Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásgeir Jónsson hefur verið skipaður seðlabankastjóri

Ásgeir Jónsson hefur verið skipaður seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað dr. Ásgeir Jónsson í embætti seðlabankastjóra til næstu fimm ára.

Embætti seðla­banka­stjóra var aug­lýst laust til umsóknar hinn 20. febr­úar sl. Umsóknir bár­ust frá 16 umsækj­endum og drógu þrír umsækj­endur umsókn sína síðar til baka. Alls voru umsækj­endur því 13 tals­ins, ell­efu karlar og tvær konur.

Hæfn­is­nefnd sem skipuð var sam­kvæmt lögum um Seðla­banka Íslands mat fjóra umsækj­endur, þá Arnór Sig­hvats­son, Ásgeir Jónsson, Gylfa Magn­ús­son og Jón Dan­í­els­son, mjög vel hæfa til að gegna emb­ætt­inu.

For­sæt­is­ráð­herra boð­aði alla þessa fjóra umsækj­endur, auk þeirra fimm umsækj­enda sem metnir höfðu verið vel hæfir, til við­tala þar sem lagðar voru fyrir þá spurn­ingar í fjórum köflum: um reynslu þeirra og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­málum, breyt­ingar á Seðla­bank­anum, verk­efni Seðla­bank­ans og stjórn­tæki og loks stöðu efna­hags­mála og sam­spil við stjórn­völd og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Samtals voru lagðar 13 spurn­ingar fyrir umsækj­endur í 27 liðum. Í við­tölum við umsækj­endur lagði ráð­herra, auk þekk­ingar þeirra á fram­an­greindum atriðum, jafn­framt mat á per­sónu­bundna þætti umsækj­enda, þar með talið stjórn­un­ar­hæfi­leika þeirra og hæfni í mann­legum sam­skiptum.

Það var mat ráð­herra, að loknum við­tölum við umsækj­endur og á grund­velli heild­ar­mats á umsókn­ar­gögnum þeirra, að fram­an­greindir fjórir umsækj­endur, sem hæfn­is­nefndin hafði metið mjög vel hæfa, stæðu öðrum umsækj­endum framar. Í kjöl­farið hafði ráðu­neytið sam­band við umsagn­ar­að­ila um hvern hinna fjög­urra umsækj­enda.

Að lok­inni þess­ari skoðun for­sæt­is­ráð­herra og að teknu til­liti til frammi­stöðu umsækj­enda í við­tölum og efni umsagna um þá var það mat ráð­herra að Ásgeir Jónsson væri hæf­astur umsækj­enda til að gegna emb­ætti seðla­banka­stjóra, sbr. með­fylgj­andi rök­stuðn­ing vegna skip­unar í emb­ætti seðla­banka­stjóra.

Frá stofnun Seðla­bank­ans árið 1961 hafa 19 ein­stak­lingar verið skip­aðir seðla­banka­stjórar. Af þeim hafa níu lokið prófi í við­skipta- eða hag­fræði, fjórir í lög­fræði, einn í verk­fræði en fimm höfðu ekki háskóla­menntun. Af 19 seðla­banka­stjórum höfðu sjö verið þing­menn eða ráð­herrar áður en þeir urðu seðla­banka­stjórar, fjórir verið banka­stjórar í Lands­banka Íslands, þrír starfað innan Seðla­banka Íslands, þrír unnið í stjórn­sýslu og tveir verið ráð­gjafar í atvinnu­líf­inu.

Ásgeir Jónsson lauk dokt­ors­prófi í hag­fræði frá Indiana Uni­versity í Banda­ríkj­unum árið 2001 með alþjóða­fjár­mál, pen­inga­mála­hag­fræði og hag­sögu sem aðal­svið. Dokt­ors­rit­gerð Ásgeirs fjall­aði um sveiflu­jöfnun yfir skamman tíma í litlu, opnu hag­kerfi. Ásgeir hefur starfað við hag­fræði­deild Háskóla Íslands frá árinu 2004, fyrst sem lektor og síðan dós­ent. Hann hefur verið deild­ar­for­seti við hag­fræði­deild frá árinu 2015. Samhliða störfum sínum við Háskóla Íslands hefur Ásgeir meðal ann­ars verið efna­hags­ráð­gjafi Virð­ingar og Gamma. Hann hefur gegnt öðrum ábyrgð­ar­störfum, meðal ann­ars sem for­maður starfs­hóps um end­ur­skoðun pen­inga­stefnu og verið for­stöðu­maður í grein­ing­ar­deild og aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings og síðar Arion banka á árunum 2004–2011. Á árunum 2000–2004 var Ásgeir sér­fræð­ingur hjá Hag­fræði­stofnun og sam­hliða því stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina