Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Valkyrjur bæði innan vallar og utan

Banda­ríska kvenna­lands­liðið í knatt­spyrnu hefur unnið hug og hjörtu knatt­spyrnu­að­dá­enda um allan heim. En fram­ganga liðs­manna utan vallar hefur ekki síður vakið aðdáun og eft­ir­tekt og komið af stað löngu tíma­bærri umræðu um jafn­rétti kynj­anna.

Valkyrjur bæði innan vallar og utan
Mynd/Twitter

Banda­ríska liðið tryggði sér í gær heims­meist­ara­tit­il­inn með verskuld­uðum 2:0 sigri á Hollandi. Þótt liðið hafi mörg und­an­farin ár skarað fram úr þá hefur athyglin á lið­inu og leik­mönnum þess aldrei verið meiri. Það má ekki síst þakka sterkum karakt­erum á borð verið fyr­ir­lið­ana Megan Rapinoe og Alax Morgan.

Fjaðrafokið byrj­aði þegar Rapinoe var spurð að því hvort hún myndi þiggja boð í Hvíta húsið færi svo að liðið yrði heims­meist­ari. Hún hélt nú ekki og sagð­ist ekki ætla að fara í „fjand­ans Hvíta húsið“, en hún hefur lýst andúð sinni á stefnu Donalds Trump í mál­efnum LBGT fólks. Síðar sagði hún að það væri ekki hægt að vinna stór­mót án sam­kyn­hneigðra leik­manna.

Trump móðg­að­ist illi­lega við þetta og svar­aði Rapinoe á Twitter. Sagði hann að Rapinoe ætti að hætta að tala og ljúka verk­inu á vell­inum. Hún svar­aði því heldur betur, leiddi liðið í úrslita­leik­inn og kór­ón­aði frá­bæra frammi­stöðu á mót­inu með því að skora í úrslita­leiknum.

Þess er nú beðið hvort að banda­ríska liðið fái boð um að mæta í Hvíta húsið en ekk­ert hefur heyrst af slíku boði ennþá. Banda­rískir fjöl­miðlar hafa rifjað upp að ekki liðu nema nokkrar mín­útur frá því Tiger Woods vann Masters risa­mótið í golfi þar til Trump óskaði honum til ham­ingju á Twitter og bauð honum í heim­sókn. Hann beið hins vegar í nokkra klukku­tíma með að óska banda­rísku kon­unum til ham­ingju en þeirri kveðju fylgdi ekki boð um heim­sókn.

Liðsmenn banda­ríska liðs­ins eru stað­ráðnar í því að nýta með­byr­inn sem þær hafa til að koma gagn­rýni sinni á fram­færi. Þær hafa verið ötular að benda á það mis­rétti sem við­geng­ist hefur innan knatt­spyrn­unnar, bæði heima fyrir og á alþjóða vett­vangi. Þær hafa þegar höfðað mál gegn eigin knatt­spyrnu­sam­bandi í því skyni að fá sömu greiðslur fyrir þátt­töku í lands­liðs­verk­efnum og karla­lands­liðið. Þær fá ein­ungis brot af því sem karl­arnir frá, þrátt fyrir að státa af mun betri árangri á vell­inum.

Þá hafa þær banda­rísku gagn­rýnt FIFA og saka sam­bandið um að van­virða kvennaknatt­spyrnu. Dæmi um slíka van­virð­ingu er að úrslita­leikur HM var leik­inn sama dag og úrslita­leik­irnir í Afr­íku­keppn­inni og Suður-Amer­íku­bik­arnum hjá körlunum.

Þeim banda­rísku hefur tek­ist að færa umræð­una um kyn­bund­inn launa­mun út í hina opin­beru umræðu. Svo mjög að þegar leik­menn voru að gera sig klára til að taka á móti bik­arnum hófu áhorf­endur á Parc Olympique Lyonnais, banda­rískir jafnt sem hol­lenskir, að kyrja „equal pay, epual pay“, mál­stað banda­rísku kvenn­anna til stuðn­ings.

Jafnvel Donald Trump sagð­ist vilja sjá konur fá sömu greiðslur og karl­ana en bætti þó við að það þyrfti einnig að horfa á hvaðan tekj­urnar kæmu. Hvort Trump sé upp­lýstur um það eða ekki, þá er stað­reyndin einmitt sú að kvenna­lands­liðið halar inn meiri tekjur en karla­lands­liðið. Ekki bara eru tekj­urnar af miða­sölu hærri, heldur eru sjón­varps­á­horf­endur fleiri og lands­lið­s­treyjur kvenna­liðs­ins selj­ast mun betur en karla­liðs­ins sam­kvæmt tölum frá Nike.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina