Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Upptökuklefinn var gömul Toyota Corolla“

Þorbjörn Einar Guð­munds­son sem margir þekkja undir nafn­inu BLKPRTY hóf tón­list­ar­fer­il­inn á ung­lings­ár­unum og hefur samið tón­list fyrir bæði íslenska og erlenda lista­menn.

„Upptökuklefinn var gömul Toyota Corolla“
Vonir standa til að samn­ingar náist við kenn­ara fyrir haustið svo ekki komi til verk­falla|Sigríður Björk Ein­ars­dóttir

Hæfi­leikar Þor­björns liggja þó ekki ein­ungis í tón­list­inni en hann hefur alltaf verið að teikna, mála og graffa. Þorbjörn hefur sýnt verk sín víða um heim en það var ekki fyrr en hann fór í sitt fyrsta húð­flúr sem hann átt­aði sig á því að hann væri á réttum stað á réttum tíma.

„Ég kynn­ist Jason Thompson á tattú­stofu sem hann vann á í mið­bænum og þá átt­aði ég mig á því að þetta væri eitt­hvað sem mig lang­aði að gera. Á þeim tíma voru svo fáar stofur á land­inu og erfitt var að kom­ast inn sem lær­lingur,“ útskýrir Þorbjörn.

Stuttu seinna ákvað hann að fara í list­nám og háskóla­nám og seg­ist allst ekki sjá eftir því þar sem það hafi gefið honum rosa­lega mikið. „Eftir að ég útskrif­að­ist fór ég að starfa sem graf­ískur hönn­uður, vef­hönn­uður, „ani­mator“ og í alls­konar mark­að­setn­ingu og á sam­fé­lags­miðlum. Þegar Jason Thompson og Ást­hildur konan hans opn­uðu Black Kross Tattoo fengu þau mig til að sjá um kynn­ingar og sam­fé­lags­miðla fyrir sig. Að auki gafst mér tæki­færi til að læra að flúra og ég stökk á það. Auðvitað er alltaf erfitt að læra eitt­hvað nýtt en trikkið er að gef­ast ekki upp og það hefur hjálpað mér í öllu sem ég hef gert,“ segir hann og bætir við að hann hafi mest flúrað í hefð­bundnum stíl en sé einnig að prófa sig áfram með „calligraphy“ og „black and grey relistic“ þar sem áhugi hans liggur svo­lítið núna.

Byrjaði 12-14 ára í tónlistarsköpun

Tón­list­ar­sköp­unin er aldrei langt undan en eins og fyrr segir byrj­aði hann ungur að fikta við tón­list. Í kringum 1998 kynnti bróðir hans tón­list­ar­for­ritið FL Studio honum fyrir og þá próf­aði hann fyrst að gera sína eigin tón­list sem hann hóf svo að gera fyrir alvöru 12-14 ára gam­all. „Þá var ég kom­inn með góð tök á for­rit­inu og kunni að „sampla“ af plötum og far­inn að gefa út lög,“ segir hann. „Garðar frændi minn, betur þekktur sem Kilo, fór semja texta yfir takt­ana mína og við tókum upp fyrstu lögin okkar uppi á lofti heima hjá mér. Svo kynn­umst við fljót­lega Ella félaga okkar, betur þekktum sem El Forte, og þá fórum við að taka upp í skúrnum hjá honum nán­ast dag­lega, en upp­töku­klef­inn var gömul Toyota Corolla þar sem rapp­arar þurftu að sitja í aft­ur­sæt­inu í bílnum inni í skúr með hljóð­nem­ann hang­andi í loft­inu á bílnum,“ útskýrir hann og hlær.

Flakkarinn með efninu hrundi

Í kringum 2009-2010 kynn­ist hann Emmsjé Gauta og Redd­lights og fer að gera tón­list með þeim. Við tökur á tón­list­ar­mynd­band­inu Hemmi Gunn með Emmsjé Gauta kynn­ist hann svo Arnari og Helga í hljóm­sveit­inni Úlfur Úlfur. Stuttu seinna gera þeir lagið Lupus Lupus. „Eftir það buðu þeir mér að koma í bandið og ég gerði með þeim fyrstu plöt­una, Föstu­dag­ur­inn Langi, og sá um að DJ-a á tón­leikum. Við gerðum heila plötu eftir það sem fékk aldrei að líta dags­ins ljós þar sem flakk­ar­inn okkar hrundi með öllu efn­inu.“

Í milli­tíð­inni kynn­ist hann Gísla Pálma og fleiri lista­mönnum og fór að fók­usera meira á sól­ó­efni og pródúsera undir nafn­inu Blkprty. „Sól­ó­efnið mitt er frekar festi­val-miðað en blanda af „trap, house, hard­s­tyle, moombathon, psy trans“ og fleiru,“ lýsir hann og bætir við hann hafi spilað á Miami Music Festi­vali fyrr á árinu við góðar und­ir­tektir þar sem hann kynnt­ist frá­bæru fólki.

Þorbjörn hefur unnið með og samið tón­list fyrir fjöl­marga lista­menn bæði hér heima og erlendis. Hann seg­ist mik­ill aðdá­andi útgáfu­fyr­ir­tækj­anna Barong Family og Yellow Claw. „Ég spjall­aði við for­svars­menn þeirra um dag­inn og við renndum yfir slatta af óút­gefnu efni frá mér þannig það er aldrei að vita nema komi eitt­hvað frá mér þaðan,“ segir hann og glottir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina