Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólík sýn á hverjum beri að lækka lyfjaverð

Þótt lyf hafi lækkað tölu­vert í verði á und­an­förnum tveimur ára­tugum er lyfja­verð enn ívið hærra en gengur og ger­ist á Norð­ur­löndum. Hægt er að lækka verð enn frekar en afar ólíkar skoð­anir eru á hvort það standi upp á stjórn­völd eða mark­að­inn að taka skrefið.

Ólík sýn á hverjum beri að lækka lyfjaverð

Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands birti nýverið skýrslu um fyr­ir­komu­lag lyf­sölu á Íslandi sem unnin var að beiðni vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Þar kemur meðal ann­ars fram að tölu­verðar breyt­ingar hafi orðið á þessum mark­aði frá því svæða­bundin sér­leyfi voru afnumin árið 1996. Lyfja­verð á Íslandi var þá, sam­kvæmt tölum OECD, afar hátt og var hárri álagn­ingu heild­sala og lyf­sala meðal ann­ars kennt um. Við breyt­ing­una fjölg­aði apó­tekum og þjón­ustan batn­aði, segir í skýrsl­unni.

Þrátt fyrir að margt hafi áunn­ist eru lyf að jafn­aði í dýr­ari kant­inum miðað við það sem ger­ist ann­ars staðar á Norð­ur­löndum, þótt ekki muni miklu. Að hluta til stafar það af sér­stökum aðstæðum á íslenskum mark­aði. Mark­að­ur­inn er smár, úrval af lyfjum er minna en víð­ast hvar ann­ars staðar og það kostar að koma að nýjum lyfjum á markað. Þá eru strangar verð­lags­hömlur sagðar draga úr áhuga fram­leið­enda á að selja hingað lyf. Hins vegar er það þannig að lyf eru almennt dýr­ari í þeim löndum þar sem vel­sæld ríkir og er Ísland þar engin und­an­tekn­ing.

Vill auka veg samheitalyfja

Bæði stjórn­völd og lyf­salar eru sam­mála um að hægt sé að lækka lyfja­kostnað enn frekar hér á landi. Hins vegar greinir þau á um hvaða leiðir eru best færar til þess. „Lyfja­verð út úr apó­tekum hefur lækkað um helm­ing frá árinu 1996 sem er merki­legur árangur í ljósi þess að þjón­ustan er almennt góð, apó­tek eru fleiri en víða ann­ars staðar og hér eru fleiri starf­andi lyfja­fræð­ingar en í nágranna­lönd­unum. Hér er því verið að gera hluti sem eru til eft­ir­breytni en skýrslan sýnir líka að það er hægt að gera betur,“ segir Sigríður Margrét Odds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Lyfju. Það sem stendur upp á lyf­sala, segir Sigríður Margrét, er að beina sjúk­lingum enn frekar í átt að sam­heita­lyfjum sem í flestum til­fellum eru mun ódýr­ari en frum­lyfin. „Rúmlega helm­ingur þeirra lyfja sem við seljum eru ódýr­ustu sam­heita­lyf og það blasir við að þar er hægt að gera enn betur. Það er hlut­verk lyfja­fræð­inga og starfs­manna að upp­fræða fólk um sam­heita­lyf og þannig geta neyt­endur sparað umtals­verðar upp­hæðir, sér­stak­lega þeir sem nota lyf að stað­aldri.“

„Ef við lögum þetta hlut­fall og förum í sama flokk og önnur OECD-ríki myndi það skila sér í mun lægra lyfja­verði til sjúk­linga.“

Sigríður Margrét telur einnig að stjórn­völd geti lagt sitt af mörkum til lækk­unar lyfja­verðs. Bendir hún á að á Íslandi greiði neyt­endur tæp­lega 60 pró­sent af lyfja­kostn­aði úr eigin vasa. Innan OECD er hins vegar hlut­fallið 40 pró­sent að með­al­tali. „Ef við lögum þetta hlut­fall og förum í sama flokk og önnur OECD-ríki myndi það skila sér í mun lægra lyfja­verði til sjúk­linga. Við áætlum að kostn­aður rík­is­sjóðs við þessar breyt­ingar séu um tveir millj­arðar á ári. Svo má líka benda á að hér á landi eru lyf í hæsta virð­is­auka­skatts­flokki en víða ann­ars staðar bera lyf lægri eða engan virð­is­auka­skatt. Stjórn­völd hafa þessi tvö tæki og þetta eru klár­lega lóð sem stjórn­völd geta lagt á vog­ar­skál­arnar.“

Svigrúm til lækkunar hjá heildsölum og lyfsölum

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir skýrsl­una draga fram að afkoma þeirra sem koma að lyf­sölu sé góð. „Lyfsalar hafa verið að skila ágætum hagn­aði, heildsalar hagn­ast betur en aðrir og afkoma lyfja­dreif­ing­ar­að­ila er góð þótt hún hafi versnað upp á síðkastið. Þess vegna vekur skýrslan upp spurn­ingar hvort það sé rými til lækk­unar á álagn­ingu á lyfjum miðað við þann hagnað sem fyr­ir­tækin skila. Lækkun virð­is­auka­skatts er ekk­ert sem hefur komið til álita. Við hljótum að bíða með að auka fram­lög úr sam­eig­in­legum sjóðum ef það er svig­rúm hjá lyf­sölum og heild­sölum til lækk­unar,“ segir Svandís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina