni hafi verið alveg ótrú­lega skemmti­leg. „Flestir sem búa á Sval­barða eru ungir vís­inda­menn sem vinna að umhverf­is­rann­sóknum þarna. Stemn­ingin er þess vegna mjög góð því flestir hugsa á svip­uðum nótum og fást við sömu vanda­mál í sínum störfum. Nánast allir sem búa á Sval­barða búa í Longye­ar­byen þar sem við vorum. Þetta er lítið sam­fé­lag og maður er fljótur að kynn­ast fólki,“ segir Jói sem bjó í gömlum kola­námu­manna­bú­stað þar sem voru her­bergi fyrir nem­endur. Húsið er inn­ar­lega í dalnum sem Longye­ar­byen stendur í og það var um 30 mín­útna gangur þangað að háskóla­setr­inu. „Stað­ur­inn er mjög fal­legur, innst í dalnum eru tveir skrið­jöklar sem skríða niður í dal­inn og hlíðar fjall­anna eru brattar. Á vet­urna þarf stundum að rýma húsin á þessu svæði vegna snjó­flóða­hættu og eitt húsið brotn­aði í óveðri um jólin fyrir nokkrum árum, sem betur fer án þess að nokkrum yrði meint af. Á sumrin er hins vegar ekki hætta á svona óveðrum þannig ég gat sofið rólegur.“

Jói var á Sval­barða á heim­skauta­degi en þá er bjart allan sól­ar­hring­inn. „Við Íslend­ingar könn­umst ágæt­lega við það að hafa bjart á nótt­unni en þarna sást raun­veru­lega ekki munur á degi og nóttu. Það voru auð­vitað við­brigði að hafa svona mikla sól á nótt­unni. Maður þurfti jafn­vel að stilla vekjara­klukku til að minna sig á að fara að sofa. Mér fannst mjög þægi­legt að hafa alltaf svona bjart en margir áttu erfitt með svefn. Hins vegar get ég ímyndað mér að það sé mjög erfitt að vera þarna yfir hávet­ur­inn þegar sólin rís ekki í nokkra mán­uði.“

„Ég og rann­sókn­ar­hóp­ur­inn minn. Við skoð­uðum þróun plantna á heim­skauta­svæðum.“

Jói var mestan hluta dval­ar­innar í Longye­ar­byen en fór í áður­nefnda rann­sókn­ar­ferð þar sem siglt var um eyja­kla­s­ann eins og kom­ist var vegna haf­íss. „Við komumst upp fyrir 80°N þar sem er að finna nyrsta land­vist­kerfi jarðar – „heim­skauta­eyði­mörk­ina“ eða „líf­belti A“ eins og það er kallað á vís­inda­máli. Fyrir utan rann­sókn­ar­sigl­ing­una fór ég ekki nema bara í fjall­göngur og göngu­ferðir í næstu dali við Longye­ar­byen. Á Sval­barða eru nán­ast engir vegir og þeir vegir sem eru til staðar eru erf­iðir yfir­ferðar og liggja ekki nema nokkra kíló­metra frá bænum. Ferða­menn sem koma óund­ir­búnir til Sval­barða átta sig ekki alltaf á þessu. Til þess að kom­ast um þurfa þeir að taka skip, þyrlu eða fara fót­gang­andi með vopn­aðan leið­sögu­mann.“

Víða soltin hreindýr

Jóa fannst heill­andi að upp­lifa heilu dag­ana í nán­ast ósnortnum víð­ernum þar sem ekki sást til áhrifa manns­hand­ar­innar. „Það var ekki verra að fá að vinna að rann­sóknum sem leiða í ljós nýja þekk­ingu í því hvað fram­tíð heim­skauts­ins ber í skauti sér. Mér fannst sér­stak­lega skemmti­legt að fá að upp­lifa þetta með hóp af fólki sem var í sömu sporum og ég og hugs­aði á sama hátt. Þetta hefði ekki verið söm upp­lifun án þeirra. Erfiðast fannst mér að vera sífellt áminntur um hvernig mað­ur­inn hefur farið með jörð­ina. Lofts­lags­ham­farir ollu því að síð­asta vetur höfðu komið mikil hlý­indi í des­em­ber svo hita­stigið fór upp fyrir 0°C og mikið rigndi, nokkuð sem á ekki að ger­ast svo norð­ar­lega. Vegna þessa bráðn­aði snjór í des­em­ber og fraus svo aftur sem klaka­lag ofan á snjónum og hrein­dýr gátu ekki krafsað sig í gegnum klak­ann. Þessi vetur var hrein­dýrum sá versti sem menn þekkja sögur af og hvert sem maður fór fann maður hræ af soltnum hrein­dýrum,“ segir Jói og bætir við að áminn­ing­arnar hafi verið enda­lausar. „Fyrir utan glugg­ann minn bjuggu teg­undir sem eru ann­að­hvort útdauðar eða að hverfa frá Íslandi vegna hlýn­unar, til dæmis voru björgin fyrir ofan hlíð­ina þétt­setin haftyrðli, litlum krútt­legum fið­ur­hnoðra sem verpir ekki lengur við Ísland vegna hlýn­unar. Svo óx fjall­kræk­ill fyrir utan hjá mér, planta sem hverfur vænt­an­lega af Íslandi fyrir fullt og allt á næst­unni vegna hlýn­unar.

„Jafnvel á fjar­lægum ströndum Sval­barða gat maður safnað saman heilum haugi af rusli sem hafði skolað á land.“

Fleira kom svo til. Jafnvel á fjar­lægum ströndum Sval­barða gat maður safnað saman heilum haugi af rusli sem hafði skolað á land. Meng­un­ar­efni safn­ast fyrir á norð­ur­slóðum og valda usla í fæðu­vefnum þar.“

„Þurfum að breyta okkar háttum strax“

Samhliða nám­inu vinnur Jói við rann­sóknir og kennslu í HÍ og að auki í fræðslu­deild Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins þar sem hann tekur á móti grunn­skólum og leik­skólum. Hann er einnig lið­tækur í borð­tennis og hefur unnið marga titla á þeim vett­vangi. „Ég hef spilað borð­tennis síðan ég var smá­strákur. Mamma og pabbi kynnt­ust í borð­tennis og við systk­inin, þrír strákar og ein stelpa, höfum öll spilað borð­tennis og meira að segja öll orðið Íslands­meist­arar í ung­linga­flokkum. Ég spila og æfi enn þá bæði með lands­lið­inu og félag­inu mínu BH í Hafn­ar­firði. Það gekk allt eins og í sögu hjá mér á síð­asta tíma­bili og við í Hafn­ar­firð­inum höfum titil að verja. Ég mæti aftur á keppn­is­völl­inn í haust.“

„Mamma og pabbi kynnt­ust í borð­tennis og við systk­inin, þrír strákar og ein stelpa, höfum öll spilað borð­tennis og meira að segja öll orðið Íslands­meist­arar í ung­linga­flokkum.“

En hvaðan kemur nafnið Urbancic? „Nafnið kemur frá Aust­ur­ríki. Langafi minn og -amma flúðu hingað með börnin sín í seinni heim­styrj­öld­inni og náðu að koma sér fyrir. Síðan þá hefur ættin dreift aðeins úr sér aftur, ein­hverjir sneru aftur til Aust­ur­ríkis, aðrir fóru til Banda­ríkj­anna en afi minn hélt til hér áfram með for­eldrum sínum. Við erum nokkuð mörg hérna á Íslandi og það er lík­legt að fólk í tón­list eða leik­list hafi heyrt um eða þekki ein­hverja af Urbancic-ætt­inni.“

„Hóps­fé­lagi minn á ísbjarna­vakt á meðan á sýna­töku stóð. Útsýnið er ekki ama­legt þarna.“

Hann seg­ist hafa lært heil­mikið um sjálfan sig við dvöl­ina á Sval­barða. „Ég hafði heyrt marga segja það áður en þeir fóru til Sval­barða eða í svip­aða rann­sókn­ar­för og ég trúði því eig­in­lega ekki fyrr en ég fór. Maður öðl­ast þá sýn á heim­inn, að mað­ur­inn verði að bera meiri virð­ingu fyrir jörð­inni. Við vitum alveg hvað við erum að gera jörð­inni og þurfum að breyta okkar háttum strax,“ segir Jói ákveð­inn.

Hann mun síðan klára námið á næst­unni og er ekki far­inn að skipu­legggja næstu skref. „Ég mun halda áfram að taka á móti skólum og leik­skólum í Hús­dýra­garð­inum í vetur og svo í Sjó­ferðum um sundin í vor sem er stutt sjó­sigl­ing sem er í boði fyrir grunn­skóla í Faxa­fló­anum. Annað mun bara koma í ljós. Ég hef yfir­leitt of mikið að gera en of lítið svo ég hef ekki áhyggjur af því að enda verk­efna­laus í fram­tíð­inni,“ segir hann að lokum.

Myndir / Aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina