Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúir ekki að þetta hafi verið viljaverk

Heiða Þórð­ar­dóttir segir sorg­ina eftir að bróðir hennar, Gísli Þór Þór­ar­ins­son, var skot­inn af bróður þeirra, Gunnari Jóhanni Gunn­ars­syni, hafa verið þá þyngstu sem hún hefur upp­lifað. Spurð hvort hún hafi átt von á því að Gunnar gæti látið verða af þeirri hótun sinni að drepa Gísla, miðað við langa ofbeld­is­sögu hans, svarar Heiða að hún hafi aldrei trúað því og hún trúi því ekki enn að það hafi verið ætlun hans.

Trúir ekki að þetta hafi verið viljaverk

„Þessa fjóra daga sem hann var á geð­deild, algjör­lega nið­ur­brot­inn, og ég var að reyna að tala hann til, datt mér aldrei í hug að þetta myndi enda svona hræði­lega,“ segir hún. „Hann sagð­ist myndu loka á sam­skipti við mig ef ég tæki afstöðu með Gísla en ég tók enga afstöðu, sagði honum bara að jafna sig, þessi kona væri ekki þess virði að splundra sam­stöðu okkar þriggja.

Varðandi fyrri brot hans þá vil ég taka fram að þau áttu sér alltaf stað þegar hann var í harðri neyslu. Ekki að það sé afsökun, en það er skýr­ing. Eftir að hann kom út af geð­deild­inni féll hann og fór heim til Gísla með kunn­ingja sínum og þeim bræðr­unum lenti saman sem lauk með því að Gunnar skaut Gísla í lærið, skotið fór í slagæð og honum blæddi út. Lög­gæslu­menn­irnir sem komu á vett­vang voru með bundnar hendur vegna þess að þeir máttu ekki fara inn á undan sjúkra­bílnum og því fór sem fór.“

„Þessa fjóra daga sem hann var á geð­deild, algjör­lega nið­ur­brot­inn, og ég var að reyna að tala hann til, datt mér aldrei í hug að þetta myndi enda svona hræði­lega.“

Spurð hvort hún sé reið yfir því að Gísli hafi verið lát­inn liggja einn þar til honum blæddi út tekur Heiða sér örlít­inn umhugs­un­ar­tíma til að svara.

„Jú,“ segir hún svo. „Ég er reið, það hefði verið hægt að bjarga honum. En samt hef ég eig­in­lega ekki orðið reið í þessu sorg­ar­ferli, nema auð­vitað við fólkið í kringum mig sem sýndi af sér virki­legan ótukt­ar­skap gagn­vart mér vegna þess að ég vildi ekki taka þá afstöðu að kalla Gunnar morð­ingja. Ég þekki hann ekki sem slíkan.

Ég veit auð­vitað að hann hefur gert hræði­lega hluti, þótt ég hafi ekki lesið öll máls­skjöl í þeim málum sem hann hefur verið dæmdur fyrir en mér finnst það ekki vera mitt að dæma hann. Ég get ekki einu sinni verið reið við hann í þessu til­felli, hann þarf að lifa með því alla sína ævi að hafa drepið bróður sinn og besta vin. Þeir höfðu búið saman, unnið saman og áttu mjög vel saman þegar Gunnar var í topp­standi, sem hann var miklu oftar en í neyslu.

Þótt ég syrgi auð­vitað Gísla bróður minn óskap­lega mikið þá er Gunnar líka bróðir minn og ég get ekki hatað hann fyrir þetta slys. Ég er bara svo ofboðs­lega sorg­mædd. Ég er búin að missa alla þá sem hafa verið mér kær­komn­astir, mömmu, pabba, vini og ömmur en þetta er mesta sorg sem ég hef upp­lifað.

Þegar lög­reglan kom til að segja mér frá þessu var mér boðin hjálp sem ég afþakk­aði með þeim orðum að ég væri vön þessu en málið er að þetta er það svaka­leg­asta högg sem ég hef fengið. Sorgin var svo mikil að ég fann lík­am­legan sárs­auka. Ég svaf ekki, ég borð­aði ekki og ég get svarið að ég man ekk­ert eftir fyrstu dög­unum á eftir.“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina