Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spennandi tímar fram undan hjá Norræna húsinu

Spennandi tímar fram undan hjá Norræna húsinu

Nýr og end­ur­bættur sýn­ing­ar­salur opnar í Norræna hús­inu í dag og spenn­andi sýn­ingar eru fyr­ir­hug­aðar á næstu mán­uðum. Þann 29. febr­úar opnar svo veit­inga­stað­ur­inn MATR sem mun leggja áherslu á rusl­frían og vist­vænan veit­inga­rekstur.

Norræna húsið í Reykja­vík hefur um ára­tuga­skeið verið vin­sæll áfanga­staður í mið­borg Reykja­víkur hjá bæði Íslend­ingum og erlendum ferða­mönnum. Í dag, föstu­dag, opnar end­ur­bættur sýn­ing­ar­salur í hús­inu og nýr veit­inga­staður sem mun bera heitið MATR verður opn­aður í næsta mán­uði.

Norræna húsið er ein fal­leg­asta bygg­ing borg­ar­innar, hönnuð af finnska arki­tekt­inum Alvari Aalto, og er mið­stöð nor­rænnar menn­ingar hér á landi og um leið menn­ing­ar­hús fjöl­skyld­unnar þar sem boðið er m.a. upp á fjöl­breytta við­burða­dag­skrá allt árið, nor­rænt bóka­safn, vin­sælt barna­bóka­safn og lista­verka­út­lán. Síðasta ár var þó afar erfitt fyrir rekstr­ar­að­ila Norræna húss­ins. Í mars þurfti að loka sýn­ing­ar­sal húss­ins vegna vatnsleka og í lok sum­ars var veit­inga­staðnum AALTO Bistro sem hefur verið stað­settur þar í fimm ár lokað.

Spennandi tímar í vændum

Krist­björg Kona Krist­jáns­dóttir, mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóri Norræna húss­ins, segir að fyrir vikið hafi starf­semin í hús­inu raskast mikið og það hafi bitnað hvað mest á fasta­gestum húss­ins. „En í dag er til­efni til að gleðj­ast og spenn­andi tímar eru í vændum árið 2020. Við viljum að þessi opnun í kvöld marki tíma­mót og því viljum við fagna með fólk­inu sem notar húsið, þekkir húsið og bjóðum vel­komna þá sem aldrei hafa heim­sótt okkur. Allir eru hjart­an­lega vel­komnir.“

Árni Ólafur. Mynd / Guðni Páll Sæmunds­son

Nýi end­ur­bætti sýn­ing­ar­sal­ur­inn ber heitið Hvelfing en hann hefur verið end­ur­nýj­aður í upp­haf­legri mynd. „Lagt hefur verið nýtt gól­f­efni og loft­ræsti­kerfi auk þess sem opnað hefur verið á milli tveggja rýma sem áður voru aðskilin. Stein­veggir, tré­hurðir og tré­bitar í loft­inu setja fal­legan svip á mínímal­ískan sal­inn sem býður upp á mikla mögu­leika fyrir mynd­list af öllu tagi. Fyrir framan sal­inn opnar Hönn­un­ar­verslun Norræna húss­ins en hún var áður stað­sett á efri hæð húss­ins. Versl­unin mun selja gjafa­vöru eftir nor­ræna hönn­uði og arki­tekt húss­ins, Alvar Aalto.“

Land handan hafs­ins opnar í Norræna hús­inu í dag kl. 17.

Glæsilegar sýningar

Fyrsta sýn­ingin í nýja salnum ber heitið Land handan hafs­ins en um er að ræða finnska mynd­list­ar­sýn­ingu sem Pro Artibus-stofn­unin hefur veg og vanda af, að hennar sögn. „Í apríl opnar sýn­ing í til­efni hálfrar aldar afmælis íslenskrar graf­íkur og í sumar stendur húsið að sýn­ingu í sam­starfi við Lista­há­tíð í Reykja­vík og Platform Gátt sem mun kynna ungt og upp­renn­andi lista­fólk á Norð­ur­löndum. Í haust opnum við síðan stóra og glæsi­lega sam­sýn­ingu í Norræna hús­inu sem fjallar um jafn­rétti og kyn í nor­rænu sam­hengi. Á sýn­ing­unni munu margir af eft­ir­sótt­ustu lista­mönnum Norð­ur­land­anna sýna.“

Fjölskylduvæn kaffihúsastemning

Veit­inga­stað­ur­inn sem opnar í Norræna hús­inu í næsta mán­uði mun bera heitið MATR, sem er forn rit­háttur á orð­inu matur, að sögn Árna Ólafs Jóns­sonar eig­anda en hann er m.a. þekktur fyrir sjón­varps­þætt­ina Hið blóm­lega bú sem voru sýndir á Stöð 2 fyrir nokkrum árum.

„MATR er eins árs til­rauna­verk­efni í rusl­fr­íum og vist­vænum veit­inga­rekstri í Norræna hús­inu. Stað­ur­inn mun bjóða upp á huggu­lega og fjöl­skyldu­væna kaffi­húsastemn­ingu þar sem áhersla er lögð á nor­ræna mat­ar­gerð, nýtni og virð­ingu við hrá­efni. Í gegnum dag­inn er sænska hug­takið „fika“ haft að leið­ar­ljósi, það að slaka á og njóta þess að fá sér kaffi og með því í góðra vina hópi.“

Hann segir MATR fyrst um sinn vera kaffi­hús sem hefur opið þriðju­daga til sunnu­daga milli kl. 10 og 17. „Boðið verður upp á úrvals­kaffi, te og aðra drykki, heima­lagað bakk­elsi af ýmsu tagi og svo heitan mat í hádeg­inu. Mat­seð­ill­inn mun taka reglu­legum breyt­ingum, allt eftir árs­tíðum og hrá­efn­is­fram­boði. Kvöldin verða nýtt í ýmsa mat­ar­tengda við­burði og fleira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur