Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gott mataræði hluti af árangrinum

Mataræði spilar stóran sess í lífi afrek­s­í­þrótta­fólks og í fyrsta tölu­blaði árs­ins hafði Gest­gjaf­inn sam­band við fjóra flotta aðila sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa náð langt í heimi íþrótt­anna en það eru þau Ásdís Hjálms­dóttir Annerud spjót­kast­ari, Sólveig Bergs­dóttir fim­leika­kona, Elín Edda Sig­urð­ar­dóttir hlaup­ari og Sigurður Örn Ragn­ars­son þrí­þraut­ar­kappi.

Gott mataræði hluti af árangrinum

„Ég tel að matar­æðið skipti miklu máli hjá öllum og ekki síst hjá afrek­s­í­þrótta­fólki en fyrir það er sér­stak­lega mik­il­vægt að vera með sterkt ónæm­is­kerfi, jafn­vægi í melt­ing­ar­kerf­inu og að fá inn öll snefil­efni sem skipta máli við upp­bygg­ingu og end­ur­heimt,“ segir Elín Edda, læknir og þátta­stjórn­andi Hlaupa­líf hlað­varps, en hún æfir lang­hlaup hjá Meist­ara­flokki ÍR og á annan besta tíma í mara­þoni kvenna á Íslandi. Hún æfir tíu sinnum í viku. „Ég hef verið að gera hæg­fara breyt­ingar á mínu matar­æði í gegnum árin og myndi segja að ég væri á ein­hvers konar Mið­jarð­ar­hafs­jurta­rík­is­matar­æði ef ég ætti að skil­greina það.

Elín Edda Sig­urð­ar­dóttir hlaup­ari. Mynd/Hákon Davíð Björns­son
„Það er ýmis­legt að koma í ljós um þessar mundir sem bendir til að það sé mik­il­vægt að inn­byrða eins fjöl­breytt úrval úr jurta­rík­inu og maður hefur kost á.“

Nýlega hætti ég alveg að borða kjöt, en ég var farin að borða svo lítið af því að það breytti nán­ast engu fyrir mig að taka það alveg út. Ég leyfi mér fisk en hef verið mikið að minnka aðrar dýra­af­urðir svo sem egg og mjólk­ur­af­urðir síð­ast­liðna mán­uði og er farin að prófa mig áfram með vegan nokkra daga í viku. Það hvetur mig líka til að prófa nýjar upp­skriftir. Áður fyrr borð­aði ég mjólk­ur­af­urðir í nán­ast í hvert mál og mér þykir það ekki fara sér­lega vel í maga í tengslum við álagsæf­ingar. Það er ýmis­legt að koma í ljós um þessar mundir sem bendir til að það sé mik­il­vægt að inn­byrða eins fjöl­breytt úrval úr jurta­rík­inu og maður hefur kost á og ég legg því einnig mikið upp úr fjöl­breytni. Varðandi bæti­efni þá getur verið að maður þurfi að huga að þeim ef maður er á sér­fæði og ég tek til dæmis járn og B12 í litlum skömmtum til við­bótar við D-vítamínið sem allir Íslend­ingar ættu að taka inn.“

Ásdís Hjálms­dóttir Annerud spjót­kast­ari. Mynd/John Annerud

Áhersla á heilan, óunnin mat

Ásdís, lyfja­fræð­ingur og fyr­ir­les­ari, hefur æft spjót­kast í rúm­lega 18 ár og kom­ist í útslit á Evr­ópu­meist­ara­mótum, Heims­meist­ara­mótum og Ólymp­íu­leikum. Hún segir að matar­æðið skipti gríð­ar­lega miklu máli þegar kemur að end­ur­heimt og að hafa næga orku til að æfa.

„Ég er að vinna með nær­ing­ar­fræð­ingi sem segir mér hversu mikið ég þarf að borða af kol­vetnum, fitu og próteini. Ég fæ ekki nákvæmt mat­ar­plan frá henni þar sem þetta á ekki að vera heft­andi. Hins vegar hef ég það sem reglu að borða eins hreinan mat og ég get. Þá meina ég að búa hann sem mest til sjálf eða hafa hann eins lítið unn­inn og hægt er,“ segir Ásdís og Sigurður Örn tekur í sama streng og segir matar­æðið algeran grunn­þátt í því að geta æft og keppt af þeirri ákefð sem hann geri.

„Það er engin ein ákveðin regla hvað ég borða og hvað ekki, fyrir utan að ég reyni að borða bara mat sem ég veit nákvæm­lega hvað inni­heldur. Þannig tek ég til að mynda engin duft­fæðu­bót­ar­efni eða annað slíkt heldur legg áherslu á heilan, óunnin mat.“ Sigurður Örn er véla­verk­fræð­ingur hjá Matís ohf., þjálf­ari hjá Þrí­þrauta­deild Breiða­bliks og einka­þjálf­ari. Hann hefur stundað þrí­þraut fá árinu 2015 og faganði stórum sigrum á liðnu ári. „Í grunn­inn er ég á nokk­urs konar lág­kol­vetna matar­æði sem bygg­ist að miklu leyti á feitum fiski, græn­meti, eggjum, hnetum, ávöxtum og að ein­hverju leyti á kjöti en ég eyk þá hlut­fall kol­vetna í sam­svari við ákefð æfinga.“

Sigurður Örn Ragn­ars­son þrí­þraut­ar­kappi. Mynd/Hallur Karlsson
„Það er engin ein ákveðin regla hvað ég borða og hvað ekki, fyrir utan að ég reyni að borða bara mat sem ég veit nákvæm­lega hvað inni­heldur.“

Aðlagaði matmálstíma og mataræðið að æfingatímum

Sólveig Bergs­dóttir flug­freyja hjá Icelandair hefur æft fim­leika frá tveggja ára aldri og hefur á und­an­förnum árum unnið til fjöl­margra verð­launa á alþjóð­legum vett­vangi í hóp­fim­leikum. Hún segir að matar­æði skipti miklu máli til að hámarka árangur.

Sólveig Bergs­dóttir fim­leika­kona. Mynd/Hallur Karlsson

„Ég var lengi að finna hvað hent­aði mér best í sam­bandi við mat og æfingar. Þegar ég var barn borð­aði ég auð­vitað bara það sem var í mat­inn heima. For­eldrar mínir eru flinkir í eld­hús­inu og það var alltaf hollur matur í boði, fiskur og kjöt var í miklu upp­á­haldi. Þegar ég varð eldri og æfinga­á­lagið jókst færð­ist ábyrgðin svo smám saman yfir á mig sjálfa og þá fór ég að taka eftir ýmsu. Til að mynda borða ég ekki stóra mál­tíð stuttu fyrir æfingar, ég finn of mikla orku fara í melt­ing­una þegar ég vil vera að nota hana í annað. Það tók tíma að finna takt­inn í þessu en ég finn mik­inn mun á mér eftir að ég lærði betur inn á lík­amann minn. Banani, epli eða skyr eru mínir go to-hlutir í æfinga­tösk­unni til að borða annað hvort rétt fyrir eða rétt eftir æfingar,“ segir Sólveig.

Í fyrsta tölu­blaði Gest­gjafans 2020 er að finna ítar­legri við­töl við Elínu Eddu, Ásdísi, Sigurð Örn og Sólveigu auk þess sem þau deila hollum og góðum upp­skriftum með les­endum.

Tryggðu þér áskrift að Gest­gjaf­anum í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni