Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Röð kraftaverka bjargaði lífi Jónu

Röð kraftaverka bjargaði lífi Jónu
Jóna Elísabet Ottesen

Jóna Elísabet Ottesen hefur verið lömuð eftir bílslys í tæpa ell­efu mán­uði og allan tím­ann dvalið á heil­brigð­is­stofn­unum. Hún bíður nú eftir því að kom­ast heim þegar aðgerðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins lýkur, seg­ist vera að læra að sætta sig við aðstæð­urnar en vissu­lega hafi hún farið í gegnum dimma dali og erfið tíma­bil á leið­inni að þeirri sátt.

„Það átti sér stað röð krafta­verka sem er þess vald­andi að ég er á lífi,“ segir Jóna Elísabet Ottesen sem í byrjun júní í fyrra lenti í mjög alvar­legu bílslysi í Langadal í Húna­vatns­sýslu, þegar bíll sem hún ók og önnur bif­reið rák­ust saman, hún hlaut mik­inn mænu­skaða og lam­að­ist fyrir neðan brjóst­kassa. „Sá fyrsti sem kom að slys­inu var erlendur ferða­maður sem var læknir og kunni öll réttu tökin og vissi hvernig á að bregð­ast við þegar bíll liggur ofan á mann­eskju. Síðan kom sá sem keyrði aftan á mig og gat lyft bílnum og haldið honum á meðan á björg­un­inni stóð. Auk þess var sjúkra­þyrla stödd á Siglu­firði sem þýddi að þeir voru mjög snöggir á stað­inn og ég komst mjög fljótt undir lækn­is­hendur. Ég var sett í aðgerð á met­tíma og lækn­ir­inn sagði að það hefði bara munað ein­hverjum mín­útum að ég lifði þetta af.“

Fimm ára dóttir Jónu, Ugla, var með henni í bílnum en slas­að­ist ekki og Jóna segir það hafa verið eitt krafta­verkið enn að hún skyldi sleppa ósködduð. Það litla sem hún muni sjálf frá slys­inu snú­ist allt um áhyggjur af Uglu.
„Ég man þegar bíll­inn flaug út af veg­inum og svo bara óljóst eftir að hafa legið þarna og fengið hjálp,“ útskýrir Jóna. „Mín helsta minn­ing frá slys­inu er hvað ég hafði miklar áhyggjur af Uglu, en hún fékk sem sagt varla skrámu. Á slys­stað var Uglu bjargað út um topp­lúg­una á bílnum og kona sem þekkir til okkar hlúði að henni inni í sínum bíl á meðan það var verið að bjarga mér.“

„Lækn­ir­inn sagði að það hefði bara munað ein­hverjum mín­útum að ég lifði þetta af.“

Jóna lá í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu í fimm vikur milli heims og helju en auk mænu­skað­ans hafði hægra lungað fallið saman sem hún segir algengt við svona mik­inn mænu­skaða. Hún er lömuð fyrir neðan brjóst og niður úr, en hefur mátt í hönd­unum. Tíminn á gjör­gæslu er þoku­kenndur enda var henni haldið sof­andi lengi, en hún er viss um að fyrsta hugsun hennar þegar hún vakn­aði hafi snú­ist um hvort allt væri í lagi með dóttur hennar.
„Það var klár­lega það fyrsta sem ég hugs­aði þótt ég hafi kannski ekki getað komið því frá mér,“ segir hún. „Eftir að ég losn­aði úr önd­un­ar­vél­inni fékk ég tal­ventil sem ég gat þó ekki byrjað að nota fyrr en tveimur til þremur vikum seinna og gat því eig­in­lega ekk­ert talað og það litla sem ég gat sagt skild­ist illa. En þegar ég gat svo loks­ins talað við fólkið mitt hófst þetta ferli að meta stöð­una og skoða hvaða kostir væru í boði.“

Brotnaði niður þegar hún kom á Grensás

Hvernig hefur Uglu og ykkur fjöl­skyld­unni gengið að kom­ast í gegnum þessa mán­uði síðan slysið varð? „Við mæðgur höfum alltaf verið mjög nánar og tengdar, eins og mæðgur geta verið,“ segir Jóna. „Ég var lengi á gjör­gæsl­unni og hún var að koma þangað. Þar var auð­vitað allt frekar ógn­vekj­andi, slöngur og tæki út um allt, ég með mikla verki og það þurfti að vera fjar­lægð á milli okkar lengi. Hún er bara svo mikið ljós að hún hefur allan tím­ann horft á lausn­irnar og séð það jákvæða og þannig varð hún kraft­ur­inn minn líka. Ég fann jákvæðu ork­una hennar og reyndi að sjá það góða með henni. Þetta breytt­ist hægt og rólega, eitt skref í einu, mér fór að líða betur og við náðum að tengj­ast aftur, þannig að hún fór að þora að koma upp í fangið á mér eftir að ég losn­aði við allar þessar slöngur og varð hæf­ari í að taka á móti henni.“

Jóna Elísabet Ottesen hefur verið lömuð eftir bílslys í tæpa ell­efu mán­uði og allan tím­ann dvalið á heil­brigð­is­stofn­unum. Hún bíður nú eftir því að kom­ast heim þegar aðgerðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins lýkur. Mynd / Unnur Magna

Jóna var flutt á end­ur­hæf­ing­ar­deild­ina á Grensási í byrjun ágúst og hún segir að það hafi markað þátta­skil fyrir Uglu en jafn­framt orðið til þess að hún sjálf gerði sér grein fyrir alvar­leika skað­ans og sökk ofan í þung­lyndi. „Fyrir Uglu var Grensás eins og fyr­ir­heitna landið sem við höfðum verið á leið­inni til,“ segir hún og brosir við minn­ing­una. „Um leið og við komum hingað klæddi hún sig í kjól og hækk­aði í græj­unum og fannst að nú gæti partíið byrjað. Nú gætum við haldið áfram með lífið. Eftir að ég kom á Grensás hófst hins vegar minn svart­asti tími. Þá varð þetta svo raun­veru­legt. Ég var komin á end­ur­hæf­ing­ar­stöð og vissi að ég þyrfti að dvelja þar næstu mán­uði og gæti ekki verið heima hjá Uglu og mann­inum mínum Stein­grími Inga Stef­áns­syni, sem mér fannst mjög erfitt. Ég væri sem sagt komin í end­ur­hæf­ingu sem í raun­inni sner­ist bara um það að ég væri að fara að styrkja á mér hend­urnar og styrkja mig and­lega, en ég væri mjög lík­lega ekki að fara að geta gengið aftur. Svart­asti dag­ur­inn í öllu þessu ferli var fyrsti dag­ur­inn á Grensás. Umhverfið hér er heldur ekki upp­lífg­andi, allt grátt, gam­al­dags og úr sér gengið og það var erfitt fyrir mig að ná mér upp úr þessum dimma dal sem ég var komin í. Ég hef samt haldið áfram að berj­ast, haldið áfram í end­ur­hæf­ingu og sem betur fer létti á end­anum til og ég er búin að ná mér upp úr þessu og læra að vinna í stöð­unni eins og hún er. Ingi hefur staðið þétt við bakið á mér í gegnum þetta allt saman og verið dug­legur að draga mig út úr þessum dimma dal. Hann hefur verið alveg stór­kost­legur í öllu þessu ferli og ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja á að dásama hann. Hann hefur verið minn stærsti klettur í þessu öllu saman.“

Þurfti sjálf að biðja um sálfræðiaðstoð

Jóna gagn­rýnir skort á and­legri aðstoð fyrir fólk í hennar aðstæðum. Aðeins einn sál­fræð­ingur sinni öllum sjúk­lingum á Grensás og hún segir að það sé eig­in­lega undir hverjum og einum sjúk­lingi komið að leita sér and­legrar aðstoðar.
„Já, það er mjög skrýtið að það sé ekki gripið betur utan um svona ein­stak­linga sem detta ofan í dimman dal og eiga svona erfitt,“ segir hún. „Það er helsti gall­inn á kerf­inu. Þegar ég var á gjör­gæsl­unni þurfti ég til dæmis að biðja um sál­fræð­ing­inn, sem mér fannst mjög skrýtið. Sjúkra­hús­prest­ur­inn hélt hins vegar vel utan um fjöl­skyld­una mína og hjálp­aði þeim yfir erf­ið­asta áfallið, sem var mjög jákvætt, en hann er auð­vitað ekki sál­fræð­ingur. Mér finnst ennþá und­ar­legt að hafa ekki fengið betri sálu­hjálp strax í upp­hafi og í gegnum allt þetta ferli hef ég áttað mig á því að því er mjög ábóta­vant að til staðar sé ein­hver sem passar upp á sál­ræna aðstoð. Nú er ég búin að vera hér á Grensás í tæpa níu mán­uði og það helsta sem mér finnst vanta hér er hug­leiðsla og slökun en ég hef sem betur fer getað sótt mér það sjálf. Ég hef marga engla í kringum mig og vin­konur mínar hafa komið og verið með hug­leiðslu fyrir mig, fundið fyrir mig nudd­ara sem hentar mér og sent mér mön­trur og svo fram­vegis. Það hefur bjargað mér í gegnum þetta tíma­bil, því það fylgir því mik­ill ein­mana­leiki að liggja svona lengi inni á stofnun. Það er í raun­inni engin afþrey­ing hérna fyrir utan sjúkra­þjálfun og iðju­þjálfun, þar fyrir utan glápir fólk bara upp í loftið eða horfir á sjón­varpið.“

„Við erum hérna í hálf­gerðu fang­elsi, getum hvorki farið neitt né fengið fólk í heim­sókn.“

Fyrir slysið starf­aði Jóna sem við­burða­stjóri og fram­leið­andi og er meðal ann­ars einn stofn­andi og skipu­leggj­andi fjöl­skyldu­há­tíð­ar­innar Kátt á Klambra, en ákveðið hefur verið að sú hátíð fari ekki fram í sumar. Jóna er þó harð­á­kveðin í að end­ur­vekja hátíð­ina þegar heilsan leyfir, en fyrst á dag­skrá er að kom­ast heim í nýja húsið sem fjöl­skyldan hefur fest kaup á.

Jóna seg­ist þó ekki vita hversu lengi í við­bót hún þurfi að vera á Grensás, kór­ónu­veiran hafi sett strik í þann reikn­ing og hún sé eig­in­lega bara að bíða eftir að þetta ástand gangi yfir til að geta flutt.
„Við nátt­úr­lega þurftum að selja húsið okkar því aðstæður þar voru ekki hent­ugar fyrir mig,“ útskýrir hún. „Við erum búin að finna okkur nýtt heim­ili sem verið er að byggja og ég gæti í raun og veru kannski verið farin héðan fljót­lega og haldið end­ur­hæf­ing­unni áfram á dag­deild, en það er flókið ferli. Þá þarf ég að fá heima­hjúkrun og aðstæð­urnar þurfa að vera alveg full­komnar til að ég fái að fara heim.“

Orðin æfð í því að vera ein með sjálfri sér

Aðgerð­irnar vegna kór­ónu­veirunnar hafa haft áhrif á fleira en vænt­an­lega heim­ferð, strangar reglur eru um heim­sóknir til sjúk­ling­anna á Grensás.
„Ég hafði fengið að fara heim í helg­ar­leyfi nokkrar helgar,“ útskýrir Jóna. „Við höfum látið það ganga þó svo að það þurfi að bera mig upp tröppur og ég geti ekki mikið aðhafst þar. Kærast­inn minn er orð­inn þjálf­aður í að bera mig í og úr stólnum og við látum þetta ganga upp enda er það rosa­lega mikil vítamín­sprauta að kom­ast heim og vera með fjöl­skyld­unni í þeim aðstæðum. En þegar við vorum loks­ins komin á þann stað að heim­ferð í helg­ar­fríi var orðin gul­rótin sem kom manni í gegnum dag­ana lok­að­ist sá mögu­leiki þegar veiran kom. Ég myndi ekki segja að ég væri í sér­stökum áhættu­hópi vegna smit­unar á Covid-19, en hér eru auð­vitað alls konar sjúk­lingar og það þarf að vernda okkur öll.“

Spurð hvort vist­menn á Grensási séu ótta­slegnir vegna veiru­far­ald­urs­ins segir Jóna að hún hafi ekki orðið vör við það. „En maður er auð­vitað dálítið fastur í sinni búbblu í sínu bata­ferli hérna og síðan þetta kom upp höfum við verið í hálf­gerðri ein­angrun hérna, svo ég veit það ekki almenni­lega,“ útskýrir hún. „Við erum hérna í hálf­gerðu fang­elsi, getum hvorki farið neitt né fengið fólk í heim­sókn, en ég myndi ekki segja að fólk væri hrætt og starfs­fólkið, eins og annað heil­brigð­is­starfs­fólk, tekur þessu með sinni ein­stöku ró.“

Óttastu ekk­ert að þessi félags­lega ein­angrun sem kór­ónu­veiran veldur eigi eftir að leggj­ast þungt á þig? „Ég er orðin mjög æfð í því að vera ein með sjálfri mér og hafa ofan af fyrir mér,“ segir Jóna með stóískri ró. „En ég er samt auð­vitað orðin lang­þreytt á því og með heim­sókna­bann­inu sér maður hvað heim­sóknir frá fjöl­skyldu og vinum skipta miklu máli þegar maður er inni á svona stofnun, en ég tek bara einn dag í einu og reyni að hugsa ekki um það. Ég heyri í fjöl­skyld­unni minni á hverjum degi á Facetime en það jafn­ast ekki á að við það að geta hitt dóttur mína og knúsað hana.“

Yndislegt starfsfólk vinnur við ömurlegar aðstæður

Talandi um heil­brigð­is­starfs­fólk, hvernig er þín reynsla af því í gegnum þetta ferli? Er þetta eins stór­kost­legt fólk og af er látið? „Já, ég myndi segja að það sé setn­ingin sem kemur fyrst upp í hug­ann að þrátt fyrir glat­aðar aðstæður í heil­brigð­is­kerf­inu og öllum stofn­unum þá er það fólkið sem vinnur þar sem heldur kerf­inu uppi,“ segir Jóna eftir smá­um­hugsun. „Þetta fólk vinnur myrkr­anna á milli og gefur sig hund­rað pró­sent í starfið. En maður finnur samt fyrir fjársvelt­inu um leið og maður kemur inn á spít­ala og það verður auð­vitað til þess að starfs­fólkið er þreytt og metn­að­ur­inn damp­ast vegna þess að fólk er bara að gera það sem þarf að gera en hefur engan tíma til að vera skap­andi eða gera eitt­hvað auka. Hér í end­ur­hæf­ing­unni er oft und­ir­mannað og meira að segja það að fá and­lit­skrem og body lotion er álitið dekur, það liggur við að starfs­fólkið hafi ekki tíma til ann­ars en bursta tennur okkar og gefa okkur að borða, allt annað er lúxus sem er nátt­úr­lega fárán­legt. En allir sem vinna hérna eru alveg ynd­is­legir og gefa svo sann­ar­lega af sér og sýna sjúk­ling­unum hlýju, þrátt fyrir þessar ömur­legu aðstæður. Ég gæti síðan talað lengi um sjúkra­þjálfun og iðju­þjálfun þar sem mér finnst vanta 2020-áferð­ina. Um leið og ég slas­að­ist svona fór systir mín að skoða það sem er að ger­ast í þessum málum úti í heimi þar sem not­ast er við nútíma­legri tæki og aðferðir sem gagn­ast fólki með skaða eins og ég er með en slíkar fram­farir kalla á stærra hús­næði og meira fjár­magn. En, eins og ég sagði, þá er starfs­fólkið frá­bært og gerir allt sem það getur fyrir mann.“

„Kannski gerist eitthvað nýtt í dag“

Spurð hvort hún hafi velt því fyrir sér að fara í með­ferð ein­hvers staðar erlendis segir Jóna að vissu­lega hafi hún skoðað þann mögu­leika. „Ég velti því alveg fyrir mér og skoð­aði það en svo ákvað ég að gefa mér tíma og vera hund­rað pró­sent á staðnum hérna,“ útskýrir hún. „Það hent­aði mér alls ekki að fara að rífa mig eitt­hvert burt, bæði út af fjöl­skyld­unni og ég hef líka verið það veik­burða fram að þessu að það hefur ekki komið til, en ég er að styrkj­ast og hef verið að skoða mögu­leika á annarri end­ur­hæf­ingu í fram­hald­inu. Í heims­á­stand­inu núna stoppar sú pæl­ing auð­vitað í bili, en ég hef verið að tala við lækna í Svíþjóð sem eru í sam­starfi við Grensás um að fara í aðgerð sem tengir vöðva þannig að ég gæti öðl­ast mögu­leika á að fá smá­vegis kraft í úln­lið­inn sem myndi valda því að ég gæti fengið smá­grip í fing­urna. Það sam­tal átti að halda áfram núna í apríl og þá jafn­vel með það fyrir augum að fara í þá aðgerð í sumar, en núna tekur maður bara eitt skref í einu og passar sig að fara ekki fram úr sér í neinu. Eitt af fram­tíð­arplön­unum er að fara til Nepal og hitta sjúkra­þjálf­ara sem heitir Raúl og er algjör gúrú. Hann kom til Íslands fyrir ári síðan og við erum mjög spennt að hitt­ast. Hann er svona krafta­verka­maður og auð­vitað trúir maður líka á krafta­verk á hverjum degi. Ég held það líði ekki sá dagur sem fyrsta hugs­unin mín þegar ég vakna er ekki hvort eitt­hvað nýtt ger­ist kannski í dag á sama tíma og ég held áfram að takast á við aðstæð­urnar.“

Fyrir slysið starf­aði Jóna sem við­burða­stjóri og fram­leið­andi og er meðal ann­ars einn stofn­andi og skipu­leggj­andi fjöl­skyldu­há­tíð­ar­innar Kátt á Klambra, en ákveðið hefur verið að sú hátíð fari ekki fram í sumar. Jóna er þó harð­á­kveðin í að end­ur­vekja hátíð­ina þegar heilsan leyfir. Mynd / Unnur Magna

Þegar þú horfir yfir þennan tíma síðan slysið átti sér stað, hvað situr sterkast eftir í hug­anum? „Það er nátt­úr­lega ferða­lag fjöl­skyld­unnar,“ segir Jóna. „Við höfum þurft að fara í gegnum þetta mikla áfall og yfir í það að þurfa að vera jákvæð og sterk og standa saman. Fólkið í kringum mig hefur hjálpað mér gíf­ur­lega og allir lagst á eitt við að byggja veg­inn fyrir mig svo ég kom­ist heim. Ég held ég hafi verið pínu­lítil áminn­ing fyrir þau að taka líf­inu ekki sem sjálf­sögðum hlut og að við getum öll gert ýmis­legt til að breyta og bæta ýmsa hluti í lífi okkar. Sterkasta til­finn­ingin er samt sú að það er ég sem er í þessu verk­efni, það er ég sem þarf að standa með sjálfri mér og það er ég sem þarf að halda áfram og passa upp á mitt sál­ar­tetur. Það er lang­tíma­verk­efnið sem ég þarf að takast á við og ég hlakka bara til þess.“

„Nei, ég verð að geta dansað“

Þegar ég spyr Jónu hvort hún sé bitur yfir aðstæðum sínum tekur hún sér góðan tíma til að hugsa sig um áður en hún svarar. „Ég er alls ekki bitur,“ segir hún. „Ég er búin að fara í gegnum það ferli að hugsa ef, ef ef og allt það. Örugg­lega mun taka langan tíma að sætta sig við þetta, þetta er það mikil breyt­ing og erf­ið­ast hefur verið að horfast í augu við móð­ur­hlut­verkið í þessum breyttu aðstæðum. Allt frá því að hugsa um hvort ég geti greitt á Uglu hárið aftur, knúsað hana fast eða hoppað með henni um fjöll og firn­indi eins og við vorum vanar að gera.

„Ég er þakk­lát fyrir lífið sem ég átti fyrir slysið en nú bíða mín önnur verk­efni og ég þarft að finna minn takt og mína rödd.”

Það allra erf­ið­asta var samt kannski þegar ég átt­aði mig á því hver staðan er, það er erfitt að vera í þess­ari stöðu og þurfa að biðja um aðstoð við allar athafnir; að fá sér kaffi­sopa, farða sig, setja sím­ann sinn í hleðslu og svo fram­vegis. Fyrir mann­eskju eins og mig, sem hefur alltaf verið mjög sjálf­stæð, er þetta mjög stór þáttur í því hvað manni finnst erfitt að vera í end­ur­hæf­ingu. Sömu­leiðis að þurfa alltaf að vera að biðja fólkið sitt um að hjálpa sér og horfa fram á að þetta sé það sem ég muni alltaf þurfa á að halda. Ég þarf að vera dug­legri við að æfa mig í því að biðja um hjálp. Ég hef alltaf verið mjög virk lík­am­lega, haft gaman af því að dansa og hreyfa mig, hef eig­in­lega stundum dansað mig í gegnum lífið. Ein fyrsta hugs­unin eftir að ég gerði mér grein fyrir hversu mik­ill skað­inn er var: nei, ég verð að geta dansað! Ég veit að ég mun ekki geta dansað eins og ég gerði en nú er ég að finna út úr því hvernig ég get dansað öðru­vísi, þótt það sé kannski bara í hug­anum. Í þessu ferli þá snýst bit­ur­leik­inn samt kannski aðal­lega um að sjá eftir því að hafa ekki notið ýmissa hluta áður en ég slas­að­ist. Af hverju var ég að velta mér upp úr ein­hverjum hlutum sem eru svo ómerki­legir eða svo ein­faldir þegar maður horfir til baka. Af hverju er maður að flækja fyrir sér lífið og nýtur ekki betur hvers dags sem maður fær? Það er svo margt sem maður ætlar alltaf að gera seinna. Ég bý hins vegar svo vel að eiga svo jákvæðan mann að hann hefur alveg náð mér úr þessum bit­ur­leika­hugs­unum og segir bara að við eigum eftir að njóta þess sem við gerum enn þá betur núna og rækta garð­inn okkar enn betur. Og þó svo að við getum ekki eign­ast annað barn þá eigum við þessa ynd­is­legu dóttur sem er algjört krafta­verk. Það er númer eitt, tvö og þrjú að minna sig á það krafta­verk að maður sé á lífi og þó að ég geti ekki dansað eða hoppað eða verið sú sem ég var þá þarf maður að læra að sjá feg­urð­ina í öðrum hlutum.“

Fólk sem ekki hefur upp­lifað það að verða hreyfi­hamlað á stundum erfitt með að trúa því þegar fólk sem hefur orðið fyrir hreyfiskaða seg­ist vera sátt við stöðu sína. Heldur Jóna að það sé hægt að verða full­kom­lega sáttur við sína stöðu eftir að hafa lent í svona áfalli? „Já, ég held það,“ segir hún án þess að hika. „Ég held að það hafi bjargað lífi mínu að ég hef alltaf getað stundað jóga og hug­leiðslu. Ég hef gengið í gegnum mjög margt í líf­inu og eftir að ég lenti í slys­inu var fólk stöðugt að segja mér hvað ég væri mik­ill nagli, sem ég þoldi stundum ekki. Ég veit samt innst inni að ég er nagli og ég ákvað að kom­ast í gegnum þetta. Auðvitað hef ég brotnað og grátið og hugsað; ég vil ekki lifa svona, en sem betur fer á maður í hug­anum ein­hverja aðra hugsun og ein­hvern annan kraft sem maður vill frekar leita til. Ég hef sem betur fer alltaf náð því og ætla að halda í þann kraft. Ég er þakk­lát fyrir lífið sem ég átti fyrir slysið en nú bíða mín önnur verk­efni og ég þarft að finna minn takt og mína rödd. Ég ætla að halda áfram að sinna verk­efnum tengdum Kátt á Klambra, fjöl­skyld­unni minni, vinum mínum og sjálfri mér.“

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina